Bændablaðið - 17.09.2002, Qupperneq 1
15. tölublað 8. árgangur Þriðjudagur 17. september 2002 ISSN 1025-5621
Mjög góð
aðsókn að
Garð-
yrkjuskólanum
Aðsóknin að Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykjum í Ölfusi
hefur sjaldan eða aldrei verið
jafn góð, því nú stunda um 100
nemendur nám við skólann.
Skólastarfið hófst á fullum
krafti um síðustu mánaðamót,
en 50 nemendur eru skráðir í
reglulegt nám auk 53 nemenda
sem stunda nám í skógrækt á
Suður- og Norðurlandi undir
yfirskriftinni Grænni skógar. í
ár er í fyrsta skipti boðið upp á
fjarnám á 4 af 6 brautum
skólans, garðplöntubraut,
ylræktarbraut, umhverfisbraut
og skógræktarbraut, og hefur
það nám mælst mjög vel fyrir
og fer vel af stað. Nemendur
koma víða af landinu, en flestir
eru þó af suðvesturhorninu.
Fjórir nemendur eru á
heimavist skólans, margir leigja
húsnæði í Hveragerði og
nágrenni og enn fleiri keyra á
milli Reykjavíkur og skólans á
hverjum degi.
Upplýsingar um 200
þúsund nautgripi i Huppu
Tölvukerfið Huppa var
opnað formlega af Guðna
Agústssyni landbúnaðar-
ráðherra á sýningunni KÝR
2002 í Ölfushöll. Huppa er heiti
á nýju tölvukerfí frá
Bændasamtökum Islands sem
vistar skýrsluhaldsgagnagrunn í
nautgriparækt á netinu.
Gagnagrunnurinn inniheldur
upplýsingar um 200 þúsund
gripi og eru elstu gripirnir frá
upphafl 20. aldarinnar. Þar má
meðal annars sjá ætterni,
kynbótamat og afkvæmi ásamt
grunnupplýsingum um gripi.
Eigandi Huppu er
Bændasamtök íslands.
Tölvukerfið er smíðað í
tölvudeild Bændasamtakanna
að beiðni ráðgjafarsviðs.
Sjá nánar á bls. 15
FLÝBURí
SKÖLANNI
Lúðvík Þór Blöndal á Blöndósi
er nemandi á ferðamálabraut í
Hólaskóla og stundar námið í
gegnum fjarkennslu. Hann mætti í
staðbundna kennslu á Hólum í
flugvél. Myndina tók Sólrún Harðar-
dóttir, endurmenntunarstjóri á
Hólum.
Kjötframleiðendur ehf.
Útflutningup hafinn lí
fersku kjöti til Færeyja
Samningar hafa tekist á milli
Kjötframleiðenda ehf. og aðila í
Færeyjum um sölu á fersku
dilka- og svínakjöti frá íslandi
til Færeyja í haust. Einnig gæti
opnast möguleiki á að flytja út
egg. Til þessa hefur aðeins verið
selt frosið dilkakjöt til Færeyja
og það hefur alltaf verið flutt
fyrst til Danmerkur og þaðan til
Færeyja, en nú verður ferska
kjötið flutt í kæligámum með
skipum beint til Færeyja. Ekki
hefur verið samið um ákveðið
magn af kjöti. Guðmundur
Lárusson, stjórnarformaður
Kjötframleiðenda ehf, sagði að
engin leið væri að segja til um
hve mikið magn verður flutt út,
en það muni ráðast af viðtökum
markaðarins.
Söluaðilar í Færeyjum búast
við söluaukningu þar sem um
ferskt kjöt er að ræða, og sömu-
leiðis reikna þeir mað hærra verði.
Þar að auki lækkar flutnings-
kostnaðurinn til muna þar sem
kjötið er flutt til Færeyja án við-
komu í Danmörku. Guðmundur
vildi ekki gefa upp um hvaða verð
hefur verið samið.
Kjötframleiðendur ehf. hafa haft
frumkvæðið í þessu máli og sagði
Guðmundur að yfirdýralæknis-
embættið hefði unnið mjög vel að
málinu. Það hafi lengi verið áhugi
á að flytja ferskt kjöt til Færeyja
en það ekki gengið eftir fyrr en
yfirdýralæknisembættið og Kjöt-
framleiðendur ehf. sjálfir fóru að
vinna í málinu.
Það er ákveðin stöð í Fær-
eyjum sem hefur haft leyfi til að
flytja inn fisk undir eftirliti yfir-
dýralæknisins í Færeyjum. Nú
verður hún landamærastöð fyrir
ferska kjötið frá Islandi sem er
nýjung í Færeyjum.
í þessu tilfelli eru Kjötfram-
Ieiðendur ehf. verktakar fyrir
sláturhúsin á Hvammstanga og
Sauðárkróki við að markaðssetja
dilkakjöt erlendis.
„Við sjáum um alla pappírs-
vinnu, gæðaeftirlit og samskipti
við kaupendur erlendis. Það sama
myndi gerast ef við förum að selja
ferskt svínakjöt til Færeyja. En
varðandi sölu á hrossakjöti til
Japan og Ítalíu þá eigum við
kjötið en sláturhúsin sjá um
slátrun og vinnslu fyrir fast verð,"
sagði Guðmundur Lárusson.
Mlluuppskera í
meðallagl í
Eyjalirði
Kartöflubændur eru nú í óða-
önn að taka upp úr görðum sínum
og telja menn að uppskera verði í
meðallagi. Helgi Örlygsson, kart-
öflubóndi á Þórustöðum í Eyjafirði,
sagði í samtali við Bændablaðið að
óvenju miklar rigningar hefðu
verið í Eyjafirði í sumar og útlitið
hefði ekki verið gott um mitt
sumar. Eftir að stytti upp hefði þó
allt gengið betur og síðustu daga
hefði verið yfir 20 stiga hiti og þá
hefði sprettan verið frábær. Hann
sagðist eiga von á kartöfluuppskeru
í meðallagi í Eyjafirði í ár. Sumir
óttuðust að þessi óvenjumikla
úrkoma í sumar gæti haft áhrif á
gæði kartaflanna en Helgi sagðist
vera búinn að smakka nýju
kartöflumar og_ gæðin væru í
fullkomnu lagi. A þessari mynd má
sjá Helga á dráttarvélinni en á
innfelldu myndinni er kona hans,
Vigdís Eiríka Helgadóttir.
Þarna eru systkinin
Kolfinna og Sighvatur
Helgi Ólafsbörn. Þau
voru að leika sér á
kornakri í Landeyjunum
þegar Bbl. smellti af þeim
mynd. „Við erum frá
Nýjabæ undir
Eyjafjöllum,” sagði
Kolfinna kotroskin, en
fékkst ekki til að gefa
upp frekari uppiýsingar
um sig eða sína hagi.
iff©
•>'%■ . v.mism
- ■
•v ••, -.-.v • •' r ■ ■ v f'■'v•.*•.