Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Blaðsíða 129
SITT AF HVERJU FRÁ LANDNÁMSÁRUNUM
127
eru liér í suður, austur og vestur
af fjöllunum stór svæði, sem eng-
inn byggir enn. Loftið er hér
hreint, en kalt mun vera hér oft
á vetrum, en hitar einnegin sterkir
á sumrum, en heilsufar manna yfir
höfuð má lieita hér gott. Hveiti-
uppskera varð hér í sumar frá 28
til 35 bush. af ekr., hafrar frá 50
til yfir 60 b. af ekr., maís veit eg
ei um, en hann spratt hér vel, kart-
öflur frá 14 til 28 faldar og köll-
uðu menn liér þær misbregðast,
en af káltegundum veit eg ei um.
Við erum ennþá 28 mílur frá aðal-
markaði (nefnil. Pembina), en við
höfum fulla von um að járnbraut
komi bráðum til okkar. Hvað
framtíð snertir hér, þá get eg ei
annað sagt en margfalt horfir bet-
ur við að geta lifað, en í Nýja lsl„
þrátt fyrir alla eymd og hrakninga
okkar hér kominna, þar við mátt-
um kallast sem rúnir horgemlingar,
— já, sumir sem húðflettir af
stjórnendum nýlendunnar, því hér
er margfalt auðunnari, jörðin og
ekki afrakstursminni, mikið þurr-
ari og næstum alstaðar beztu veg-
ir með sárlitlum umbótum, og svo
er rnaður reglulegur eigandi að
jörðum sínum hér og getur selt
strax verk sín á þeim, ef vill. Hér
eru þrennslags lönd tekin.*) Það
-"•) Þrennslags lönd tekin: lýtur at5 því,
at5 framan af árum metían vesturríkin
voru sem næst óbygt5, veiUu landtöku-
lögin hverjum innflytjanda, er til lög-
aldurs var kominn, hvort sem var karl et5a
kona, þrennskonar landtökuleyfi: Heim-
ilisrétt (Homestead), er skuldbatt mann til
at) yrkja ákvet5inn hluta landsins og bua
á landinu eigi skemur en 6 mánut5i á ári
hverju í 5 ár, at5 þeim tíma lit5num og
þeim skilyrt5um fullnæg'ðum, var þeim
veitt eignarbréf. Forkaupsrétt (preemp-
tion) er ákvað þriggja ára ábút5 og allar
liinar sömu skyldur og heimilisréttur, at5
fyrsta er stjórnarland 160 ekrur og
kosta pappírarnir $17.00, frítt að
öðru leyti; annað: keypt land á
$200.00, umlíðing á því rentulaust
í 30 mánuði; þriðja: svokallað við-
arplöntunarland (það er á skóg-
lausum sléttum) og á að planta
skóg á 8 ekr. og borgar maður það
land $17.00, að öðru leyti frítt, og
þarf aldrei að búa á því eina nótt.
Stjórn hér í “County”-inu má heita
góð, og engar kvaðir lagðar hér á
nýlenduna utan vegavinna. — Hér
eru nú til sem eg veit meðal landa
18 uxapör og er það ei lítið á svo
stuttum tíma, en gripatala að öðru
leyti er mér ókunn. Margir landar
liafa getað plægt töluvert fyrir
hveiti að sumri og mun það að
ekrutali vera um 160 alls. Séra
Páll Þorláksson, sem er prestur
okkar, hefir safnað gjöfum frá
Norðmönnum, löndum hér til hjálp-
ar, og hafa flestir þegið þá hjálp
og það er það sem menn styrkjasi
hér við í vetur, í tilliti til matbjarg-
ar, því í sumar er leið gátu menn
ei afkastað meiru en að byggja
(margir) og láta plægja eða plægja
sjálfir, vinna fyrir fatnaði sínum
og sinna og matarforða. — Komist
nú þessi hópur af hér til næstu
uppskeru og geti haldið líkri stefnu.
að vinna á löndum sínum (sem eg
hefi beztu von um), þá er eg al-
veg sannfærður um, að við skörum
á öðru ári mikið fram úr áðurver-
andi nýlendu vorri, því nú strax
er hér orðið meira plægt en þar,
því vit5bættu, at5 greií5a vart5 til ríkisins
$1.25 fyrir hverja ekru ati réttarfresti
liönum. Trjáplöntunarréttur (Tree claim)
eins og bréfrit. skýrir frá. Nú eru land-
tökulög þessi löngu úr gildi gengin, vest-
urríkin eigi lengur í aut5n og óbygt5, enda
margt breytt frá því sem át5ur var.