Neytendablaðið - 01.05.1993, Síða 19
• •
Bílasölur
Nú liggja fyrír drög að
frumvarpi um sölu notaðra
bíla og er gert ráð fyrir að
viðskiptaráðherra leggi
frumvarpið fyrir Alþingi í
haust.
Frumvarp fyrir þingið í haust
Viðskiptaráðherra stefnir að því að leggja frumvarp til laga um sölu notaðra
bíla fyrir Alþingi í haust. Nú liggja fyrir drög að frumvarpi og í því er að finna
mikilvæg ákvæði um skyldur bílasala, skilyrði fyrir leyfi til bílasölu, tryggingar og
fleira. Komið hefur fram að talsmenn neytenda telja ófremdarástand ríkja í við-
skiptum með notaða bíla. Talsmenn Neytendasamtakanna og Félags íslenskra
bifreiðaeigenda hafa hvatt til lagasetningar um starfsemi bílasala með skýrum
ákvæðum um réttindi, skyldur og ábyrgð þeirra.
Ingi Björn Albertsson alþing-
ismaður gerði ítrekaðar til-
raunir til þess að vinna slíkri
lagasetningu fylgi á Alþingi
fyrir nokkrum árum en þing-
ið sá ekki ástæðu til þess að
afgreiða málið þá.
í drögum að frumvarpi við-
skiptaráðherra er meðal ann-
ars kveðið á um að óheimilt
sé að hafa með höndum versl-
un eða umboðssölu með not-
uð ökutæki nema að fengnu
sérstöku leyfi sýslumanns.
Auk þess skuli bflasalar
hafa fullgilt verslunarleyfi.
Gert er ráð fyrir að bflasal-
ar leggi fram tryggingu til
greiðslu kostnaðar og tjóns
sem þeir kunna að valda við-
skiptavinum sínum, hvort sem
um er að ræða ásetning eða
gáleysi.
Frumvarpsdrögin gera ráð
fyrir að fylgt verði stöðluðum
kaupsamnings- og afsalseyðu-
blöðum sem gefin verði út af
viðskiptaráðuneytinu. Einnig
skal samkvæmt drögunum
fylgja lýsing á ástandi öku-
tækisins og notkunarferli
þess, auk yfirlýsingar um veð-
bönd og válryggingar. Einnig
skal fylgja vottorð úr öku-
tækjaskrá, sem sýni ótvírætt
að seljandinn sé eigandi öku-
tækisins. Gert er ráð fyrir að
bflasalinn skuli eftir föngum
staðfesta að lýsing ökutækis
og upplýsingar um það séu
sannleikanum samkvæmt. I
drögunum er ákvæði um að
ráðherra geti sett nánari reglur
um upplýsingar sem fylgja
skuli ökutækinu og skyldur
bifreiðasala í því sambandi.
Hér verður ekki farið nánar
út í efni frumvarpsins, enda er
aðeins um drög að ræða.
Sem fyrr segir telja tals-
menn neytendasamtaka, sem
látið hafa sig málið varða, að
lagasetning geti aukið mjög
öryggi þeirra sem selja og
kaupa notaða bíla. Mál sem
borist hafa Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda og Neytenda-
samtökunum sýna að full þörf
er á lagasetningu af þessu
tagi.
Astæða er til að hvetja þá
sem hyggjast kaupa notaða
bíla að gefa sér góðan tíma og
kynna sér málin vel. Þeim
sem óska eftir nánari upplýs-
ingum og ráðleggingum er
bent á 4. tölublað Neytenda-
blaðsins í fyrra.
NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU
ACO hf., Skipholti 17
Alþýðusamband íslands,
Grensásvegi 16a
Atlantik. Kringlunni 4
Bakarí Friðriks Haraldssonar,
Kársnesbraut 96
Bandalag háskóla-
menntaðra rikisstarfsmanna,
Lágmúla 7
Bifreiða verkstæði
Þorsteins, Dalshrauni 11
Bifreiðaverkstæðið Áki,
Sæmundargötu 1b,
Sauðárkróki
Bílasalan Auðvitað,
Höfðatúni 10
Bíliðnafélagið,
Suðurlandsbraut 30
Björn og Guðni sf. -
skrúðgarðyrkjumeistarar,
Kaplahrauni 7c
Bossanova hf. - skóverslun,
Kringlunni 8-12
Bónus, Skútuvogi 13, Iðufelli
14, Reykjavíkurvegi 72,
Smiðjuvegi 2, Faxafeni 14
og Seltjarnarnesi
Brekkuval hf., Hjallabrekku 2
Búnaðarfélag íslands,
Bændahöllinni Hagatorgi
Dynjandi hf., Skeifunni 3h
Efnalaug Garðabæjar,
Garðatorgi 3
Efnalaugin Hreinn,
Hólagarði, Lóuhólum 2-6
Einar Farestveit & Co,
Borgartúni 28
Faco hf., Laugavegi 89
Fatahreinsun Kópavogs,
Hamraborg 7
Félag blikksmiða,
Suðurlandsbraut 30
Félag bókagerðarmanna,
Hverfisgötu 21
Félag flugmálastarfsmanna,
Reykjavíkurflugvelli
Félag framreiðslumanna,
Óðinsgötu 7
Félag íslenskra flugumferðar-
stjóra, Grensásvegi 16
Félag opinberra starfsmanna
á Austurlandi.Garðarsvegi 6,
Seyðisfirði
Félag opinberra starfsmanna á
Suðurlandi, Hveragerði
First, Strandgötu 30
Fiskmarkaðurinn hf.,
Óseyrarbryggju
Frami, Fellsmúla 26
Gala - tískuhús, Laugavegi 101
Hár-Expó, Laugavegi 33
Heimsklúbbur Ingólfs,
Austurstræti 17
Hjólbarða verkstæðið,
Asgarði, Garði
íþróttakennarafélag íslands,
Kennarahúsinu v/Laufásveg
Kaupsel hf., Laugavegi 25
Kennarasamband íslands,
Kennarahúsinu v/Laufásveg
Kringlusport, Borgarkringlunni
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993
19