Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Blaðsíða 122
120
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Jónatansson frá Efran. (esi í Skef-
ilsstaðahreppi í Skagafjarðarsýslu)
Árni sonur hans og dóttir, dóu öll,
svo þú getur nærri, hvað Guðrún
aumingin og þær systur hafa að
bera; og svona eru margir því mið-
ur. Gamli Pálmi (Jónsson —
Skaga-Pálmi) druknaði af flatbát
uppi í árósi í sumar, á myrkri nótt
svo honum varð ekki bjargað. Var
haldið hann hefði-ætlað til þarfinda
sinna, því þá ríkti magaveikin hæzt
og kallaði ótt og títt; María dóttir
lians er dauð úr bólu og sonur
hennar ársgamall, Pálmi, er hún
átti með Jónasi í Hróarsdal; Guð-
mundur frá Skollatungu (í Skarðs-
hreppi í Skagafjarðarsýslu) og
barn hans og Guörúnar; 2 börn
Sveinbjörns frá Veðramóti; Una
kona Péturs í Jónskoti og börn
hans tvö; kona Gunnars Jóhanns-
sonar frá Egg (í Ilegranesi) og í
því húsi 2 eða 3 börn, eg held Da-'
víð og Löngumýrar-Hallgrímur hafi
átt þau, — systir þín þekkir það,
— og svona er það víðast, þó eg
nenni ekki að telja fleira. For-
eldrarnir eru sumstaöar dauð frá
börnunum; börnin sumstaðar, þó
þau hafi verið 3 til 4, öll dauð, og
ektapörin dáið hvort frá öðru.
Nú held eg sé bezt að koma til
aðalmálsins áður en þetta litla blað
er alveg þrotið, og þig mun mest
fýsa að vita, sem er að segja frá
livernig land muni vera hér vestra,
veðráttukostir og ókostir. Þú mátt
ekki og munt ekki kasta þungum
steini til mín þó eg verði hér um
stuttorður; þér mun þykja það eðli-
legt, því tíminn er enn ekki langur
og reynslan enn styttri, þar eg sem
aðrir höfum enn ekki tekið sem
sagt er hönd í kalt vatn, því stjórn-
in (sú örláta og góða stjórn) hef-
ir enn sem komið er lagt okkur alt
í höndur, eins ríkum sem fátækum
og verður fyrst til maímánaðarloka.
Hún lánaði í sumar járnbrautar-
gjald frá Quebec til Winnipeg, þeim
sem ekki gátu borgað það, matar-
forða alla leið og síðan í allan vet-
ur matarforða til maíloka; flesk,
hveiti, sykur, te, nokkuð af kaffi,
nýtt kjöt, “bíns” (ensk. beans =
flatbaunir), haframjöl, grjón, til
veiðarfæra og á milli 30 til 40 kýr
í haust og salt. Upphæð á þessu
er 33,500 dollarar. Svo biðjum við
liana um í vor lán 19,000 dollara í
200 kúm, allslags útsæði og til
veiðarfæra, salt að salta fisk okk-
ar, og nauðsynlegustu akuryrkju-
verkfæri ásamt gluggum í hús og
liverfisteinum. Og þetta teljum við
víst hún láni eftir öðrum hennar
aðförum við okkur. Líka biðjum
við liana að lána okkur 800 doll-
ara fyrir skonnortu, svo við getum
sjálfir flutt að okkur nauðsynjar
okkar, haldið henni til veiða og
viðarflutninga o. s. frv. Þar sjá-
um við strax hvað léttara er en
borga aðflutningskaupið, sem er
mjög hátt, 1 dollar á hverjum 100
pundum.
Eftir áliti mínu er land hér mik-
ið feitt og gott þó það sé ekki alt
jafn byggilegt. Jarövegur er liér
víða feitur og skógur óvíða sver,
og það mun helzt vera hér að skóg-
ur er á sumum stöðum ofgrannur
til húsa, og þó það megi fá hann
fullsveran eru óþægir erfiðleikar
í bráðina að koma honum að sér
á meðan vegir eru ekki vel opnaðir
og akneyti vanta. En stjórnin bæt-
ir úr þessu sem öðru. Hér eru nú
til flutninga nokkrir uxar, sem hafa