Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 37

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 37
GAMALT OG GOTT — OG ILT 35 mætti bjóða þeim eins góð kjör eins og Vesturheims-agentarnir buðu í gamla daga. En ekki vil eg ábyrgjast, að það kyn reyndist eins vel og það íslenzka vestra.) Fátæktarskólinn var áreiðanlega stundum góður, þó hann væri oft harður. Og þess vegna fer mér stundum svo, að eg fyrir minna barna hönd og margra annara, öf- unda sumra fátækra börn og fæ ó- beit á glysinu og góða matnum og skólamentuninni, og ekki sízt allri eyðsluseminni, sem nú veður uppi. Það er einkum sparneytnin og nýtnin, sem eg sá svo oft í ung- dæmi rnínu, sem eg sakna nú á tímum. Þó þori eg ekki að senda mína krakka frá mér á fátækra- skóla. Því fátæktinni fylgir áreið- anlega margt ilt, og sparneytni og nýtni geta líka gengið fram úr hófi. Og svo finst mér yfirleitt fátæk- lingarnir nú á tímum miklu lakari tegund fátæklinga heldur en gerð- ist í gamla daga. Þá var svo al- gengt að menn væru fátækir, að betra fólkið slæddist alt eins með eins og hitt. Óvíða mun finnast meiri hagsýni í litlum efnum, heldur en á sveita- heimilum íslenzkum. Þó eg sé sjálfur talinn eyðsluseggur, þá er fá'tt í fari náunga minna, sem eg dáist meira að, en hagsýni og að- sjálni án nízku. Finst mér þetta vottur þess að sparnaðardygðin sé þó að nokkru leyti runnin mér í blóðið, en auk þess verð eg oft var við liana í þeirri ástríðu, að vilja tína upp og hirða ýmislegt dót, sem eg hefi aldrei brúk fyrir, en sem eg síðan geymi vandlega eins og gam- alt hey til næstu harðinda. Eg lærði þetta og margt annað spaklegt af fátækum leiksystkinum mínum, þegar eg var drengur í Odda. II. Eg man, þegar eg vakti yfir tún- inu og deildi nesti mínu með kot- kiökkunum úr nágrenninu. Eg ætlaði að kasta pörunni utan af bióðmörnum. En Gerða í For*) sagðist hafa verið vanin á að borða pöruna fyrst og sér þætti hún góð. Eg fann þetta vera heillaráð. Þegar Guðni í Ekrunni var tek- inn heim til okkar um tíma, til að ná á sig holdum, þá lærði eg meira í íslenzkri menningarsögu, en eg síðan hefi lært af bókum. — Hann var á aldur við mig, 10 ára gamall. Það var orðið bjarglaust í kotinu eins og vant var á- vorin, og krakkarnir ætluðu að detta sundur úr hor. “Við erum nú bú- in með nöguna (þ. e. harðfiskur- inn),” sagði Guðjón, elzti drengur- inn og ók sér, þegar pabbi spurði hann um, hvernig ástatt væri um matarforðann. Og hann kipti upp brókunum og herti á sultarólinni (því sultaról var algeng í þá daga og friðaði magann furðu vel í bili, ault þess sem hún gerði axlabönd óþörf). Harðfisksbiti — og roðið með — og bræðingur — og flautir, þetta hafði verið eina viðurværið síöustu vikurnar. (Eg skildi aldrei í, hvað tveir sepparnir, sem voru á lieim- ilinu, gátu fengið í svanginn til að treina í sér lífið. Sennilega hafa þeir vitað af úldnum ærskrokk úti í liaga — í dýinu — frá í fyrra.) "*) For var kot í Oddatúni. Nú sr þar fjós prestsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.