Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 44
42 Árbók VFÍfTFÍ 1994/95
son fyrir VFÍ. Fulltrúi Eftirlitsnefndar er Jón Vilhjálmsson. Framkvæmdastjóri félaganna er
ritari nefndarinnar.
Fráfarandi formaður Islandsnefndarinnar sótti aðalfund FEANI, sem haldinn var á Möltu í
október s.l. Aðildarlöndin eru nú 22 og umsóknir frá nokkrum löndum í austurhluta Evrópu
eru í skoðun. Alls eru um ein og hálf milljón félagsbundinna tæknimanna í aðildarlöndum
FEANI. Af þeim íjölda hafa aðeins um fímmtán þúsund sótt um svokallaðan Eurlng titil, þar
af um tíuþúsund frá Bretlandi.
Framkvæmdastjórn FEANI hefur m.a. byggt áætlanir sínar og afkomu samtakanna á sölu
Eurlng titilsins en þær áætlanir hafa ekki gengið eftir. Samtökin eru í íjárhagskröggum og var
af þeim sökum ákveðið að halda sérstakan aukafund í Brussel nú í febrúar. Islenskir verk-
fræðingar og tæknifræðingar, sem áhuga hafa á störfum í öðrum löndum Evrópu, ættu að
hugleiða að sækja um Eurlng titilinn. Þar sem mat er lagt á starfsreynslu við úthlutun á
titlinum, gæti það komið fólki að notum og greitt því leið inn á vinnumarkað Evrópusam-
bandsins. Eftirlitsnefnd FEANI á íslandi, en í henni eru fulltrúar beggja félaganna, fer yfír
umsóknir um Eurlng titilinn. Skilyrði er að umsækjandi sé félagsbundinn í öðru hvoru félag-
inu.
Fjárhagserfíðleikar FEANI settu mark sitt á Möltufundinn. Akveðið var að hækka aðild-
argjöldin um 15% á næsta ári. Forgangsverkefni á næstunni verða að afla Eurlng titlinum
meira fylgis, að ráða bót á ijárhagsvandanum og að ákveða inntöku nýrra aðildarlanda.
Nokkurs uggs gætir vegna fyrirliggjandi umsóknar frá Rússlandi vegna þess mikla fjölda
tækni- og verkfræðinga sem þar starfar. Til frekari upplýsinga er vísað til greinargerðar um
þátttökuna í aðalfundinum, sem fylgir með þessari skýrslu.
14.3.6 Fjárhagsáætlun Menntamálanefndar 1995
Menntamálanefnd hefur ekki áður farið fram á það formlega að fá aðgang að rekstrarfé
félagsins til sinna þarfa en óskar eftir því nú. Þess má geta að MVFÍ aflar félaginu tekna með
vinnu sinni við mat umsókna. Félagið tekur nú 3.000 kr. fyrir að meta umsóknir þeirra sem
gerast félagar en 10.000 kr. af þeim, sem óska eftir að nota verkfræðingstitilinn en kjósa að
standa utan VFI.
Menntamálanefnd óskar eftir að fá aðgang að rekstrarfé til þeirra verkefna sem nefndin
annast fyrir félagið, samkvæmt eftirfarandi viðmiðunartölum:
1. Erlent samstarf kr. 150.000
2. Kostnaður vegna ráðstefnu kr. 50.000
3. Aðkeypt aðstoð kr. 50.000
4. Gagnaöflun kr. 25.000
5. Fundakostnaður kr. 25.000
Áætluö fjárþörf alls kr. 300.000
14.3.7 Lokaorö
Á starfsárinu var höfð samvinna við Kynningarnefnd VFÍ um gerð kynningarmöppu, sem
m.a. er ætlað að svara helstu spurningum þeirra sem óska eftir inngöngu í félagið eða vilja
sækja um leyfí til að nota verkfræðingstitilinn. Þá hélt nefndin sérstakan fund með Jóni Atla
Benediktssyni, dósent og skorarformanni við verkfræðideild HÍ. Jón Atli er fulltrúi HÍ í
SEFI, samtökum verkfræðiháskóla í Evrópu. Tilefni fundarins var afar slæm útreið sem verk-
fræðinemar á 1. námsári hlutu í Stærðfræðigreiningu 2, annað árið í röð. í framhaldi af fund-