Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Side 19

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Side 19
HUGLEIÐINGAR UM NÝJA ÍSLAND 17 S V sig sjálft, að samræður gátu varla verið fjörugar, þegar grimmasta alvara grúfði yfir allra liuga, og sumstaðar autt sæti þess ástvin- arins, er máske mátti sízt missa við, sem fyrir svo stuttri stund kom til nýja landsins hraustur og hress með björtustu framtíðarvonir í brjósti, en sem nú hvíldi í nýtek- inni gröf......En svo kom svefn- tíminn með hvíld og endurnæringu, og nýr starfsdagur fylgdi fast á eftir. * * * Og svo kom nú vorið, hagstætt og blítt og bjart, og glæddi nýja lífslöngun, nýtt þor og nýjan þrótt til starfsemi og framsóknar. Von- uðu nú allir, að gott eitt byggi í framtíðinni, að upp væri nú kom- ið á örðugasta hjallann, og að meö samtökum og samvinnu tækist á stuttri stund að ryðja svo skógi frá húsum, að jörðin gæfi af sér einhverja uppskeru. Á því var líka þörf, því alt til þessa urðu þeir, er efnalausir voru, að treysta einvörð- ungu á stjórnarlán, sér og sínum til lífsframfærslu. Undireins þeg- ar ísa leysti svo frá fjörusandi, að netstúf yrði varpað í víkina, fékst oftast einhver björg úr vatninu, og allur fiskur var þá góður fiskur. Nú var og tekið til að stinga upp jörðina og gera kartöflugarða á milli stofnanna, heima við húsin, og flestir fengu furðanlega góða uppskeru af svo illa undirbúinni jörð. Með vorinu kom frumstjórn ný- lendunnar til sögunnar, lieimafeng- in og alíslenzk stjórn, er annaðist um öll almenn mál í héraði, á líkan hátt og sveitarstjórnir alment gera. Var þar stígið stórt spor og bráð- nauðsynlegt til umbóta og heilla. Framvegis vissu nú allir, hvert leita skyldi, þegar leysa þurfti úr vandamáli, eða finna ráð til þess að framkvæma eitt eða annað bú- endum og bygðinni til hagsmuna. Og alment var það álitið, að vel hefðu verið valdir menn í þessa fyrstu stjórn, — reyndir menn og ráöhollir, sem æfinlega voru búnir og boðnir til að leiðbeina einstak- lingnum og aðstoða hann eftir föngum, ekki síður en þelr reynd- ust sívakandi fyrir öllum velferðar- málum sveitarinnar í heild sinni. Nú var líka fullgerð brautin urn skóginn eftir endilangri nýlend- unni, norðan frá Fljóti og alla leið til Netlulækjar, en þaðan voru þá bara 10—12 rnílur til Selkirk og þær greiðfarnar. Hér var virkileg umbót og öllum sýnileg, því nú var þó ratljóst á landi, hvert sem fara skyldi meðfram ströndinni og í grend við hana. Með köflum var brautin auðvitað allsendis ófær ak- vegur að sumri til, einkum um flóa- flæmin fyrir sunnan nýlenduna, og yfirleitt var hún illfær sumarveg- ur, og það um margra ára skeið, því vegabætur voru seinfengnar en brautin þurftarfrek. En landveg- ur var þetta samt og slarkfær göngumönnum á öllum tímum árs. enda kom hann mörgum lausgang- andi manni að góðu haldi frá upp- liafi, því bátar voru ekki æfinlega við hendina og langt frá því að vatnið væri ætíð ugglaus farvegur á smábát. Á vetrardegi aftur á móti, eftir að snjór var kominn, var brautin greiður og góður al- faravegur, og svo mjög fanst ferðamönnum öllum til um veðra- L
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.