Neytendablaðið - 01.04.2003, Síða 24
AÐGANGUR AÐ
VERALDARVEFNUM
mm
Aðgengi að upplýsingum á veraldarvefn-
um er sífellt að aukast og ekki sér fyrir
endann á þróun þeirrar tækni sem gerir
tengingar mögulegar. Tæknin verður
sífellt hraðvirkari, langdrægari og ekki
síst ódýrari. En um leið eykst notkun al-
mennings á þessari tækni og þess vegna
er mikilvægt að hafa grunnþekkingu á
eðli mismunandi tengimöguleika við ver-
aldarvefinn. í þessari grein verður reynt
að skýra getu þess tæknibúnaðar sem nú
er mest notaður á heimilum og smærri
fyrirtækjum.
Upphringisamband, sítenging, bandvídd,
gagnamæling - allt eru þetta atriði sem
menn kannast við úr auglýsingum síma-
og netfyrirtækja án þess að þau séu
skýrð út nánar.
Upphringisamband: Þegar notast er við
upphringisamband er venjuleg talsíma-
lína notuð til að tengja við veraldarvef-
inn. Greitt er fyrir tenginguna líkt og fyrir
venjulegt símtal.
Sítenging: Þegar notandi er sítengdur
við veraldarvefinn þarf ekki að tengjast
í hvert skipti sem þörf er á tengingu held-
ur er sífellt samband og aðeins greitt fyrir
gagnaflutning en ekki þann tíma sem not-
andinn er tengdur.
Bandvídd: Hér er átt við gagnaflutn-
ingshraðann. Tölvusamskipti byggjast á
straumi bita og er notast við eininguna
kbit eða kílóbita á sekúndu. Sem dæmi
er algengt að hljóðupptökur sem sóttar
eru á veraldarvefinn þurfi hraðann 32 kb
og hreyfimyndir eins og upptökur af sjón-
varpsfréttum þurfa 93 kb hraða.
Gagnamæling: Umfang tölvugagna er
mælt í bætum (enska: bytes) og er oftast
notuð einingin KB eða kílóbæt. Eitt A4-
textaskjal í Word-ritvinnslu er til dæmis
um 30 KB. Lítil Ijósmynd á heimasíðu er
um 15 KB. Meðalstór heimasíða er um
150 KB að stærð og ef sótt er 30 mínútna
upptaka af fréttatíma sjónvarps þá er um-
fangið um 10.000 KB. Aðeins eru mæld
þau gögn sem eru sótt (niðurhal, enska:
download) og venjulega aðeins það sem
er sótt frá útlöndum. Athugið að 1.000
KB = 1 MB (megabæt).
Til að geta metið hvaða tækni hentar
hverjum og einum þarf neytandinn að
gera upp við sig hve hraðvirkt sambandið
þarf að vera, hver fastur mánaðarlegur
kostnaður má vera og hvað kostnaður
sem fylgir notkun má vera mikill.
56K mótald: Flestar tölvur hafa 56K-
mótald sem staðalbúnað. Með því er
hægt að tengjast um venjulega talsíma-
línu með upphringisambandi. Þótt nafnið
gefi annað til kynna er
hámarks bandvídd um
46 kb og ef notandi
er langt frá símstöð og
símalínan léleg minnkar
hraðinn eftir því. Þessi
tækni hentar vel þeim
sem nota veraldarvefinn
lítið og þurfa ekki hrað-
virkt samband. Hægt er
að fá ókeypis aðgang
að tölvupósti og verald-
arvefnum með þessari
tækni og aðeins er
greitt fyrir upphringisam-
bandið. Þeir sem nota
þennan tengimöguleika mikið eru fljótir
að finna hvað sambandið er hægvirkt og
notkunin dýr.
ISDN-tæknin notar venjulega símalínu
og hentar vel þeim sem nota netið hóf-
lega mikið. Símalínunni er þá skipt í þrjár
aðskildar rásir. Tvær eru talsímarásir sem
hægt er að nota sem upphringisamband
við veraldarvefinn og gefa hvor um sig
64 kb hraða. Þriðja rásin er um 9 kb
og notast við númerabirtingu og aðra
sérþjónustu en einnig sem sítenging
við veraldarvefinn ef keypt er þjónusta
sem heitir ISDN+. Kosturinn við ISDN
er að tengingin gefur stafrænt samband
og er það mun hraðvirkara en venjulegt
56K-mótald. Einnig er hægt að tengjast
veraldarvefnum og tala í síma samtímis
og ef báðar rásirnar eru notaðar sem
upphringisamband má fá hraða upp að
128 kb. Hámarksfjarlægð notanda frá
símstöð er um 10 km en mögulegt er að
magna sambandið upp í 20-30 km eftir
aðstæðum.
I ADSi-tækninni er notuð venjuleg síma-
lína og hægt er að fá sítengingu við ver-
aldarvefinn á mun meiri hraða en með
upphringisamböndum. Hægt er að tala í
síma um leið og notandi er sítengdur við
vefinn þar sem það samband er á öðru
tíðnisviði. Hámarksfjarlægð notanda frá
símstöð er um 5 km og hægt er að velja
áskrift með mismunandi gagnaflutnings-
hraða: 256, 512 og 1536 kb. Fyrir þá
sem nota veraldarvefinn mikið er þetta
að mörgu leyti hagkvæmasti kosturinn.
Tæknin byggist á sítengingu og er aðeins
greitt fyrir gagnaflutning ásamt mánað-
arlegu fastagjaldi. Ef veraldarvefurinn er
hinsvegar lítið notaður er mánaðarlegur
kostnaður varla réttlætanlegur í venju-
legu heimilisbókhaldi.
Samanburdur á tengimöguleikum
Hvernig er hægt að bera saman kostnað
við þessar þrjár leiðir, 56K-mótald, ISDN
og ADSL? Ef við hugsum okkur fjölskyldu
24 NEYTENDABLA0ID1.TBL.2003