Neytendablaðið - 01.05.1993, Side 30
Alþjóðadagur neytendaréttar
Viðskiptasiðferði
stórfyrirtækjanna
Alþjóðasamtök neytenda beindu sviðsljósinu að
starfsemi fjölþjóðlegra stórfyrirtækja á alþjóðadegi
neytendaréttar, 15. mars. Talið er að fyrirtæki af
þessu tagi ráði yfir 70 af hundraði heimsviðskipta,
en starfsemi þeirra stangast oft á við hagsmuni
neytenda, ekki síst í þróunarlöndunum. Neytendur
í þróunarlöndum mega oft þola að þeim séu boðnar
vörur sem bannaðar eru í hinum vestræna heimi.
Alþjóðasamtök neytenda hafa
nú í ellefu ár í röð vakið at-
hygli á sérstökum baráttu-
málum neytenda í tilefni af al-
þjóðadegi neytendaréttar.
I fyrra voru umhverfismálin
á dagskrá, nú var röðin komin
að starfsemi íjölþjóðafyrirtækj-
anna. Eins og fram kemur ann-
ars staðar í blaðinu völdu
Neytendasamtökin þann kost
að leggja áherslu á það sem
meira brennur á íslenskum
neytendum; fjármál heimil-
anna.
Neytendasamtök víða um
heim hafa um langt skeið unn-
ið að því að hafa áhrif á starf-
semi fyrirtækja af þessu tagi,
meðal annars með því að knýja
á um setningu reglna á vegum
Sameinuðu þjóðanna.
Fyrirtæki sem starfa víða
um heim hafa hvað eftir annað
verið staðin að því að flytja
vörur, sem ekki standast eftirlit
í einu landi, til annars lands þar
sem eftirlit er ekki jafn virkt
eða reglur ekki jafnstrangar.
Þetta á meðal annars við um
eiturefni ýmiss konar og lyf.
Árið 1988könnuðu hollensk
samtök hvort lyf sem dæmd
voru ólögleg í löndum Evrópu-
bandalagins væm flutt til ann-
arra markaðssvæða. I Ijós kom
að 75 tegundir slíkra lyfja vom
á markaði í Afríku, Asíu og
víðar.
Til þess að vinna gegn þess-
HVERT GETUM IflÐ LEITAÐ?
Félag íslenskra
bifreiðaeigenda
Upplýsingar, leiðbeiningar
og aðstoð vegna
bifreiðaeignar, viðskipta og
þjónustu. Borgartún 33,
S. 91-629999,
kl. 9-17 virka daga.
Húseigendafélagið
Upplýsingar um eign, rekst-
ur og leigu húsnæðis.
Aðstoð einungis veitt fé-
lagsmönnum. Síðumúla 29,
S. 91-679567.
Samkeppnisstofnun
Kvartanir og ábendingar
vegna vöruverðs. Eftirlit
með samkeppni og við-
skiptaháttum, röngum,
ófullnægjandi eða villandi
upplýsingum. Laugavegi
116, gengið inn frá
Rauðarárstíg, s. 91-27422,
virka daga kl. 8-16.
Kvörtunarnefnd
vegna ferðamála
Neytendasamtökin og Fé-
30
lag ísl. ferðaskrifstofa. Upp-
lýsingar á skrifstofu NS,
s. 91-625000.
Kvörtunarnefnd NS
og Félags efnalaugaeigenda
Fjallar um kvartanir vegna
þjónustu efnalauga. Upp-
lýsingar á skrifstofu NS.
Kvörtunarnefnd um
byggingarstarfsemi
Neytendasamtökin, Meist-
ara- og verktakasamband
byggingamanna og Húseig-
endafélagið. Fjallar um
kvartanir vegna þjónustu
byggingaverktaka (nýbygg-
ingar, viðhald, endurbæt-
urj.Upplýsingar á skrifstofu
NS, M.V.B. eða Húseig-
endafélagsins.
Leigjendasamtökin
Ráðgjöf og leiðbeiningar
við gerð leigusamninga.
Lögfræðiaðstoð við leigj-
endur. Leit að húsnæði fyrir
félagsmenn. Hverfisgötu
8-10, s. 91-23266, kl. 9-17
virka daga.
LET'S WORK TOGETHER
For best busineis praitke to meet people's needs
um starfsháttum hafa neyt-
endasamtök víða um heim með
sér samstarf, nokkurs konar al-
þjóðalögreglu neytenda. Sam-
starfið felst í því að þegar ólög-
leg vara eða hættuleg upp-
götvast í einu landi, er upplýs-
ingum komið á framfæri við
samtök neytenda í öðmm lönd-
um svo koma megi í veg fyrir
að varan komist þar á markað.
Annað áberandi vandamál,
sem við er að glíma, er til-
hneiging stórfyrirtækja til þess
að flytja starfsemi sína þangað
sem vægar kröfur eru gerðar
um mengunarvamir, eða þang-
að sem auðvelt er að sniðganga
þær reglur sem þó eru fyrir
hendi.
Neytendur í þróunarlöndun-
um verða gjama fyrir barðinu á
þessum starfsháttum fyrirtækja
og veiklyndi stjómvalda eða
Alþjóðasamtök neytenda
beindu athyglinni að við-
skiptasiðferði fjölþjóðlegra
fyrirtœkja á alþjóðadegi neyt-
endaréttar, 15. mars.
spillingu í viðkomandi lönd-
um. Eitt frægasta dæmið um
þetta var slysið í Bhopal á Ind-
landi, þar sem eiturefnaverk-
smiðja sprakk með hörmuleg-
um afleiðingum.
Alþjóðasamtök neytenda
leggja áherslu á að samræma
reglur og eftirlit með starfsemi
fjölþjóðlegra fyrirtækja, svo
það sem ekki teljist boðlegt
neytendum í einu landi teljist
það heldur ekki í öðmm.
Alþjóðasamtökin telja mikil-
vægt að samtök neytenda taki
þátt í mótun reglnanna.
Leiðbeiningastöð heimil-
anna
Kvenfélagasamband ís-
lands. Upplýsingar um
heimilisstörf, heimilistæki
og heimilishald. Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14, 3.
hæð, s. 91- 12335. Skrif-
stofu- og símatími kl. 9-17
virka daga.
Nefnd um ágreiningsmál í
heilbrigðisþjónustu
Fjallar um skriflegar kvart-
anir eða kærur vegna heil-
brigðisþjónustu.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, Laugavegi
116, eða landlæknis-
embættið.
Siðanefnd Blaðamanna-
félags íslands
Fjallar um skriflegar kærur
vegna meintra brota á siða-
reglum blaðamanna.
Síðumúla 23, s. 91-39155.
Siðanefnd um auglýsingar
Samband íslenskra auglýs-
ingastofa, Neytendasam-
tökin og Verslunarráð ís-
lands. Fjallar um skriflegar
kærur vegna ólögmætra
auglýsinga. Háteigsvegi 3,
S. 91-29588.
Tryggingaeftirlit ríkisins,
neytendaþjónusta
Upplýsingar um atriði er
varða tryggingar. Suður-
landsbraut 6, s. 91-685188,
miðvikudaga til föstudaga
kl. 10-12.
Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga
Kvartanir frá almenningi
vegna ástands matvæla,
merkinga á vörum, um-
gengni á opinberum stöð-
um, hávaða eða óþrifnaðar
í umhverfinu.
Markaðseftirlit
Eftirlit með rafföngum, leik-
föngum og hættulegri fram-
leiðsluvöru. Bifreiðaskoðun
íslands, s. 673700.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1993