Foreldrablaðið - 01.01.1969, Síða 8

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Síða 8
sig. Þess vegna stóðu félögin af sér áföll, blómguðust og áttu mikinn þátt í batnandi afkomu sveitafólksins. Ef við íslendingar hefðum almennt átt þennan hugsunarhátt bændanna og festu, væri íslenzkur iðnaður nú blómlegur og sennilega ekkert at- vinnuleysi. Ef við hefðum yfirleitt farið eitthvað líkt að og Norðmaður- inn, sem vildi heldur kaupa norskan eldspýtnastokk í Þýzkalandi, þótt hann væri aðeins dýrari en sá þýzki, þá stæðum við fastari fótum á ís- lenzkri jörð nú en raun ber vitni. Ég vona, að þessi dæmi skýri það, að ást á landi og þjóð og þar með nokkur þjóðarmetnaður, sé afl í lífs- baráttu þjóðarinnar. Þannig hefur ættjarðarástin hagnýtt gildi. En hitt tel ég þó meira, að hún er andlegur aflvaki, sem gerir okkur meiri menn, stærri og göfugri þjóð. En ef við viðurkennum þetta sjón- armið, liggur næst að spyrja, hvernig ástandið sé hjá okkur nú. Er ætt- jarðarást okkar Islendinga jafnvak- andi nú og var fyrir hálfri öld eða meir? Hræddur er ég um, að svarið verði neitandi. Hvað veldur? Fleira en eitt. Sigur náðist í sjálfstæðisbar- áttu okkar með fremur auðveldum hætti. Þar með var sú eggjun úr sög- unni. Stjórnmálaerjur urðu nú inn- byrðis og einkum um efnahagsmál. Það hefur aldrei þótt vænlegt til göfgi að stimpast um kjötpottinn. Komm- únisminn, sem hér nam land á kreppuárum, lagði áherzlu á samein- ingu öreiga allra landa. Ættjarðartil- finningar áttu þar ekki háan sess. Gróðamöguleikar urðu miklir eftir 1940, og síðan hafa efnahagssjónar- miðin verið ríkjandi hjá flestum, en hugsjónir lítils virtar. Og enn má nefna það, sem ef til vill er gildastur þáttur í þessari þróun, en það er sú breyting, sem verður á lífsháttum fólks við þéttbýlismyndun. Nú elzt mikill hluti þjóðarinnar upp án þess að komast í snertingu við íslenzka náttúru eins og áður var algengt og lýst er hér að framan. Ekki verður horfið aftur til þeirra þjóðlífshátta, sem veita hverjum vax- andi íslendingi samvistir við náttúru landsins oft í kyrrð og þögn. Uppeldi þjóðarinnar er nú, og mun verða með allt öðrum hætti en áður var. Það hefur flutzt úr strjálbýli til þéttbýlis, frá viðskiptum við náttúruna til flók- inna samskipta manna, flokka og félagsheilda, frá heimilunum til ým- iss konar uppeldisstofnana, þar á meðal skóla. Ættjarðarást þrífst ekki vel í þeim gróðurreitum, sem nú veita íslenzku ungviði vaxtarskilyrði. Er þá nokkuð hægt að gera til þess að bæta þar um? Það er unnt, ef vilji er til þess. En til að svo megi verða, þurfa ráðandi menn þjóðfélagsins að átta sig. Skólarnir, ef til vill einkum barna- skólarnir, eru þær stofnanir, sem lík- legastar eru til þess að geta haft þarna nokkur áhrif. En það verður ekki, nema kennararnir hafi vilja, já, löngun til þess að vinna í þágu ætt- jarðarinnar, — séu þjóðræknir menn, — sannir íslendingar. Hver á að gera þá þannig úr garði ? Beinast liggur við að svara: Þeirra eiginn skóli, Kenn- araskólinn. En er hann þess megn- ugur ? Eitthvað ætti hann að geta létt Framh. á bls. 14 6 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.