Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 54
52 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
15.5.12 Lokaorð.
Þegar málefni koma inn í nefndina þarf að huga að þvi að afgreiða þau út úr nefndinni þannig
að hægt sé að taka til við næstu málefni. Verkfræðingafélagið hefur átt frumkvæði og rutt
mjög lofsverða braut varðandi ígildisviðskipti. Félagið ætti að geta komið svona máli af sér
til stjórnvalda eða einkageirans og jafnvel fengið greiðslu fyrir framlag sitt. Þeir peningar
gætu þá nýst félaginu til frekari starfsemi.
Utflutningsnefndin þakkar framkvæmdastjóra og starfsfólki á skrifstofu VFI og SV ánægju-
legt samstarf og góða þjónustu.
Andrés Svanbjörnsson, formadur Utflutningsnefndar VFI
15.6 Stefna og markmið VFÍ
Sem fyrr hefur töluverð umræða orðið innan stjómar um markmið, skipulag og stjórn VFÍ.
Stefnumörkunamefnd sendi í fyrra stjórn VFI nefndarálit „Endurskoðun markmiðs og skipu-
lags Verkfræðingafélags íslands“.
Alit þetta fylgdi ársskýrslu 1994. Verið er að vinna að einu og öðru seni fram kemur i
nefndarálitinu, en þar er víða komið við og margar afar athyglisverðar hugmyndir að finna.
Ohjákvæmilegt er að leggja verulega vinnu í frekari útfærslu þeirra eigi þær að koma að
notum.
Ef gripið er niður í þessar ágætu tillögur, þá er m.a. bent á að nauðsynlegt sé að
endurskoða markmiðin og leiðir reglulega, ella rykfalli hugmyndirnar og verði einskis virði.
Stefnumörkun er verkefni framkvæmdastjórnar félagsins og ætti að vera með reglubundnu
millibili á dagskrá stjómarinnar.
Til uppriljunar er hollt að minnast eins og annars sem tillögurnar gera ráð fyrir, enda þótt
um endurtekningu sé að ræða. Ef gripið er niður hér og þar, má m.a. finna þarfar ábendingar
eins og :
- að verkfræðingum sé nauðsynlegt að hafa með sér félag er annist sameiginlega hags-
muni þeirra og sé vettvangur skoðanaskipta á starfssviði þeirra.
- að þjóðfélaginu sé mikilvægt að verkfræðingar hafí með sér félag er láti til sín taka
málefni verkmennta, framkvæmda og tækni á víðum grunni, félag sem efli þennan þátt
menningar í íslensku samfélagi.
- að þorri félagsmanna sé hlynntur þessum gmndvallarviðhorfum og að þau séu lykilatriði
í hollustu þeirra við félagið.
Of margir verkfræðingar standa utan félags, sem bendir til þess að VFI höfði ekki til verk-
fræðinga sem skyldi. Gagnrýnum augum þarf að leita eftir veikleikum í starfseminni og setja
fram hugmyndir sem líklegar eru til úrbóta. Athyglisvert er að félagið stuðlar með starfsemi
sinni að hagsmunum allra verkfræðinga og heldur uppi nafni þeirra, hvort sem þeir eru í
félaginu eða ekki.
Stefnumörkunarnefndin deilir á stefnu stjórna VFÍ hin síðari ár og segir tilhneigingu hafa
verið til að fela öðrum að leysa málefni sem VFÍ hefði átt að leysa og megi segja að
Verkfræðingafélagið hafí þannig unnið markvisst að því að gera sig óþarft á þessum sviðum.
Sem dæmi eru tekin:
• Launa- og kjaramálum verkfræðinga er komið fyrir í sérstöku stéttarfélagi.
• Lífeyrismálum verkfræðinga er komið fyrir í sérstökum lífeyrissjóði.