Bændablaðið - 17.09.2002, Síða 3
Þriðjudagur 9. júlí2002
BÆNDABLAÐIÐ
3
Frðrennslis- ng
vatnsveitumál
tekin fðstum tökum
í Broddaneshrepgi
Eins og fram kom í síðasta tbl.
Bændablaðsins eru frárennslis-
og vatnsveitumál í ólestri
víða um land. Hins vegar ber
mönnum saman um að
almennur vilji sé til að taka á
málinu og mörg sveitarfélög
hafa þegar hafíst handa við
úrbætur. Einn þeirra hreppa
þar sem framkvæmdir eru vel á
veg komnar er Broddastaða-
hreppur í Strandasýslu, sami
hreppur og veitir eina milljón
króna hverjum þeim bónda sem
vill bæta og fegra húsakynni sín
og umhverfí.
Frárennslismálin komin í lag
Sigurður Jónsson, oddviti og
bóndi á Stóra-Fjarðarhomi, sagði í
samtali við Bændablaðið að búið
væri að ganga frá frárennslis-
málum í hreppnum nema hvað
einn bær væri eftir, en þar ætluðu
menn að ganga frá sínum málum í
sumar. Sá sem tók verkið að sér
hefur enn ekki getað lokið því
verki. Hann hafi hins vegar lofað
að koma fljótlega, og þá verður
líka hafist handa við að koma
vatnsbólum allra býla í hreppnum
í viðunandi horf.
Lélegir brunnar
„Við hófumst handa í fyrra
með því að fá heilbrigðisfulltrúa
til að taka út ástand neysluvatns á
öllum bæjum í hreppnum. Þá kom
í ljós að það var óvíða í góðu lagi
og allt niður í það að vera mjög
slæmt. I framhaldi af þessari
úttekt kom Óttar Geirsson jarð-
ræktarráðunautur til okkar í vor er
leið og gerði úttekt á vatnsbólum á
öllum bæjum sem eru í byggð í
Broddaneshreppi. Nú höfum við
svo keypt efni til að ganga
varanlega frá vatnsbólunum,"
sagði Sigurður.
Hann segir að keyptir hafi
verið plastbrunnar, enda hafi það
fyrst og fremst verið brunnarnir á
bæjunum sem eru í ólagi. Suma
þurfi að endumýja og á öðum
stöðum hafi aldrei verið gengið
almennilega frá þeim. Á nokkmm
bæjum þarf líka að setja upp
miðlunargeymi til að mæta
toppunum.
Á og verður að vera í lagi
„Við gemm okkur vonir um
að sjálft vatnið sé gott þegar búið
er að ganga frá brunnunum. Það
em fyrst og fremst þeir sem eru í
ólagi og orsaka slæmt ástand
vatnsins víða. Við munum fara
eftir þeim leiðbeiningum sem
Óttar Iét okkur hafa og ég er að
gera mér vonir um að þetta verk
klárist í haust," sagði Sigurður.
Hann segir kostnaðartölur ekki
liggja fyrir, en menn viti það eitt
að þetta eigi og verði að vera í
lagi. Hvert og eitt býli sækir um
styrk til Bændasamtakanna sem
sjá um greiðslu styrkja úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga til
vatnsveitumála á lögbýlum. Sá
styrkur nemur 40% af kostnaði.
Hreppssjóðurinn greiðir 50% og
bændumir sjálfir 10%.
Rannsaks parf lax i sjö
Landssamband veiðifélaga
bendir á vaxandi nauðsyn rann-
sókna á laxi í sjó, og telur þær
mjög brýnar. Tryggja þurfí
aukið fjármagn til þeirra og
jafnframt að styrkja starfsemi
Veiðimálastofnunar með aukn-
um fjárframlögum. Þetta kom
fram á aðalfundi LV.
fremur getur þurft að gera
svæðisbundnar kannanir á
snefílefnastöðu, vinna úr til-
tækum gögnum og síðast en
ekki síst að koma upplýsingum
og þekkingu um snefílefni út til
bænda.
Við framkvæmd þessa viða-
mikla og brýna verkefnis verð-
ur leitast við að koma á sam-
starfí þeirra aðila og stofnana
sem búa yfír þekkingu á þessu
sviði.
Forsvarsmenn verkefnisins
eru þeir Grétar H Harðarson
tilraunastjóri á Rala/Stóra Ár-
móti, Bragi Líndal Ólafsson
forstöðumaður Fóðurdeildar
Rala og Torfí Jóhannesson
rannsóknastjóri við
Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri.
Rannsðtai II sneHefnum
Takmarkaðar upplýsingar
eru til hér á landi um snefílefna-
innihald í heyfóðri og jarðvegi,
sem og um samhengi hugsan-
legs skorts á snefílefnum í fóðri
(selen/ vít.E) og ýmissa kvilla,
s.s. vanhalda í ungkálfum og
Iömbum, frjósemi, mótstöðu
gegn sjúkdómum o. fl.
Umræðan hefur aðallega
snúist um Selen og E-vítamín,
en virkni þeirra en nátengd.
Það er sammerkt flestum snefíl-
efnum að mjótt er á milli skorts
og eiturverkana. Þess
vegna er ekki sjálfgefíð
að þeim sé bætt í fóður
eða komið í grípina
með öðrum hætti ef
grunur er um snefíl-
efnaskorti.
Fyrir áeggjan ýmissa
aðila er málið varðar
(búnaðarþings, fagráða í
nautgripa- og sauðfjárrækt og
fleiri aðila) hefur nú verið efnt
til víðtæks samstarfsverkefnis
allra fagstofnana land-
búnaðarins um rann-
sóknir á snefílefnum.
Verkefnið gengur
m. a. út á að fara yfír
og draga saman
innlenda þekkingu sem
hendi er þessu
- skipuleggja og
framkvæma snefílefna-
mælingar í fóðursýnum og
rannsóknir sem gera þarf. Enn-
Kynnum nú „yngsta“ meðlim
4300 fjölskyldunnar:
MF 4365,112 hö, 4 cyl 3.750 kg
á ótrúlega góðu verði.
4WD - raunverulegt
fjórhjóladrif - ekki
þrfhjóladrif!
Gírkassi - Fleiri gfrar
miðað við vinnuhraða -
meiri afköst.
Innifalið í staðalbúnaði er
m. a. nýtt að/frá stýri, ný
miðstöð, rafstart á PTO,
250% stærri verkfæra-
kassi og fleira og fleira.
• Nýjar Perkins vélar -
53-116 hestöfl.
Heimsækið nýja heimasíðu
véladeildar www.ih.is/velar
Aukið tog -
stoppar aldrei.
Einstakur vendigír með
stiglausum átaksstilli.
THR5E POIIMX
MA3SEY FEhOUSON
Aukið vökvaflæði og
þrýstingur - meira afl.
Nýtt púströr til hliðar upp
með húsi.