Árbók VFÍ - 01.06.1993, Blaðsíða 84
82 ArbókVFI 1992/93
Réttindi félaga
12. gr.
Félagar hafa rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfunina FVFI með nafni sínu.
Almennir félagar, kjörfélagar og heiðursfélagar hafa rétt til að vera félagar í einni eða fleiri
deildum, með þeim takmörkunum, sem lög þeirra segja til um.
Ungfélögum er heimil fundarseta á almennum fundum og á fundum í deildum. Þeir hafa
ekki önnur réttindi í félaginu.
Atkvæðisrétt hafa félagar, sem tilgreindir eru í 4. gr., 6. gr. og 7. gr.
Eingöngu félagar í VFÍ hafa rétt til setu í aðalstjórn.
Skipulag
13. gr.
Æðsta vald í málefnum félagsins hefur aðalfundur.
Starfsemi félagsins er stjórnað af aðalstjórn og framkvæmdastjórn undir forystu formanns,
en framkvæmdastjóri og starfslið skrifstofu félagsins annast dagleg störl' að málefnum þess.
Innan vébanda félagsins starfa deildir og hagsmunafélög skv. 17. gr.
Fastanefndir starfa innan félagsins að sérstökum málefnum. Félagið getur gerst aðili að
öðrum samtökum.
Aðalstjórn
14. gr.
í aðalstjórn sitja formaður, fráfarandi formaður, varaformaður, tveir meðstjórnendur og
fulltrúar sérgreina og hagsmunafélaga, sem samþykki hafa hlotið sbr. 17. gr.
Formaður kallar saman aðalstjórn til funda og getur boðað varamenn á stjórnarfundi, þegar
þess er talin þörf.
Aðalstjórn markar stefnu félagsins og skal að jafnaði koma saman á tveggja mánaða fresti á
tímabilinu 15. sept. til 15. maí.
Aðalstjórn skiptir með sér verkum, sbr. þó 15. gr.
Fundur aðalstjórnar er lögmætur, ef hann situr helmingur stjórnarmanna auk formanns eða
varaformanns. Afl atkvæða ræður úrslitum við atkvæðagreiðslur, nema annað sé tekið frarn í
lögum félagsins, og ræður atkvæði formanns, er atkvæði verða jöfn.
Kosning
15. gr.
Árlega skal kjósa varaformann skrillega til eins árs. Hann tekur við formennsku næsta ár á
eftir nema hann færist undan vegna gildra forfalla og skal þá kjósa sérstaklega um formann.
Fráfarandi varaformaður er formaður í eitt ár, en situr auk þess í framkvæmdastjórn sem frá-
farandi formaður eitt ár í viðbót.
Tvo meðstjórnendur og tvo varameðstjórnendur skal kjósa til tveggja ára í senn þannig, að
árlega er einn meðstjórnandi og einn varameðstjórnandi kosinn.
Framkvæmdastjórn tilkynnir félagsmönnum eigi síðar en 1. febrúar, hverjir stjórnarmenn
ganga úr stjórninni á næsta aðalfundi, og auglýsir eftir tillögum félagsmanna um stjórnarmenn.
Þær tillögur skulu vera skriflegar og hafa borist stjórninni 15. febrúar. Að þeim fresli útrunnum,
skal kynna varaformannsefnum uppástungur, sem borist hafa um varaformann.
Eigi síðar en með aðalfundarboði sendir stjórnin félagsmönnum kjörseðla með nöfnum allra
þeirra, sem stungið hefur verið upp á. Stungið skal upp á minnst fjórum meðstjórnendaefnum,