Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 11

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 11
fram hjá þeim börnum, sem eru í söngkór skólans. — Ef breytingar er þörf, hverrar þá helzt? Er t. d. ráö að fjölga söng- tímum, eöa þarf að breyta kennslu- háttum aö ööru leyti? — Það þarf að fjölga söngtímum um helming frá því, sem nú er. Það er mjög örðugt að byggja upp kerfis- bundna kennslu með einni kennslu- stund á viku. Sérstaklega er óheppi- legt, að svo langt iíði á milli æfinga. — Ef tímum yrði fjölgaö, ber þá aö leggja aukna áherzlu á aö þekkja gildi nótna og annarra söngtákna eöa hitt, að börnin syngi meira? — Hvort tveggja. Með kennslu í nótnalestri erum við að gera börnin hæf að tileinka sér lög af bókum. Með auknum tíma til söngkennslu ættu nemendur að ná betri tökum á námsefninu og fá meiri söngiðkun en nú er hægt að veita þeim með þessari einu kennslustund á viku. — Hvaö viltu segja um bekkjar- söng? Er það œskilegt, aö almennir kennarar láti börnin syngja daglega? — Það er mjög þýðingarmikið, en ég held, að bekkjarsöngur sé ekki nægilega iðkaður í skólum okkar. Flestir kennarar munu þó láta yngstu börnin syngja eitthvað en hætta því oft alveg, þegar börnin eldast. Það er mikilvægt, að börn. sem eru sam- an í bekk, fái að syngja saman á öll- um aldursstigum barnaskólans. En þetta krefst þess, að kennarinn geti sungið með bekknum sínum, á sama hátt og hann vinnur með þeim að öðru námsefni. — Er sameigintegur morgunsöng- u'r í skóla æskilegur? Fiðlan er dásamlegt hljóðíœri. — Ja, ég hef nú alltaf átt erfitt með að syngja snemma morguns, og svo mun vera um flesta, þess vegna tel ég betra að velja aðra tíma dags- ins til samsöngs. Slíkur söngur er vissulega mikils virði, ef tryggt er, að allir fylgist með. Því miður eru aðeins sumar gerðir skólahúsa hent- ugar til þessara nota. — Hvað segir þú um tónlistar- kennslu í barnaskólum? — Auk skyldunáms í söng hafa flestir skólar kóra og nokkrir hljóm- sveitir og þá kennslu í hljoðfæraleik í sambandi við þær. Þessa starfsemi þarf að auka mikið frá því sem nú er. __ Er heppilegt aö hálda söngn- um sem sérstakri námsgrein, eöa œtti kannski aö nota hann meir en gert er til aö lífga upp annaö nám og styrkja félagsvitund nemenda? — Hvort tveggja ber að gera. Vafalaust væri það heppilegt, að FORELDRABLAÐIÐ 9

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.