Bændablaðið - 12.12.2000, Síða 2
2
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. desember 2000
Frumvarp til breytinga á lögum um
búfjárhald, forðagæslu o.fl.:
Lausaganga stópgripa við
bjöðvegi verði hönnuð
Þór Jósteinsson með tvo hvolpa sem hann skaut rétt hjá heimili sínu.
Tófan komin í byggð
Refaskyttur nota
arhús til veiða
Steingrímur J. Sigfússon alþingis-
maður hefur lagt fram frumvarp til
breytinga á lögum um búíjárhald og
forðagæslu. Samkvæmt því er nýrri
grein bætt við lögin þess efnis að
eigendum stórgripa, þ.e. nautgripa
og hrossa, sé skylt að hafa gripi sína
í vörslu allt árið og sjá til þess að
þeir gangi ekki lausir á þjóðvegum
eða við þá. Lög þessi tækju gildi I.
september 2002 og bændur fá
tímann fram að því til að gera
viðejgandi ráðstafanir.
I greinargerðinni er rifjað upp að
meirihluti nefndar frá 1989 sem
fjallaði um úrræði vegna lausagöngu
búfjár vildi afleggja lausagöngu
stórgripa. Þess í stað fengu sveitar-
stjómir heimild í lögum til að
fyrirskipa vörslu á sínu svæði. Fram
kemur að nokkur sveitarfélög hafi
bmgðist við en þó gangi stórgripir
ennþá lausir víða við umferðaræðar.
Flutningsmenn telja stöðuna óvið-
unandi og benda á að þess hafi
aðeins orðið vart að lausagöngubann
sé fellt úr gildi í sveitarfélögum þar
sem búið var að koma því á. Slíkt sé
óþolandi afturför. Athygli vekur að
hvergi er getið um störf Vegsvæða-
nefndar sem skilaði áfangaskýrslu í
janúar 1999 og mun væntanlega
Meðfylgjandi tafla sýnir inn- og
útflutning nokkurra flokka búvara,
fyrstu 10 mánuði ársins í
samanburði við allt árið 1999.
Ljóst er að innflutningur á bú-
vörum hefur vaxið á þessu ári.
Mest auking er á innflutningi
nautakjöts, sem er nær allt lundir,
og jógúrt en innflutningur á jógúrt
hófst í lok síðasta árs. Nokkur
magnaukning er í hrossakjötsút-
flutningi en meðalfobverð hefur
lækkað úr 216 kr/kg í 176 kr/kg.
Aukin útflutningsskylda á kinda-
Innflutningur
Nautakjöt (lundir)
Kjöt af alifuglum
Unnið kjöt af alifuglum
Unnið kjöt af svínum
Jógúrt, íblönduð ávöxtum
Ostar
Útflutningur
Egg
Lamba og kindakjöt
Hrossakjöt
Æðardúnn
Hross, stk.
í vor sem leið ákvað Landssamband
veiðifélaga að endumýja heimasíðu
sína. Vinnu við síðuna er nú lokið
og nú getur fólk farið á vefslóðina
http://www.angling.is til þess að sjá
afraksturinn. Markmiðið var að
vefurinn yrði "góð kynning yrði á
íslandi sem stangaveiðiparadís, lýs-
skila lokaskýrslu fyrir áramót.
Ólafur R. Dýrmundsson hefur
setið í þeim þrem nefndum sem
hafa fjallað um búfé á vegsvæðum
frá ársbyrjun 1989. Hann bendir á
að víða séu vegir ekki girtir með
samfelldum gripheldum girðingum
og í þeim tilvikum séu einfaldlega
ekki skilyrði fyrir því að banna
lausagöngu á þeim stöðum. „Ég
furða mig á því að þessir ágætu
alþingismenn skuli vera að narta í
þessi mál með svo ómarkvissum
hætti. Það er nánast sýndarmennska
að leggja til allsheijar bann á
lausagöngu stórgripa án þess að á
undan komi breytingar á girðingar-
ákvæðum vegalaga."
Ólafur telur ástandið í heild
óviðunandi og mikillar stefnubreyt-
ingar vera þörf ef tryggja eigi við-
unandi umferðaröryggi þar sem
búfé á í hlut. „Vegagerðin er reynd-
ar að átta sig á því að þessi vitleysa
gengur ekki lengur og er samkomu-
lag hennar við Mýrdalshrepp um
uppsetningu og viðhald girðinga
merki þess. En meira þarf að koma
til, m.a. breytingar á vegalögum, og
legg ég til að flutningsmenn
frumvarpsins staldri við og taki á
þessum málum af meiri framsýni."
kjöti sl. haust kemur fram í vax-
andi útflutningi en þegar litið er á
meðalverð á frystu kjöti í 1/1 og Vi
skrokkum hefur það lækkað úr 227
kr/kg í 209 kr/kg. Meðalverð á út-
fluttum æðardúni hefur hins vegar
hækkað, var allt árið 1999 39.445
kr/kg en er komið í 46.682 kr/kg.
Heildarútflutningsverðmæti land-
búnaðarafurða fyrstu 10 mánuði
ársins var 2.011,6 millj. kr en
fyrstu 10 mánuði ársins 1999 nam
verðmætið 1.739 millj. kr.
Verðmætaaukningin er 18,4%.
19,6 11,9
16,6 13,3
43,5 60,2
14 15,8
347,6 17
122,7 98
351 316
1115,8 834
385,6 335
3216 kg 1986 kg
1449 stk 2031 stk
ing á staðháttum, landi og þjóð,“
eins segir í tilkynningu frá Lv.
Samið var við Tölvert í Borgamesi,
um smíði vefsins. Þama er lýsing á
íslenskum ferskvatnsfiskum, eðli
þeirra og útbreiðslu. Skrá um hér-
lend veiðivötn, skipt í laxár,
silungsár og silungsvötn ásamt
Bændur í Hörgárdal hafa nú í
auknum mæli orðið varir við að
tófan sé að færa sig nær byggð.
Ekki vita menn hvaða orsakir
eru fyrir þessu þó að h'kum sé að
því leitt að æti vanti fyrir hana
til fjalla. Vandræði hafa ekki
skapast af þessum sökum ennþá
en þó finnst mönnum ástæða til
að vera varir um sig.
Þór Jósteinsson, bóndi á
Skriðu í Hörgárdal, segir að þetta
hafi verið að ágerast með árunum.
„Við náðum t.d. nýlega tófu í
íbúðarhúsi á sveitabæ sem er kom-
inn í eyði. Ég hef heyrt á refaskytt-
um að þeim finnist tófurnar núna
vera injög vitlaus kvikindi miðað
við það sem gerðist í gamla daga.
Þær virðast mjög spakar og ég hef
meira að segja séð nokkrar heima
á túni fyrir neðan bæinn hjá mér á
morgnana. Það er mjög óeðlilegur
leitarvél að lausum veiðilcyfum.
Búið er að skrá inn upplýsingar um
175 veiðifélög, nokkuð á þriðja
hundrað veiðivötn, ásamt miklu af
almennum upplýsingum og mynd-
efni. Þá eru síður með almennu
fréttaefni og veiðisögum.
Hvert veiðifélag sem þátt tekur
geti getur auðveldlega uppfært
sínar heimasíður. Mörg veiðifélög
og leigutakar hafa pantað sínar
eigin heimasíður og nokkur hafa nú
þegar gengið frá þeim á vefnum.
Margar heimasíður veiðifélaga
munu bætast við á næstunni.
tími því yfirleitt sér maður þær
mest í ljósaskiptunum á kvöldin."
Refaskyttur eru að sögn Þórs
töluvert farnar að nota auð
íbúðarhús og útihús til refaveiða.
„Það er því orðið miklu þægilegra
fyrir þær að nálgast tófuna á þenn-
an hátt í stað þess að liggja í
köldum kofum uppi á dölum.“
Mófugl nánast horfinn
Þór segir hugsanlega ástæðu
fyrir þessu að tófurnar séu hrein-
lega orðnar vanari mannfólkinu
sem fer á fjöll nú til dags allt árið
um kring. „Önnur ástæða getur
líka verið að æti sé minna. Við
höfum sérstaklega tekið eftir því
þegar við erum að skoða greni að
við erum nánast hætt að sjá
mófugl. Það er því hugsanlegt að
tófan leiti til byggða eftir æti á
sumrin og haldi því svo áfram þeg-
ar fer að líða á veturinn.“ Þór segir
að nánast eini fuglinn sem sjáist nú
orðið til fjalla séu mávarog líklega
sé ástæðuna fyrir hvarfi mófugls-
ins að finna þar því mávarnir leiti
sér gjarnan ætis í mófuglsungum.
Að sögn Þórs hefur þessi
nærvera tófunnar ekki verið til
vandræða enn sem komið er. „Ég
hef hins vegar grun um að þær séu
komnar með ný greni nær byggð.
Þá eru þær nær byggð á vorin en
áður þannig að það er aldrei að
vita nema að þær fari að sækja á
lömb ef þeim fer að fjölga eitthvað
að ráði.“
Noregur og Sviss
skrifa undir
samning um
WorldFeng
Á árlegum fundi ræktunar-
leiðtoga FEIF, sem haldinn var í
Reykjavík helgina 10.-12.
nóvember sl., skrifaði Björn
Kjersem, ræktunarleiðtogi
Noregs, og Barla Barandun,
ræktunarleiðtogi Sviss, undir
saming um áskrift að WorldFeng
kerfinu. Prófanir hefjast á
WorldFeng í þessum mánuði
meö þátttöku þessara tveggja
þjóða, sem nú hafa ákveðið að
skrá kynbótahross sín í
WorldFeng gagnagrunninn.
Ræktunarleiðtogar Danmerkur,
Finnlands, Hollands og
Svíþjóðar hafa allir lýst yfir vilja
sínum að gerast áskrifendur að
WorldFeng á næsta ári og sömu
fréttir er að segja af
Bandaríkjamönnum. Þjóðverjar,
Austurríkismenn og Bretar vildu
fá lengri umhugsunartíma til að
gefa uþþ endanlegt svar, en
töldu þó meiri en helmingslíkur á
samvinnu.
Þingeyskir bændur
álykta um
lyfjareglugerð
Bædnafunaur sem haldinn var
að Ýdölum í lok nýliðins
mánaðar „ krefst þess að
Bændasamtök íslands og önnur
hagsmunafélög bænda haldi
áfram viðræðum við Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra um
endurskoðun reglugerðar
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra nr.539 um
heimildir dýralækna að ávísa
lyfjumfrá 17.07.2000.
Jafnframt að taka upp viðræður
við yfirdýralækni um
skynsamlega túlkun
fyrirliggjandi reglugerðar meðan
endurskoðun fer fram.“
Baulaðu nú Búkolla
mín!
Undirbúningshópur um stofnun
samtaka áhugamanna um
íslensku kúna kom saman á
Suðurlandi 6. desember sl. í
frétt frá hópnum segir: "Nú
leitum við samstarfsmanna úr
röðum kúabænda um land allt,
sem standa vilja með okkur að
stofnun félagsins. Nánari
upplýsingar veitir Sigríður
Jónsdóttir, Gýgjarhólskoti, í
síma 486 8621".
innúr skógi
Það er ekki á hverjum degi sem
efnt er til "Ijóðmyndasýninga"
sem tengja má landbúnaði, en
þetta gerðu þeir Ólafur
Oddsson, kynningarfulltrúi
Skógræktarinnar, og Sigmundur
Ernir Rúnarsson, fréttamaður og
skáld. Sýningin er í salarkynnum
Ingvars Helgasonar. Hún er
tileinkuð áhugafólki um
skógrækt og skógarmenningu
og er ætlað að sýna fjölbreytt
tilbrigði íslensku skóganna.
Ólafur leggur til myndirnar en
Sigmundur Ernir Ijóð við hverja
mynd. Sýningin stendur fram í
janúar.
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til
allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast
landbúnaði. Alls fóru 6.495 eintök í dreifingu hjá
Islandspósti í lok nóvember. Bændablaðinu er dreift frítt
til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst
áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar
kr. 3.800 en sjötugir og eldri greiða kr. 1.800.
Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 -
Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) - Beinn sími ritstjóra:
563 0375 - Auglýsingastjórí: Eiríkur Helgason - Beinn
sími auglýsingastjóra: 563 0303 -
Blaðamaöur: Hallgrímur Indriðason. - Blaðstjórn:
Sigurgeir Þorgeirsson, Hörður Harðarson, Þórólfur
Sveinsson. - Netfang: bbl@bondi.is -
Umbrot: Prentsnið - Prentun: ísafoldarprentsmiðja -
Nr. 125- ISSN 1025-5621
'ýjfwr/jfjffA
Inn- og útflutningur búvara
fyrstu tíu mánuði ársins
Tonn Allt áriö 1999
Landssamband veiðifélaga kynnir
ísland sem stangveiðiparadís