Vikan - 21.01.1982, Blaðsíða 51
Draumar
Ævintýraleg ferd
? sjó og loðfeldur
í landi
.ær' draumrádandi.
^efur ádnr rádid fyrir mig
raum og ráðningin var svo
^ öð ég sendi þér hér annan
adUm Sem merfinnsl endilega
s<- fyrir einhverju sérstöku.
? var með manninum
le"mm vinnufélögum, lík-
fa e,uhvers staðar undir
^JUnni eða nálægt Akranesi.
fff eg að ég er að handfjatla
>n /j ’ nnnar tiltekið jakka,
e. ^rðapúðum og stríðsára-
' L Mér fmnst ég ætla að
f a v,nnufélaga mínum, B..
Jm>an iakka. Ég er eitthvað
fni tata um það við manninn
Qma hvort það sé rétt af mér
l f,efa þessari konu jakkann
öð'/“ œtli alls ekki aö gefa
n . >n v,nnufélögum mínum
s'1 (eé>a alla vega ekki neitt
kemð jakbanum). Okkur
e mm sa,nan um að jakkinn sé
ákyt'f sn,ðinn á þessa konu og
haf !<m a^ Þa<t> verði bara að
íuy >ae>' bvar) aðrir segi. Síðan
,nm' mer að annar vinnufélagi
á *<*•> °S ég leggjum afstað
Vjr, IVers konar skóm sem
h(jfSI e,ns °g sjóskíði, en við
lQ j u>n °kkur hvergi, í mesta
fyrir /, °/7 1 ai,nad. Ástæðuna
ferd i V>ð iögðum I þetta
éu .! ak Ve,t ég ekki en þó vissi
fcen ^ Va> brýnt að við
pyUm yf,r til Reykjavíkur.
fyrulTluöum við vlst 1 ve%
skUn ab°rgi>la' sem var a
vj() fU' en þegar við sáum að
héi(i°'Um miklu hraðar en hún
Hey!m v}é> áfram alla leið til
Javíkur og komum i land
á timhurbryggju vestur í bæ,
sem flaut yfir svo við renndum
okkur upp á hana. Ég man að
ég var mjög hrædd um að
missa jafnvægið á leiðinni en
fannst að hraðinn héldi okkur
nokkurn veginn uppréttum.
Þegar við komum upp á
bryggjuna verður mér litið út á
ytri höfnina, eða
lengra út réttara
sagt, og þá sé ég að
stórt svart Jiikki,
með strompi og öllu,
erað sökkva. Þaðgerist
mjög fljótt. Ég bendi öðrum á
það og segist halda að þetta sé
olíuskip en þá er mér sagt að
þetta sé olíupaHur. Ég sé mörg
skip bera aö og hef sterklega á
tilfmningunni að mannbjörg
verði og að lílill skaði sé skeður.
Síðan sé ég öldurnar sem
myndast af soginu þegar skipið
(eða pallurinn) fer niður og
þessar öldur koma allt upp á
bryggjuna og eru mik/u meiri
en sjórinn þegar við vorum á
þessum undarlegu sjóskíðum.
Hann var ekki mikill. Ég segi
við vinnufélaga minn að við
höfum verið heppin að vera
ekki á ferð núna og hann sam-
sinnir því. Rétt er að geta þess
að á sjóferðalaginu sáum við
tvö grá skip sem fóru mishratt
og voru misstór, Akraborgin
var líklega það stærra þeirra.
Veður var gott.
Dreymin.
Fyrri hluti draumsins bendir
ákveðið til þess að þú munir
leggja eitthvað af mörkum tengt
þessari konu, sem þú gafst
pelsinn í draunmum. Ekki er
útilokað að því fylgi nokkur
gleðskapur og fyrirhöfn sem
ekki var séð fyrirfram. Síðari
hlutinn boðar ýmsar breytingar
sem koma munu mjög á óvart.
Þú og vinnufélaginn í
draumnum verðið ekki fyrir
nokkru raski vegna þess en ef til
vill einhverjir ykkur tengdir,
sem þið fylgist með úr fjarlasgð.
Skipin tvö segja að þarna sé um
tvo aðila að ræða sem eru aðal-
orsök atburðanna en það snertir
ykkur tvö ekkert persónulega og
veldur engum straumhvörfum
hvað ykkur varðar.
Eldgos,
fjárhús
og eyrnalokkar
Kæri draumráðandi.
Ég ætla að biðja þig að ráða
fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir stuttu. Hann er
eitthvað á þessa leið:
Mérfannst að það væri
gamlárskvöld og ég og nokkrar
vinkonur mínar værum inni í
fallegu fjárhúsi. Nokkrar kýr
voru þar líka. Ég átti að hafa
átt jretta allt. Við vorum inni í
hlöðu og þá fannst mér að
einhver kæmi og segði að það
væri komið eldgos því að það
œtti að refsa mér og einni
vinkonu minni. Við hefðum
syndgað eitthvað á móti Seifi
og hann ætlaði að refsa okkur.
Mér fannst iíka að það væri
kviknað Ifjárhúsinu. Við
ætluðum allar að hleypa
dýrunum út (ég held að við
höfum slökkt eldinn). Svo
hlupum við út. Við htupum út
í móa sem eru á milli efra og
neðra Breiðholts. Þar var
eitthvað af krökkum. Mér
fannst ég líta yfir neðra
Breiðholt og sá að verið var að
sprengja fullt afflugeldum. Svo
sá ég allt I einu eitthvaö sem
mér sýndist vera kringlótt og
mjög rautt og allir héldu að
væri eldgos (það átti að vera
eitthvað í sambandi við
refsinguna). EJtir dálitla stund
fannst mér einhver segja að
þetta væri gabb. Við fórum þá
öll niður í Breiðholtskjör. Þar
hitti ég mömmu og fór eitthvað
að tala við hana. Við gengum
að einni búðinni sem heitir
Jóna Sigga. Þar var brotin rúða
og mamma teygði sig inn og
stal þrem pörum af eyrna-
lokkum. Við gengum svo
aðeins í burtu. Þá kom strákur
sem ég kannast pínulítið við.
Egfór eitthvað svolítið hjá
mér þegar ég sá hann. Hann
tók utan um mig og sagði: Nei,
hjólaskautapían sjálf komin.
(Hann hefur mikinn áhuga á
hjólaskautum, ekki ég.) S\'o
spurði hann hvað ég væri
gömul og ég sagði ftmmtán.
Hann virtist ánœgður, kyssti
mig á ennið og sagði: Ég hitti
þig á eftir, elskan. Svo fór
hann til hóps af krökkum sem
ég ætlaði að vera með á eftir.
Ég ællaði að afsaka þetta við
mömmu en henni var alveg
sama. Svo vpptum við báðar
öxlum og í því vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk og
vonandi að þú getir ráðið
eitthvað úr þessu rugli,
fio
Það sem helst einkennir þennan
draum er að friðsælt og gott
heimilislíf og gróinn kunningja-
hópur virðist víkja (alla vega um
stundarsakir) fyrir einhverju
„nýju og spennandi” sem jafn-
framt er á mörkum þess að geta
talist viðurkennt af samfélaginu.
Það er talsverð spenna og
æsingur í þessum draumi og
greinilegt að næstu mánuðir
verða viðburðaríkir en draum-
ráðandi heldur (án þess að leggja
dóm á atburðina) að þú munir
taka rólegheitin fram yfir
spenninginn þegar frá líður,
einkum vegna þess að stórar
vonir (ef til vill i ástarmálum)
reynast hverfular og þú munt
jafnvel falla í áliti hjá
einhverjum sem þú metur
mikils. Koss í draumi er sjaldan
fyrir hinu sama I vöku og ekkert
víst að draumurinn varði
þennan strák öðrum fremur.
Þú munt ráðast í eitthvert
áhættufyrirtæki og tefla á
tæpasta vað en ekki verður
annað séð en úr rætist á
einhvern hátt, þó ekki eins og þú
hafðir ætlað.
3. tbl. VifcanSl