Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1993, Page 29

Neytendablaðið - 01.05.1993, Page 29
Leiðbeiningaþjónustan Fínt, dýrt og viðkvæmt Því miður er nokkuð algengt að félagsmenn komi til okkar með flíkur sem hafa eyðilagst í þvotti eða hreinsun. Oft er þetta vegna þess að fötin hafa ekki verið þvegin í samræmi við þvottamerkin eða þvottamerkin hafa verið óljós. Jafnvel eru dæmi um flíkur án þvottamerkja og flíkur sem ekkert má gera við. Sérstaklega vil ég hvetja fólk til að meðhöndla varlega fatnað sem gefinn er upp fyrir handþvott og vél- arþvott á 30 gráðum. Slíkur fatnaður er gjarna dýr og fínn, segir Sesselja Ásgeirs- dóttir, starfsmaður kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna, í samtali við Neytendablaðið. Kvörtunarmál og fyrirspurnir vegna fatnaðar koma inn á borð til Sesselju. Af ýmsum ástæðum er það svo að skápar í skrifstofu hennar eru iðulega fullir af fatnaði sem ágrein- ingur stendur um. Að sögn Sesselju verða neytendur oft að bíta í það súra epli að standa uppi bótalausir vegna þess að þeir hafa ekki með- höndlað fatnaðinn rétt. Jafn- vel í slíkum tilvikum eru þó dæmi um að seljendur komi til móts við neytendur. - Fínar, dýrar peysur eru algengt vandamál. Þær eru gjarna gefnar upp fyrir hand- þvott eða vélarþvott á 30 gráðum. Hið síðarnefnda get- ur verið í lagi í þvottavélum með kerfi sem tekur aðeins örfáar mínútur, segir Sesselja. Hún segir að þegar flík sé merkt fyrir 30 gráður eða handþvott, sé átt við kalt vatn. Þeir sem ekki hafa mæli, geta dýft hendi ofaní vatnið. Finni þeir hvorki yl né kul, er vatn- ið um það bil 30 gráður. Sé notað þvottaduft er nauðsyn- legt að leysa það vel upp í heitu vatni til þess að fyrir- Sesselja Asgeirsdóttir: Selj- endur eiga að geta gefið upp- lýsingar um meðhöndlun þess sem þeir selja. byggja að korn úr þvottaduft- inu festist í flíkinni og leysi upp lit. Um það eru mörg dæmi. Athugið að velja þvottaduft eða þvottalög í samræmi við það sem þvegið er. Best er að fá nánari upp- lýsingar um það í versluninni. Æskilegt er að viðkvæmur þvottur og handþvottur taki ekki meira en eina til þrjár mínútur. Varist að láta flíkina liggja í bleyti í sápuvatni, það hefur oft farið illa með fatnað, einkum litaðar flrkur. Notið ekki of mikið þvottaefni. At- hugið að skola flíkina vel að þvotti loknum. Takið hana upp úr skolvatninu, leggið beint á handklæði, rúllið því upp og þrýstið vel á. Slík vinding fer best með flíkina. Hún verður létt og mjúk við- komu. Leggið flfkina loks á handklæði eða hengið hana upp eftir aðstæðum. - Mér finnst ástæða til að hvetja fólk til að spyrja selj- endur um meðhöndlun við- kvæms fatnaðar. Seljendur eiga að geta gefið góðar upp- lýsingar um meðferð þess sem þeir selja, segir Sesselja. Fókusmálið leyst Lesendur Neytendablaðs- ins hafa fengið fréttir af kvörtunarmáli sem kennt er við Fókus. Nú getur blaðið fært þá ágætu frétt að ntálið hefur verið leyst farsællega fyrir milligöngu kvörtunar- þjónustunnar. Málið var þannig vaxið að myndavél sem farið var með til viðgerðar í verslun- inni Fókus týndist. A ýmsu gekk í samskiptum viðkom- andi neytanda og kvörtunar- þjónustu Neytendasamtak- anna við eigendur Fókus en nýlega ákváðu eigendur að bæta týndu myndavélina með nýrri. Rocký endurgreiddi Verslunin Rocký í Ólafs- vík hefur endurgreitt viðskiptavini sem hafði snú- ið sér til Neytendasamtak- anna með frásögn af við- skiptum við Rocký. Málið hefur verið leyst í fullri sátt. Sagt var frá tildrögum málsins í Neytendablaðinu fyrir jól, og því ekki nenta sanngjarnt að greina frá hin- um farsælu málalokum. Neytandinn hafði keypt skó á dóttur sína en þegar heim var komið uppgötvaði hún að skórnir voru sinn af hvorri stærð. Hún vildi þá skila skónum en eigandi verslunarinnar áttaði sig ekki fyllilega á skyldum sínum í þessu sambandi. Nú er málið hins vegar úr sög- unni. Þessi peysa var einu sinni ífullorðinsstœrð. Hún var gefin uppfyrir vélarþvott á 30 gráðum, var þvegin þannig í venjulegu þvottakerfi og árangurinn varð eins og sjá má á myndinni. NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993 29

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.