Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 101
Lög og reglur VFI 99
Úrsögn
38. gr.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt stjórn félagsins skriflega með ijögurra mánaða fyrirvara.
Brottvikning
39. gr.
Brjóti félagsmaður lög eða aðrar samþykktir félagsins, eða komi á annan hátt þannig fram,
að ekki samræmist markmiði félagsins eða heiðri verkfræðingastéttarinnar, getur aðalstjórn
félagsins veitt honum áminningu eða lagt til, að honum verði vikið úr félaginu, enda hafi
viðkomandi félagsmanni verið gefrnn kostur á að leggja fram skriflega greinargerð máli sínu
til varnar. Til að slík tillaga teljist samþykkt, þarf hún að hljóta staðfestingu dómstóls félags-
ins. Dómstóllinn er skipaður 5 fyrrverandi formönnum félagsins, þeim er síðast gegndu því
starfi. Sé einhver þeirra forfallaður, tekur sá fyrrverandi formaður sæti í dómnum, sem gengdi
starfi næst á undan þeim ftmm o.s.frv. Hlutaðeigandi félagsmaður og félagsstjórn ryðja hvor
um sig einum manni úr dómnum. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum í dómnum.
Lagabreytingar
40. gr.
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi eða samkvæmt 30. gr. Tillögur
um lagabreytingar, sent leggja á fyrir aðaifund, skulu birtar í fundarboði.
Til lagabreytinga sem bornar eru undir aðalfund þarf 2/3 greiddra atkvæða, en meira en
1/2 greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Ef innan við 10% félagsmanna taka þátt í atkvæðagreiðslu á aðalfundi um grundvallar-
breytingu á VFI, svo sem sameiningu við önnur félög, reglur um félagsaðild eða mikilvægar
ákvarðanir um ijármál VFI eða sjóða þess, öðlast slík ályktun ekki gildi, nema hún verði
samþykkt með 2/3 greiddra atkvæða á næsta aðalfundi.
Eigi má selja eða veðsetja fasteign í eigu félagsins án samþykkis aðalfundar. Um slíkt
samþykki skal fara eftir ákvæðum 3. mgr.
Einnig getur aðalstjórn félagsins látið fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við
30. grein ef að mati aðalstjórnar er óheppilegt að bíða í eitt ár með að fá lagabreytinguna
afgreidda, sem hefur verið samþykkt með 2/3 á einum aðalfundi.
Lagabreytingar skulu birtar félagsmönnum.
2 Fundarsköp VFÍ
(Samþykkt 16. mars 1955)
Formaður félagsins stjórnar fundum, en í forföllum hans varaformaður eða einhver annar
úr stjóminni. Á aðalfundum skal þó kosinn sérstakur fundarstjóri.
Þegar fundur hefur verið settur, les ritari upp fundargerð síðasta fundar, en fundarstjóri
leitar staðfestingar fundarins á henni. Komi leiðréttingar fram, skal geta þeirra í fundargerð
yfirstandandi fundar. Fundarstjóri og ritari undirrita gerðabókina.
Fundarstjóri stjórnar umræðum og gætir þess, að fundarmenn ræði það efni, sem þá er til
meðferðar.
Fundarstjóri leyfir mönnum að tala í sömu röð og þeir kveðja sér hljóðs. Þyki honum
umræður verða óþarflega langar, má hann skammta ræðumönnum tíma.
Fundarmenn geta lagt til, að umræðum sé hætt. Tillögu um það má ekki ræða, en skal lýsa
og bera undir atkvæði fundarins, þá er sá hefur lokið máli sínu, sem er að tala, þegar fund-
arstjóra er aflient tillagan.