Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.2003, Page 25

Neytendablaðið - 01.04.2003, Page 25
sem notar veraldarvefinn að staðaldri en samt í hófi má setja upp samanburðartöflu. Fjölskyldan sækir sér fréttir og fróðleik af vefnum, athugar sjónvarpsdagskrá, athugar hvað er í bíó, skoðar veður og færð, flettir upp í símaskrá og þjóðskrá, notar banka- þjónustu á netinu og á regluleg samskipti við vini og kunningja með tölvupósti. Þær forsendur sem við gefum okkur er að viðkomandi fjölskylda noti vefinn í um 3 tíma á dag á virkum dögum og 5 tíma á dag um helgar, samtals 105 klst. á mánuði. 56K- mótald ISDN 64 ADSL 256’ Bandvfdd 46 kb 64 kb 256 kb Timi sem tekur að sækja 300K2 60 sek. 38 sek. 10 sek. Mánaðarleg áskriftargjöld - kr. 1.000 1.500 4.500 Notkunargjöld3 - kr. 8.600 8.600 0 Heildarkostnaður á mánuði - kr. 9.600 10.100 4.500 ' ADSL 256 - 500 MB gagnamagn innifalið. 2 Dæmi um www.mbl.is. 3 Miðast við: 105 klst. notkun á mánuði, hringt inn 4 sinnum á dag, sótt gagnamagn 500 MB. Verð sótt á vefsíður síma- og netfyrirtækja í janúar 2003 - Grunngjald af símalínu ekki innifalið. Þegar verð er borið saman á þessum þremur leiðum sést að ADSL-tengingin er lang- hagkvæmasti kosturinn ef netið er notað að ráði en minnt skal á að víða er hægt að fá 56K-upphringisamband ókeypis. Íslandssími býður t.d. 70 klst. notkun á mánuði fyrir kr. 2.500. ADSL-tengingar Margar netveitur bjóða ADSL-áskrift. Landssíminn er að byggja upp dreifikerfi í helstu þéttbýliskjörnum og Islandssími á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þó nokkur munur er á því hvað er innifalið í mánaðargjaldinu. í flestöllum tilboðunum er tiltekið gagnamagn innifalið, og venjulega aðeins mælt það sem sótt er frá útlöndum, sem sagt: Innanlandsumferð er ókeypis. í þessari töflu er skoðað verðlag hjá nokkrum net- veitum. Mun fleiri eru á markaðnum. Netþjónusta Bandvidd - niðurhleðsluhraði Innifalið1 gagnamagn Verð á umfram gagnamagni Mánaðargjöld2 Síminn - Internet 256 kb 100 MB 2,5 kr/MB kr. 3.820 Síminn - Internet 256 kb 500 MB 2,5 kr/MB kr. 4.700 Siminn - Internet 512 kb 500 MB 2,5 kr/MB kr. 5.700 Síminn - Breiðband 512 kb3 100 MB 2,5 kr/MB kr. 2.920 Hringiðan ehf. 256 kb 400 MB 2,3 kr/MB kr. 4.540 Hringiðan ehf. 512 kb 400 MB 2,3 kr/MB kr. 5.540 Hringiðan ehf. 512 kb 600 MB 2,3 kr/MB kr. 6.140 Íslandssími hf. 256 kb 100 MB4 2,49 kr/MB kr. 2.900 Íslandssími hf. 512 kb 500 MB 2,49 kr/MB kr. 6.100 Íslandssími hf. 512 kb 100 MB 2,49 kr/MB kr. 3.7505 Íslandssími hf. 512 kb 500 MB 2,49 kr/MB kr. 4.6005 Margmiðlun hf. 256 kb 100 MB 4,0 kr/MB kr. 2.900 Margmiðlun hf. 512 kb 100 MB 4,0 kr/MB kr. 3.900 Margmiðlun hf. 512 kb 500 MB 3,0 kr/MB kr. 5.400 Tal-lnternet 256 kb 100 MB 4,0 kr/MB kr. 2.990 Tal-lnternet 512 kb 500 MB 2,5 kr/MB kr. 5.500 1 Aðeins er mælt niðurhal frá útlöndum (sjá undantekningu 14) 2 Innifalið I þessum tölum er ADSL-gjald símafyrirtækjanna. 3 Hraðinn er allt ad 512 kb - getur minnkað með álagi á kerfinu. 4 Gagnaflutningur er mældur innanlands i þessu tilfelli. 5 Miðað við 12 mánaða áskrift í ADSL II. Marteinn Njálsson skrifar Framtíðin í nettengingum Þróunin í háhraðatengingum við ver- aldarvefinn hefur verið hröð síðustu árin og allar líkur eru á því að neyt- endur geti valið um mun fjölbreytt- ari möguleika á næstunni. Hvað varðar tengingar um símalínur þá er takmarkað hve langdræg slík tækni getur orðið en sífelit er verið að auka gagnaflutningshraðann. Ýmis háhraðasambönd eru nú að koma á markaðinn, svo sem SDSL, VDSL og SHDSL, og fylgir þá ýmis þjón- usta sem krefst mikillar bandvídd- ar. Einnig munu örbylgjusambönd verða almennari og tækni eins og GPRS-símar,þriðjukynslóðar-farsím- ar og IEE802.11 -staðallinn tengja not- endur við veraldarvefinn. Nú þegar eru rekin þráðlaus borgarnet erlend- is og farsíminn og lófatölvan eru að renna saman í eitt. Við gætum meira segja átt von á að þéttriðið net gervi- hnatta á lágum sporbaug sjái okkur í framtíðinni fyrir þráðlausu netsam- bandi hvar sem er. Leiðrétting vegna greinar um húðmjólk Mistök urðu í síðasta Neytendablaði þar sem fjallað var um könnun sem Gron information í Danmörku hafði gert á 17 tegundum af húðmjólk. Bent var á hliðarverkanir sem húð- mjólkin getur haft vegna hormóna- raskandi efna. í blaðinu voru sérstak- lega tilgreindar sex vörutegundir, Cosmea Hudlotion, Dr. Hauscha Rosen Balsam, Mini Risk Body Lotion, Plasair Liposome Bodylotion, Urtekrem Chamomile Body Lotion og Weleda Malve Bodylotion. Við sögðum að Gron information gæti ekki mælt með þessum vörutegundum vegna um- hverfisáhrifa þeirra. Þar varð okkur illilega á því þetta eru einmitt þær sex tegundir sem hægt er að mæla með vegna þessa. Neytendablaðið biður framleiðendur og seljendur þessara vara og lesendur blaðsins velvirðingar á þessum leiðu mistökum. NEVTENBABLAfll61.TBl.2003 2 5

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.