Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 49

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 49
PRÁ ÞJÓRSÁRDAL fornritum. Ljósar sagnir fara þó eigi af dalnum eða íbúum hans, og engin saga er til um Þjórsdæli. En eftir rannsóknum að dæma, virðist þar hafa verið allmikil bygð. Engin ástæða er til að ætla það, að Hjalti Skeggjason hafi búið þar einn, og hafi bær hans heitið Þjórsárdalur, enda þótt í fornum scgum sé eigi nánar ákveðið en svo, að kalla liann Hjalta Skeggja- son úr Þjórsárdal. Landnáma greinir þannig frá um byggingu Þjórsárdals: “Þorbjörn laxakarl nam Þjórsárdal allan ok Gnúpverjahrepp ofan til Kálfár, ok bjó enn fyrsta vetr at Miðhúsum; liann hafði þrjár vetrsetr (sum hdr. hafa: þriðju vetrsetu, eða: þar vetrsetu) áðr hann kom í Haga, þar bjó hann til dauðadags; hans synir voru þeir Otkell í Þjórs- árdal ok Þorkell trandill ok Þor- gils” o. s. frv. (útg. J. Sig. bls. 130). Þá er og ennfremur á bls. 335: “Arngeirr hét maðr, er nam Sléttu alla leið milli Hávararlóns ok Sveinungavíkr; lians börn voru þau Þorgils ok Oddr ok Þuríðr, er Steinólfr í Þjórsárdal átti..... Oddr var síðan illr ok ódæll við at eiga, hann var hamrammr svo mjök, at hann gekk heiman úr Hraunhöfn um kveldit, en kom um morgunin eftir í Þjórsárdal, til liðs við systur sína, er Þjórsdælir vildu berja grjóti í liel” (fyrir tröllskap ok fjölkyngi, bæta sum hdr. við). Langur dæguráfangi myndi nú tal- inn gangandi manni af Melrakka- sléttu suður til Þjórsárdals. í Njálu er Þjórsárdals tvívegis getið, en á báðum stöðum lauslega og aðeins í sambandi við Hjalta Skeggjason. Loks getur Holta-Þórissaga um 47 —I viðureign þeirra Holta-Þóris og Eilífs bónda á Ási í Þjórsárdal, en sú heimild er ung og lítt merk. Af íbúum dalsins í fornöld er Hjalti Skeggjason lang-kunnastur, og er hans víða að góðu getið. Helztu heimildir um Hjalta, auk Ólafssagnanna, er Kristnisaga og Njála, en einnig er hans getið í Islendingabók og Landnámu. Præg- astur er hann vafalaust fyrir þátt þann, er hann átti í kristnitökunni árið 1000. Áður hefir verið getið Þorbjörns laxakarls og sona hans þriggja. Er þá næst að minnast á sonarson Þorbjörns, þann mann, sem fornsögurnar eru svo tilfinn- anlega fáorðar um, kappann Gauk Trandilsson. Við hann mun kend- ur Gaukshöfði fremst í Þjórsárdal að vestan, en talið er, að Gaukur liafi búið í Stöng, sunnan við Stangarfjall. Gaukur Trandilsson var fóstbróðir Ásgríms Elliða- Grímssonar í Tungu, sbr. Njálu, kap. 26 (útg. Vald. Ásm.) í sam- bandi við ætt Ásgríms: “Gaukr Trandilsson var fóstbróðir Ásgríms, er fræknastr maðr hefir verið ok bezt at sér gerr. Þar varð illa með þeim Ásgrími, því at Ásgrímr varð banamaðr Gauks”. Furðu ríflega deilir höfundur Njálu Gauki hróðurinn í þessari stuttu lýsingu. Hvílíkur styrkur má það vera minningu hans, að maðurinn, sem lýsir Gunnari á Hlíðarenda og öðrum afreksmönn- um, skuli fara um hann slíkum orðum. Eigi vita menn um sakir Þeirra Ásgríms og Gauks, en ætla má að þær hafi eigi verið smáar. Br. J. getur um sögu, sem höfð er eftir Vigfúsi “víðförla” úr Skafta- fellssýslu, og er hún á þessa leið:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.