Bændablaðið - 17.09.2002, Page 4
4
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. september 2002
segir Lérus Pétursson sem selur sína irumleiðslu ú heimsmarkaðsverOi
Lárus Pétursson er einn af fáum
einstakiingum hér á landi sem
leigir land, ræktar á því korn og
selur til íslenskra kaupenda á
heimsmarkaðsverði, en Lárus er
ekki með neinn gripabúskap.
Landið sem hann leigir er í
Landeyjunum og er í eigu Eiríks
Davíðssonar og Sólveigar Ey-
steinsdóttur á Kanastöðum.
Lárus er með um 60 hektara
sem skiptast nánast til helminga,
í Filippu annars vegar og
Gunillu hins vegar. Athygli
vekur að kornið hans Lárusar
vex í landi þar sem áður var
nánast auðn.
Komið á akri Lárusar er nú í
sæmilegu meðallagi, enda hefur
sumarið ekki verið sérstaklega gott
til kornræktar. Góðir kaflar í
sumar nýttust ekki sem skyldi.
Þetta er annað árið sem Lárus
ræktar korn á þessum stað í landi
Kanastaða, en í fyrra var spildan
um 40 hektarar. Auðvelt væri að
stækka spilduna um nokkra tugi
hektara. Lárus sagði að hann væri
að ræða við væntanlega kaupendur
að kominu, en hagnaður yrði
líklega naumt skammtaður þetta
árið. „Maður verður að líta á
komrækt eins og laxveiðar. Ef illa
árar verður bóndinn að vera til-
búinn til að gefa a.m.k. vinnuna.
Það er því erfitt að áætla langt
fram í tímann," sagði Láms og
bætti því við að hann langaði til að
reyna að þrauka áfram.
„Ég þarf að selja komið til
hæstbjóðanda og verð að taka því
verði sem gildir á heimsmarkaði.
Þannig þarf ég að keppa við niður-
greitt kom sem ræktað er í löndum
ESB og látið flæða ótollað til
íslands. íslenskir kombændur fá
engan stuðning eða vemd gagnvart
niðurgreiddu, innfluttu komi. Þetta
er ójafn leikur og þótt ég sé alls
ekki talsmaður styrkja í land-
búnaði þá er erfitt að keppa við
svona kerfi," sagði Láms.
Bændasamtflkin hfynnt hvf aS gjaldtaka aí
dísel ag bensínbífreiðum verði samræmd
Stjórn Bændasamtakanna
barst í sumar bréf frá fjármála-
ráðuneytínu vegna fyrirhugaðra
breytinga á olíugjaldi, kflómetra-
gjaldi og lögum um vörugjald af
ökutækjum, eldsneyti og fleira.
Óskað var umsagnar stjórnar BÍ.
I bréfinu segir: „Vísað er til
meðfylgjandi frumvarpa, annars
vegar um olíugjald og kflómetra-
gjald og hins vegar um breytingu
á lögum um vörugjald af
ökutækjum, eldsneyti o.fl., sem
fjármálaráðherra lagði nýlega
fram til kynningar á Alþingi.
Frumvörpin miða að því að
gjaldtaka af díselbifreiðum og
bensínbifreiðum verði samræmd
þar sem gjaldtaka af dísel-
bifreiðum breytist frá því að vera
gjald á ekna kflómetra yfir í gjald
á notað eldsneytismagn. Gert er
ráð fyrir að olíugjaldið verði í
meginatriðum lagt á sömu aðila
og þungaskatturinn og lagt er til
að gjaldfrjáls olía verði bætt
litar- og/eða merkiefnum.
Jafnframt er gert ráð fyrir
sérstöku stighækkandi
kflómetragjaidi á ökutæki sem
eru yfir 10 tonn að leyfðri
heildarþyngd, að undanskildum
bifreiðum sem ætlaðar eru til
fólksflutninga. Með því tekur
gjaldtakan mið af þeim kostnaði
sem hlýst af sliti þyngstu
bifreiðanna á vegakerfinu."
Breytir miklu
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna segir að hér
sé um gamalt mál að ræða sem
hafi tvisvar farið af stað í kerfinu
en dagað uppi í bæði skiptin.
Verði þetta frumvarp hins vegar
að lögum breyti það ýmsu fyrir
bændur. „Þá verða menn með
litaða olíu til húskyndingar og á
dráttarvélar sínar og því verður
hún að vera í heimilistönkum
bænda. Litaða olían verður á
svipuðu verði og hráolía er í dag,
en oh'a á bifreiðar hækkar mikið
frá því sem nú er þegar
kflómetragjald eða olíugjald falla
niður. Bændur sem eiga díselbfla
og nota bæði til búrekstursins og
einkaneyslu, mega ekki nota
lituðu olíuna á þá. Menn verða
því annað hvort að vera með tvo
olíutanka heima eða fara á næstu
bensínstöð til að kaupa ólitaða
olíu á bifreiðina," sagði Ari.
Strangt eftirlit
Hann segir að strangt eftirlit
verði með því að bifreiðaeigendur
noti ekki lituðu olíuna á bifreiðar
og muni væntanlega liggja háar
sektir við misnotkun. Liturinn í
olíunni hverfur ekki auðveldlega,
þannig að nær útilokað er að
koma því þannig fyrir að hann
sjáist ekki. Ef litaðri olíu er dælt
á bflinn mun það sjást við
hefðbundna bifreiðaskoðun.
„Stjórn Bændasamtakanna
tók málinu þokkalega í umsögn
sinni. Við gerum okkur grein
fyrir að kerfið er erfitt í
framkvæmd en það á að tryggja
Framtfö fslensks landhúnadar
best tryogö meö vtfruvöndun
Áform - átaksverkefni, sem
meðal annars hefur staðið að
markaðssetningu á íslensku
lamabakjöti til Bandaríkjana,
stóð á dögunum fyrir ráðstefnu
um sjálfbæra matvælafram-
leiðslu og ferðaþjónustu í sátt
við umhverfið.
Margt góðra gesta var á ráð-
stefnunni sem haldin var í Súlnasal
Hótel Sögu. Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra hélt erindi
um íslenska fiskveiðistjórnarkerfið
og sjálfbærar veiðar. Landbúnaðar-
ráðherra, Guðni Ágústsson, lagði í
erindi sínu áherslu á að því trausti
sem neytendur beri til íslenskra
Iandbúnaðarvara megi ekki glata.
Til þess að halda því verði ætíð að
tryggja matvælaöryggi og stuðla
að neytendavernd. I því sambandi
væri rekjanleiki vöru mikilvægur.
Þá talaði Guðni um að íslenskir
bændur þyrftu ekki síður að rækta
ímynd sína, og lagði áherslu á að
aukin hagræðing í landbúnaði
mætti ekki verða til þess að
íslenska fjölskyldubúið liði undir
lok.
Eftir hlé héldu fimm erlendir
fyrirlesarar erindi sem m.a.
fjölluðu um það hvemig banda-
rískar verslanakeðjur selja
vottaðar og náttúrulegar afurðir.
Fjallað var um mikilvægi þess að
framleiða heilbrigða og ómengaða
matvöru í sátt við umhverfið. Ljóst
er að markaður fyrir matvöru sem
grundvölluð er á gæðum, hrein-
leika og hollustu fer sífellt
stækkandi í Bandaríkjunum. Fram
kom í máli Dennis OT)onnell
verslunarstjóra í Washington að
sala á íslensku lambakjöti færi
stöðugt vaxandi og að neytendur
kynnu vel að meta íslenska kjötið.
AburðarkOgglar
drápu nautgripi
I byrjun ágúst fannst kvíga ein nær dauða en lífi í nokkuð
víðáttumiklu haglendi. Blóð gekk aftur af henni og merki sáust
um að hún hefði haft niðurgang. Blóð var í saur.
Lækningatilraunir báru ekki árangur og skepnan drapst.
Nokkru síðar fannst annar ungur nautgripur dauður á sama
stað. Hann hafði brotist lítillega um og merki fundust um að
hann hefði haft niðurgang. Talsvert blóð virtist vera í saur.
Gripurinn var kruflnn af dýralækni. Þá kom í ljós stór, þrútin
og gul lifur, ekkert nýétið gras í vömb en illa lyktandi groms í
meltingarfærunum. Þegar vinstrin var skoluð sáust mörg
átusár 1/2 -1 cm í þvermál í slímhúðinni. Giskað var á að hér
væri um áburðareitrun að ræða. Við athugun á landinu
fundust leyfar af gömlum og kekkjuðum blönduðum túnáburði
sem ekki hafði leystst upp af úrkomu, en skepnurnar höfðu
komið þar að og sleikt í sig áburðinn. /Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir.
Baenddilnðið
kemur næst
út 1. október.
bændum olíu á búvélar sínar á
eðlilegu verði. Margir bændur
sem eiga díselbfla eru með
ökumæla í bflum sínum og þurfa
að greiða hátt gjald á hvem ekinn
kflómetra. Aðrir greiða fastan
þungaskatt sem fer eftir þunga
díselbflanna. Bæði gjöldin falla
niður um leið og olía á bifreiðar
hækkar í verði almennt. Okkar
afstaða var sem sagt sú að
leggjast ekki gegn breytingunni.
Við bendum hins vegar á að
bændur sem greiða þungaskatt af
fjórhjóladrifsbifreiðum sem
sannanlega eru notaðar við
búrekstur eigi rétt á að fá
helming skattsins endurgreiddan,
og hafa fengið það. Við leggjum
áherslu á að sá réttur falli ekki
niður en fyrir því er ekki séð í
frumvarpinu og gæti verið
nokkuð snúið við að eiga," sagði
Ari Teitsson.
Að lokum má nefna að
ástæður breytinganna nú munu
tvíþættar, annars vegar þrýsting-
ur frá Evrópusambandinu vegna
samræmingar reglna og hins
vegar vilji hérlendra stjórnvalda
til að greiða fyrir aukinni notkun
lítilla díselbifreiöa sem munu
bæði nota minna eldsneyti og
menga minna en sambærilegar
bensínbifreiðar.
Bœndablaflifl ú sjúvar-
útvegssýninguuni
Mikill fjöldi manns lagði ieiö sína ó
sjávarútvegssýninguna f
Smáranum í Kópavogi í byrjun
mánaðarins. Bændablaðinu var
dreift f 1.500 eintökum á
sýningunni af tveimur röskum
ungmennum. Sumir höfðu á orði
hvers vegna blaðið veldi sér
þennan vettvang til dreifingar en
af viðtökum að dæma var áhuginn
fyrir hendi. Bændablaðið er gefið
út í tæpum 7.000 eintökum og er
dreift ókeypis inn á þúsundir
sveitaheimila í landinu. Blaðið
liggur einnig frammi í söluskálum
við þjóðveginn og fjöldi stofnana
og einstaklinga fá biaðið sent til
sín.