Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 37

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 37
litla, þetta máttu ekki, þú verður óhrein. Mamma vill, að litla stúlkan sín sé hrein.“ Sé hún úti að leik, er móðirin vís að kalla: „Lena mín, vertu ekki með þessum ólátakrökk- um, komdu heldur inn og leiktu þér að brúðunurn þínum.“ Loks fer svo, að Lena veit ekkert, hvað hún á að gera. Hún er hætt að taka sér nokkuð fyrir hendur án þess að spyrja móð- ur sína. Hún er farin að trúa því, að það, sem móðirin segir og gerir, sé það eina rétta. Áhrif slíks uppeldis eru ósjálfstæði og athafnaleysi. Leiðbeiningar móð- urinnar, boð hennar og bönn er auð- vitað allt í góðri meiningu gert, en þarna er um að ræða eigingjarna móðurást, sem ef til vill skaðar ekki, meðan barnið er kornungt, en verður því viðsjárverður fjötur, er það vex og þroskast. Sumar mæður hafa mikla ánægju af því, að sitja í ró og makindum með barni sínu. Hjálparlaust, þrúgað und- ir sterkum vilja móður sinnar, veitir barnið drottnunargirni hennar og makindanautn fullnægju en bíður sjálft tjón, sem ef til vill verður aldrei bætt. Afleiðingarnar verða svipaðar og í dæminu um Lenu. Aðeins sú kona, sem á jafnvægi í sál sinni, lifir í ástríki og finnur meiri fullnægju við að gefa en þiggja, getur' verið reglulega ástrik móðir, þegar sjálfr'æði barnsins hennar knýr á. Samband móður og barns er þann- ig, að annar aðilinn þarfnast hjálpar en hinn veitir hana. Því er móður- ástin æðsta tegund ástar og helgust allra tilfinningatengsla. Þýtt úr dönsku. Sœtor systur. — Hafa þœr fengið bœSi „mjólk" og „hunang”? Sr. Magnús Helgason, fyrsti skóla- stjóri Kennaraskóla tslands, var sann- ur Islendingur í beztu merkingu þeirra orða. — I erfðaskrá sinni farast hon- um þannig orð: „Ég hef unnað íslandi frá barn- æsku. Þá ást kveiktu þeir hjá mér Jónas með Ijóðum sínum, Páll Mel- steð með fornaldarsögu sinni og Jón Sigurðsson með baráttu sinni. tsland hefur verið unun mín, gefið mér allt, sem ég á. Það er því einsœtt, að það njóti, ef eitthvað verður eftir mig látinn“. FORELDRABLAÐIÐ 35

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.