Neytendablaðið - 01.05.1993, Qupperneq 21
Þessi grein er sú fjórða í röð greina sem Neytendablaðið birtir í
samvinnu við Ljóstæknifélag Islands, en markmið þess er að
stuðla að betri lýsingu og sjónskilyrðum og veita almenna,
hlutlausa fræðslu um allt er varðar lýsingu og sjónstarf. Þeir
sem vilja leita ráða um lýsingu á heimili sínu geta snúið sér til
Neytendablaðsins með fyrirspurnir. Blaðið mun leita svara við
þeim hjá Ljóstæknifélaginu. Vinsamlega skrifið til: Neytenda-
blaðið - lýsing, Skúlagötu 26, 101 Reykjavík.
Bergur Jónsson,
rafmagnsverkfræðingur
og forstjóri Rafmagns-
eftirlits ríkisins, skrifar
tengingu, nema þeir séu með
tvöfalda einangrun eða fyrir
smáspennu. Ef lampi er með
tvöfalda einangrun eða notuð
er smáspenna, má ekki jarð-
tengja hann og gildir þá einu
úr hvaða efni lampinn er.
■ Brunahætta
Of mikil hitamyndun getur
orðið af ýmsum ástæðum í
lömpum. Algengast er að not-
aðar séu of stórar perur (mælt
í wöttum, W) en ýmsar aðrar
aðstæður geta legið til þess:
Heft loftstreymi (minnkuð
kæling), of lítið rými um-
hverfis lampann (á oftast við
um innfellda lampa), lausar
tengingar og bilaðar straum-
festur í flúrlömpum.
Hitamyndun í lömpum
verður skiljanlegri þegar á
það er bent að í venjulegum
glólampa breytast einungis
fimm prósent af orkunni, sem
lampinn tekur, í ljós. Afgang-
urinn verður að varma. Sé
dæmi tekið um 60 W peru,
breytast 3 W í ljós en 57 W í
varma.
í smáflúrpípum (“sparper-
um”) breytast hins vegar 20
prósent orkunnar í ljós. 13 W
smáflúrpípa gefur frá sér
heldur meira ljós en 60 W
glópera og notar til þess tæp 3
W, en aðeins rúm 10 W breyt-
ast í varma.
Smáflúrpípur eru heldur
fyrirferðarmeiri en glóperur.
Því er ekki alltaf unnt að
breyta lampa á þann hátt að
nota smáflúrpípu í stað gló-
peru.
■ Fylgið leiðbeiningum!
Hafa ber í huga, þegar merkt
er á lampa til dæmis “Max 60
W”, að ekki má nota stærri
glóperu í lampann en 60 W.
Stærri pera getur valdið tjóni
á lampanum og umhverfi
hans. Ljóskastara ber ávallt að
setja upp samkvæmt leiðbein-
ingum framleiðenda. Séu þeir
innfelldir í loft, verður að
vera nóg rými bak við þá, svo
að hiti safnist ekki fyrir.
Á ljóskösturum á að vera
greinilegt merki um það,
hversu nálægt brennanlegum
hlutum ljóskastarinn má vera.
Notið ávallt rétta gerð af per-
um. Kastaraperur eru ýmist
með speglum sem varpa ljós-
inu fram á við, aftur fyrir sig
á vegg eða á lampann sjálfan,
eða spegillinn beinir ljósinu
til hliðar. Farið ávallt eftir
leiðbeiningum sem framleið-
andi lampans gefur.
■ Margt að varast
Látið aldrei brennanlega hluti
liggja upp við óvarða peru.
Handlampar og önnur vinnu-
Ijós eiga ávallt að vera með
hlífðargleri og hlífðameti en
aldrei minna en með öðru
hvoru þeirra. Sé pera í vinnu-
ljósi óvarin, getur hún valdið
slysi og bruna ef hún brotnar.
Spennuhafa hlutar pemnnar
eru þá óvarðir gegn snertingu
og hitinn frá glóandi þráðum
Hvað þýða merkin?
®,Þetta merki táknar jarðtengingu.
Gula og græna tengiþráðinn á að
tengja þar sem þetta merki er.
Athugið hvaða raftæki eiga að
vera jarðtengd.
Raftæki með þetta merki eru með
tvöfalda einangrun. Þau má ekki
jarðtengja.
Raftæki með þetta merki má
heldur ekki jarðtengja.
Á vönduðum kösturum er merk-
ing sem sýnir þá lágmarksfjar-
lægð frá brennanlegu efni (t.d.
gluggatjöldum og þess háttar)
sem framleiðandinn ábyrgist. Sé
kastarinn hafður nær, er hætta á
íkveikju vegna hitans frá honum.
fPera af þessari gerð varpar Ijós-
inu til baka. Merkið þýðir að nota
má peru af þessari gerð í viðkom-
andi lampa. Þar sem þetta merki
er ekki, ætti ekki að nota svona
peru.
Mörg rafföng þurfa að vera varin gegn raka, ryki
og vatni, til dæmis lampar í baðherbergi og
þvottahús, svo og útiljós. Tákn fyrir raka- eða
vatnsvörn er vatnsdropi, eða stafirnir IP
ogtvær tölur.
Einn dropi (IP 21 og IP 22) táknar
að tækið sé varið gegn raka, gufu
og dropum, til dæmis til notkunar í
baðherbergi.
Dropi í ferningi (IP 23) táknar að
tækið sé regnvarið, en þó öruggast
að nota það í skjóli, til dæmis úti-
Ijós undir skyggni.
A Dropi í þríhyrningi (IP 34 og IP 44)
/táknar að raffangið sé skvettvarið,
/ A \ það er þoli vatnsgusur úr öllum
/ ^ \ áttum.
Tveir þríhyrningar með dropa (IP
55 og IP 66) tákna vörn gegn
vatni sem sprautað er úr öllum
áttum.
MAX 60 W
Þetta táknarað hámarksstærð peru í lampann er 60
W. Sé stærri pera notuð, ábyrgist framleiðandinn ekki
að lampinn þoli þann hita sem þá myndast.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993
21