Neytendablaðið - 01.04.2003, Page 17
Samanburður á orkudrykkjum, kóki og vatni. ! m o m B s v| 1 W i s CMBI
jjJÉ
V
Tegund: Coca Cola Magic Blue Pig Egils Orka Faxe Kondi Red Devil Perfect Carbo Power Vatn
Verð: 179 kr./l 620 kr./l 596 kr./l 230 kr./l 179 kr./l 196 kr./l 418 kr./l 0 kr./l
Verslun: Nóatún Hagkaup Hagkaup Hagkaup Hagkaup Bónus Hagkaup næsti krani
Magn kolvetnis á 100 g: 11 sykur 11 a.m.l. sykur 10,9 a.m.l. sykur 12,5 a.m.l. sykur 10 a.m.l. sykur 15 sykur 20 einfaldar og flóknar sykrur 0 enginn sykur
Orka pr. 100g: 45 kcal 40 kcal 45 kcal 50 kcal 41 kcal 62 kcal 80 kcal 0 kcal
Örvandi efni: koffín koffín koffín ginseng gvarana koffín ginseng gvarana koffín koffín te engin örvandi efni
Lofað á umbúðum: Engin orkuloforð „Energy kick“ „Power your body“ „Recovery" „Original orkudrykkur" „Work smarter - play harder - unleash the pig“ „Kraftmikill orkudrykkur" „Med druesukker" (Dæmdur óhæfursem orkudrykkur í könnun dönsku Neytenda- samtakanna). „Energy drink" „Higly vitalizing" „When you need the maximum - physi- cally and mentally." „High energy" „Frískandi orkudrykkur" Engin loforð. Ráðlagt af þjálfurum til að viðhalda vökvajafn- vægi. Heimþekkt gæðavara.
Sífellt fleiri fá ofnæmi af völdum snyrtivara
Samkvæmt grein í danska blaðinu
Jyllands-Posten eru margir Danir með
ofnæmi fyrir algengum rotvarnarefnum
í snyrtivörum. Viðamikil könnun í 16
rannsóknarmiðstöðvum í Evrópu sýnir
að undanfarin ár hefur orðið uggvæn-
leg aukning í ofnæmiseinkennum eins
og kláða, bólgu og exemi af völdum
rotvarnarefnisins „Methyldibromo Cluta-
ronitil" eða MG. Danska umhverfisstof-
nunin ráðleggur ofnæmissjúklingum að
forðast vörur sem innihalda þetta efni.
Jeanne Duus er yfirmaður rannsóknar-
deildar Amtsjúkrahússins í Gentofte.
Hún segir að þeim hafi fjölgað verulega
síðustu ár sem fá ofnæmi af MG og sé
meira en af nokkru öðru rotvarnarefni í
snyrtivörum.
„Það hafa verið vandamál með önnur
rotvarnarefni en aldrei neitt í líkingu við
þetta," segir Jeanne Duus og bætir við:
„Bara í ár höfum við séð fjöldamörg
slæm ofnæmistilfelli hjá fólki sem annars
er heilbrigt og hefur ekki flokkast undir
ofnæmissjúklinga. Þá erum við að tala
um ofnæmisviðbrögð í andliti með ból-
gum í kringum augun sem og exem á
höndum. Við erum ekki vön að sjá svona
mikil ofnæmiseinkenni út af snyrtivörum.
Sumir sjúklinganna hafa jafnvel þurft að
vera frá vinnu svo vikum skiptir."
Það er ekki þrautalaust fyrir neytendur
að fylgjast með öllum þeim aragrúa
efna sem talin eru vera skaðleg. Það er
þó bót í máli að samkvæmt lögum er
skylt að hafa innihaldslýsingu á öllum
snyrtivörum. Ofnæmissjúklingum er
ráðlagt að forðast vörur með MG auk
þess sem ýmis ilm- og litarefni eru oft
talin ofnæmisvaldandi.
NEYTENDABLAOIÐ 1.18L. 2003 17