Foringinn - 01.04.1975, Blaðsíða 5
Sem sagt S.S.R. var aðeins
samræmingar aðili. N6g um þetta
aö sinni.
Til að auka fjölbreytnina á
þessum siðum sem D.S.Ráö hefur
til ráðstöfunar, förum við þess
á leit við D.S.sveitirnar aö
þœr komi með greinar og myndir
úr starfinu. Segið þið nú okkur
hinum frá einhverju skemmtilegu
sem þið hafið verið að gera i
næsta blaði. Greinin þarf ekki
að vera löng.
Og að lokum, gætið þess að hafa
starfsáætlunina fjölbreytta og
passlega stóra næst þegar þiö
geriö áætlun. Og gleymið ekki aö
nota reynslu liðinna starfstima-
bila.
Að starfa án þess að gera áætlun
verður alltaf laust í reipunum .
Starf sem laust er i reipunum
getur aldrei oröið gott starf.
Starf sem aldrei getur orðið gott
er ekki Dróttskátastarf. Drótt-
skátastarf er starf sem skipulagt
er fram i timann.
Og auðvitað muna allir eftir
DAGBOKINNI.
ERLENDIS FRÁ
Svo að við höldum olikur við
spjallið frá siðasta blaði um
skátastarf meðal fatlaðra, þá
rakst ég á grein i dönsku
skátablaði fyrir dróttskáta og
foringja kallað "Broen". Þar
skrifar fatlaður skáti um reynslu
sina. Þessi skáti, sem kallar sig
sprellikarlinn frá Illeröd, er
spaptisk-fatlaður, þ.e. hann hef-
ur ekki góöa stjórn á hreyfingum
sinum þ.á.m. gangi og tali. Hann
segir frá þvi að undanfarin 5 ár
hafi hann feröast um Danmörku með
það fyrir augum aö fræða börn og
unglinga um það hvernig sé
að vera fatlaður. Börnin hafa
komið mjög mismunandi fram við
hann, þau yngri jafnve.1 oröið
hrædd þegar hann kom "sprellandi".
Einnig héldu nokkur þau yngstu aö
hann væri bara að leika sér.
I greininni segir hann einnig frá
útilegum, sem skipulagðar eru af
bandalögunum þarna i sameiningu.
I þessura útilegum eru heilbrigðir
og fatlaðir skátar saman. Reynt
er með þessu móti að fá hinn
almenna skáta til að skilja að
það sé i raun og veru ekkert
athugavert við að hafa fatlaðan
skáta með i flokknum eða sveitinni.
I norska blaðinu "Speideren" rakst
ég á grein með fyrirsögninni "Fisk
fra Island, en gave til Nordjamb
75". Þar segir að Island ætlí að
gefa eina fiskmáltið á Nordjamb i
sumar. Hatarkostnaðurinn sé him-
inhá upphæð og þess vegna sé gott
að vita af þvi að ein máltiðin
komi frá Islandi.
Annars kemur margt athyglisvert
fram i þessari grein. M.a. það
að búið er að biðja um 12.600
klósettrúllur, 9000 metra af
vatnsrörum og jipum og 4600 metra
af striga. Radioskátar þurfa amk.
400 rafhlöður og borð. Einnig er
buið að biðja um 1050 "tömmerstokk-
er", svo eitthvað á að smiða fyrir
mótið. Annars er tömmerstokker
ekki okkar gömlu og góðu tommu-
stokltar, heldur bara venjulegcir
spýtur, en þær eiga lika að vera
af lengdinni 5 metrar.
I sama blaði er mikið fjallaö
um náttúruvernd og gróður.
Hafiö þið eitthvað á starfsáætl-
un ykkar sem stuðlar aö þessu?
Þið vitið að margt smátt gerir
eitt stórt.
5