Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 94
92 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Rcttindi fclaga
12. gr.
Félagar hafa rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfunina FVFI með nafni
sínu.
Almennir félagar, kjörfélagar og heiðursfélagar hafa rétt til að vera félagar í einni eða
fleiri deildum, með þeim takmörkunum, sem lög þeirra segja til um.
Ungfélögum er heimil fundarseta á almennum fundum og á fundum í deildum. Þeir hafa
ekki önnur réttindi í félaginu.
Atkvæðisrétt hafa félagar, sem tilgreindir eru í 4. gr., 6. gr. og 7. gr.
Eingöngu félagar í VFl hafa rétt til setu í aðalstjórn.
Skipulag
13. gr.
Æðsta vald í málefnum félagsins hefur aðalfundur.
Starfsemi félagsins er stjórnað af aðalstjórn og framkvæmdastjórn undir forystu formanns,
en framkvæmdastjóri og starfslið skrifstofu félagsins annast dagleg störf að málefnum þess.
Innan vébanda félagsins starfa deildir og hagsmunafélög skv. 17. gr.
Fastanefndir starfa innan félagsins að sérstökum málefnum. Félagið getur gerst aðili að
öðrum samtökum.
Aðalstjórn
14. gr.
I aðalstjórn sitja fimm menn, sem kosnir eru á aðalfundi, sbr. 15. gr., svo og fulltrúar sér-
greina- og hagsmunafélaga, sem samþykki hafa hlotið, sbr. 17. gr. Stjómin kýs sér varafor-
mann til eins árs úr hópi meðstjórnenda, sem kosnir eru á aðalfundi.
Formaður kallar saman aðalstjóm til funda og getur boðað varamenn á stjórnarfundi, þegar
þess er talin þörf.
Aðalstjórn markar stefnu félagsins og skal að jafnaði koma saman á tveggja mánaða fresti
átímabilinu 15. sept. til 15. maí.
Fundur aðalstjórnar er lögmætur, ef hann situr helmingur stjómarmanna auk formanns eða
varaformanns. Afl atkvæða ræður úrslitum við atkvæðagreiðslur, nema annað sé tekið fram í
lögum félagsins, og ræður atkvæði formanns, er atkvæði verða jöfn.
Kosning
15. gr.
Formann, ijóra meðstjórnendur og tvo varameðstjórnendur skal kjósa skriflega til tveggja
ára í senn þannig að annað árið skal kjósa formann, tvo meðstjórnendur og einn varameð-
stjórnanda, en hitt árið tvo meðstjórnendur og einn varameðstjórnanda. Endurkjör er heimilt
einu sinni, þannig að formaður og/eða meðstjórnendur geta setið tjögur ár samfellt í stjórn.
Framkvæmdastjóm tilkynnir félagsmönnum eigi síðar en I. febrúar, hverjir stjórnarmenn
ganga úr stjórninni á næsta aðalfundi, og auglýsir eftir tillögum félagsmanna um stjórnar-
menn. Þær tillögur skulu vera skriflegar og hafa borist stjórninni fyrir 15. febrúar. Að þeim
fresti útrunnum, skal kynna formannsefni / formannsefnum uppástungur, sem borist hafa.
Eigi síðar en með aðalfundarboði sendir stjórnin félagsmönnum kjörseðla með nöfnum
allra þeirra, sem stungið hefur verió upp á. Stungið skal upp á a.m.k. þremur meðstjórn-
endaefnum, og verða þeir meðstjómendur, er flest atkvæði hljóta og varameðstjórnandi sá, er
næstflest atkvæði hlýtur.