Foringinn - 01.04.1975, Síða 31
LÍFLEGA
Minnist þess, a6 með-_______
vitundarlaus maður, sem_____
liggur á bakinu, er varnar-
laus gegn köfnunardauða,
Aður var litið svo á, að ef komið
vœri að meðvitundarlausum manni,
t.d. eftir höfuðslys, mætti ekki
hreyfa hann, þótt hann lægi á
bakinu, en biða eftir sjúkrabíl
eða læknishjálp. Þetta leiddi
stundum til þess að maðurinn var
kafnaður þegar hann komst undir
læknishendur. Nú mæla læknar með
því við leikmenn, sem kynnu aö
koma fyrstir að slikum slysum, að
þeir velti sjúklingnum varlega á
grúfu, eða hliðina, eins og mynd-
in aö ofan sýnir, þvi legan hjálp-
ar til aö blóð og annað, sem safn-
ast i munninn, renni út um hann,
en sæki ekki ofan i barkann.
Líflega er sera sagt einkum notuð
við menn, sem eru meðvitundar-
lausir eftir sl.vs, en anda samt.
því að tungan ein getur
fallió aftur í kok og kæft
hann.
Læknishjálp er aðkallandi, en bið-
timann á hjálparmaður að nota til
þess að halda öndunarvegi hins
slasaða opnum; hreinsa jafnóðum
blóð, slim eða uppköst er kynnu
aö vera i munni - og hlúa að sjúkl-
ingnum með klæðnaði. I bókinni
"Hjálp i viðlögum" eru þrjár blað-
siöur, með sjö ljósmyndum og
teikningum helgaðar þessu efni -
og þvi auðvelt fyrir skáta og
aöra, að æfa sig eftir þeim á
námskeiðum i skyndihjálp.
Bezt er að hjálparmenn séu tveir.
Gætir annar höfuðs sjúklingsins
á meöan hinn veltir sjúklingnum
varlega á aöra hliðina og siðan
fram á við. Jafnframt leggur hann
aðra hendí sjúklingsins undir
vanga hans, en hinn handlegginn
beinan niður meö bakinu, eins og
efri myndin sýnir og beygir fót-
inn, sem legið er á, i hnéliönum.
Jón Oddgeir Jónsson.
29