Neytendablaðið - 01.04.1998, Blaðsíða 14
Heilsa
Varað við sólarlömpum
Það er ekki hættulaust að
sóla sig í sólarlömpum.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) og fjölmargir vísinda-
menn vara við því. Hættan á
húðkrabba er einfaldlega of
mikil. En það er vissulega
freistandi á löngum vetrar-
dögum, ekki síst fyrir þá
yngri, að fara á sólbaðsstofu
til að fá örlítinn lit á húðina.
En hugsaðu þig um fyrst. Áttu
erfitt með að verða brúnn,
ertu með mikið af fæðingar-
blettum, er krabbamein í ætt-
inni eða hefur þú brunnið illa
í sól sem barn? Ef eitthvað af
þessu á við þig þarftu að fara
varlega í sakirnar bæði hvað
varðar sól og sólarlampa.
Útfjólubláa geisla er að
fínna jafnt í geislum frá sól-
inni og sólarlömpum. Alþjóð-
lega skammstöfunin UV er
oft notuð um útfjólubláa
geisla. Þessir geislar geta
valdið mismunandi tegundum
af krabbameini og er sortu-
æxli það alvarlegasta. Sortu-
æxli myndast í litarfrumum
og líkist oft fæðingarbletti.
Sortuæxlum hefur fjölgað
mjög á síðustu árum.
Reynslan af sólar-
lömpum er ennþá lítil
Það liggur fyrir að UV-geislar
gera húðina hrukkótta, sér-
staklega ef viðkomandi reykir
einnig. Ef augun eru ekki var-
in sérstaklega getur hom-
himnan skaðast og jafnvel
myndast ský á augun. Rann-
sóknir benda líka til þess að
ónæmiskerfi líkamans minnki
við of mikla eða sterka UV-
geislun. Of mikil UV-geislun
er sérstaklega skaðleg ung-
lingum þar sem þessir geislar
hafa mest áhrif á líffærakerfi
sem er að vaxa.
Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in mælir með því að sólar-
lampar séu ekki notaðir til
sólbaða en hún tekur líka
fram við þá sem ekki vilja
sinna þeim ráðum að fara alls
ekki í ljós meira en tvisvar í
viku og 30 sinnum á ári.
14
/ Frakklandi er börnum og unglingum innan 18 ára aldurs óheimill aðgangur að sólbaðsstofum.
Reynslan af sólarlömpum er
hins vegar takmörkuð, enda
hafa þeir aðeins verið á mark-
aði í um 20 ár.
UVA-geislar eru
ekki hættulausir
UV-geislar em orkunkir og
geta valdið skaða á húðinni.
Sólin gefur frá sér þrjá mis-
munandi UV-geisla, UVA,
UVB og UVC. Ósonlag lof-
hjúpsins verndar okkur fyrir
UVC-geislum. UVA-geislam-
ir gera okkur brún en UVB-
geislar gefa húðinni roða og
við brennum af völdum þeirra
geisla við of mikið sólbað.
Sólarlampi gefur að mest-
um hluta frá sér UVA-geisla
og 3-4 sinnum meira en nátt-
úrulegt sólskin. UVB-geislar
em orkuríkari. Þessir geislar
gera það að verkum að litar-
myndunin fer af stað þegar
þeir dreifast í yfírhúðinni og
húðin verður þykkari og þoln-
ari fyrir fleiri UV-geislum.
Samkvæmt nýjustu rann-
sóknum em UVA-geisIar ekki
eins hættulausir og talið hefur
verið. Þessir geislar fara langt
ofan í húðina. Sólarlampar
gefa frá sér svo mikið af
UVA-geisIum að húðin getur
fengið dökkbrúnan lit, en hef-
ur ekki að sama skapi myndað
vörn gegn UVB-geislum þar
sem ekki er mikið af þeim í
sólarlömpum. Því getur mað-
ur brennst illa í sól þrátt fyrir
sólbrúnan húðlit. Að nota sól-
arlampa til að verða brúnn
áður en ferðast er til sólar-
landa gefur því ekki neina
sérstaka vernd, heldur getur
aukið hættuna.
Sólarlömpum er skipt upp í
fjóra flokka eftir styrk og
notkun. Aðeins ein tegund,
UV-3, er leyfileg hér á landi í
fegrunarskyni, þ.e. til ljósa-
baða í sólbekkjum. Þessi teg-
und líkist mest sólarljósinu.
Hafa þarf í huga að það getur
verið varasamt að fara á sól-
baðsstofur í útlöndum þar
sem aðrar tegundir sóllampa
eru Ieyfðar sums staðar.
Geislamir frá sólarlömpum
af gerðinni UV-3 eru að meg-
inhluta UVA-geislar (með
langri bylgjulengd) en einnig
í takmarkaðra mæli UVB-
geislar (með stuttri bylgju-
lengd). Geislar með stuttri
bylgjulengd eru orkumeiri og
hættulegri en þeir sem em
með langri bylgjulengd.
Styrkur UV-geislunar má ekki
vera meiri en frá sólinni að
sumri til. Þau mörk er rétt að
taka alvarlega, enda er UV-
geislun frá sólarlampa álíka
og frá sól við miðbaug, og
hefur UV-tölugildi 12. UV-
tölugildið, sem er á bilinu 0 til
15, er mælikvarði á útfjólu-
bláa geislun og skaðsemi
hennar. Sem dæmi má nefna
að á sólríkum sumardegi í
Svíþjóð er UV-tölugildið 6.
Ekki liggja fyrir tölur um
hvað það er hér á landi en
ætla má að það sé eitthvað
lægra vegna hnattstöðu.
Sólarlampar verða að
vera viðurkenndir
Sá sem ætlar að opna sólbaðs-
stofu verður að hafa til þess
leyfi viðkomandi heilbrigðis-
eftirlits og sá sem flytur inn
sólarlampa þarf leyfi Geisla-
vama ríkisins fyrir innflutn-
ingnum. Leyfi til innflutnings
er því aðeins veitt að sólar-
lampinn sé í flokki UV-3
miðað við þær pemr sem
framleiðandi gerir ráð fyrir að
NEYTENDABLAÐIÐ - apríl 1998