Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Blaðsíða 142
140
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENDINGA
neskju um bók ungfrú M. Ostenso, sem
sagt væri aö snerti óþægilega rslendinga
hér í Manitoba.
J. J. Bildfell gat þess a'ö ungfrú Ost-
enso heföi fengiö blaö það, er ummælin
fluttu í garg Islendinga, til þess a,ð leið-
rétta þau. Eftir nokkrar umr. var sam-
þykt till. frá dr. Sig. Júl. Jóhannessyni,
studd af A. B. Olson, um þaö aö Þjóö-
ræknisfélagið fari þess á leit viö félag
þaö, sem væntanlega gefur út bók ungfr.
Ostenso, aö fá aö lesa handritið. Kosin
var nefnd til þess, dr. Sig. Júl. Jóhannes-
son, sr. J. A. Sigurðsson og Páll Bjarn-
arson.
Þessu næst har Arni Sigurösson frá
Wynyard fram þá tillögu, aö stjórnar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins skyldi senda á-
skorun til stærsta menningarfélagsins í
þessu landi, United Church of Canada,,
er þaö héldi ársþing sitt 5 sumar, þess
efnis, að það kirkjufélag beitist fyrir því,
a.ð liflátsdómar hér í Canada verði úr
lögum numdir. Va.r gerður ákafur róm-
ur að þessari tillögu, og samþykti hana
allur þingheimur meö því að standa á
fætur.
Var þá fundi frestað þ.a.r til síðar um
kvöldiö.
Þá er fundur var settur um kvöldið, var
fundargerð síðasta fundar lesin og sam-
þykt í einu hljóði.
Þá lagöi sr. Rögnv. Pqtursson fram álit
nefndarinnar, er sett var til þess aö at-
huga Stúdentagarðinn og samvinnumál-
ið. Var þ.að i tveim liöum:
I. Nefndin leggur til að endurnýjað sé
ákvæði þingsins frá því í fyrra, um að
leitast verði við aö vekja almennan á-
huga fyrir Stúdentagarðsmálinu, fram-
kvæmdarnefndin gengist fyrir samskot-
um og komi fénu til hlutaöeigenda um
eða fyrir áramót.
II. Nefndin treystir sér ekki til aö
gera ákveðnar tillögur í samvinnumálinu
— sem í raun réttri er mörg mál — því
henni virðist svo sem þingið sé búið að
binda sig svo með fjárveitingum,
aö ekki muni mikið afgangs. Eitt mál
vill nefndin þó biöja þingið að athuga og
gera tillögur um, er verða rnætti til nyt-
semdar í framtíðinni, en þetta mál er ís-
lenzka bókaverzlunin hér vestra. Eftir
verzlunarskýrslum Islands aö dæma frá
1921, er þetta aðal viðskiftagrein Islands
og Canada* Það ár eru fluttar út bækur
hingað fyrir 13,200 kr., en allur annar
útflutningur nemur aðeins 500 kr.. Þjóð-
ræknismálum vorum er hin stærsta nauð-
syn á, ag hingað flytjist sem mest af
nýtum og góðum íslenzkum bókum, og
á því verði, sem almenningi er kleift að
kaupa. Góð samvinna er nauðsynleg í
þessu efni.
Skýringar komu frá framsögum., að
fiarri væri, aö þessu viðskiftamáli væri
svo komið sem skyldi, og var niðurstaða
nefndarál. sú, að ef ekki fengist lögun
á því, væri þýðingarlaust aö leitast fyrir
um samvinnu í öðrum efnum.
Alitið var rætt lið fyrir lið og I. liður
samþyktur í einu hljóði.
Um II. lið urðu nokkrar umræður. —
Gerði séra R. E. Kvaran þá brtt. að
nefndin leggi til að málinu sé vísað til
stjórnarnefndarinnar, að hún hafi allar
þær framkvæmdir, sem hugsanlegar séu
á næsta ári. Var brtt. sr. Ragnars sam-
þykt í einu hljóöi. Var nefndarálitið því
næst samþ. alt, með þeirri brtt. í einu
hljóði.
Þá stóö upp fráfarandi varaforseti,
Gisli Jónsson, og gat þess aö stjórnar-
nefndin hefði komið sér saman um að
leggj,a. það til við þingið, að gerður yrði
heiðursfélagi Þjóöræknisfélagsins skáldið
og rithöfundurinn Einar Hjörleifsson
Kvaran, sem mesturn Ijóma hefði varpað
á íslenzkar bókmentir út um heiminn, nú-