Bændablaðið - 17.09.2002, Qupperneq 9
Þriðjudagur 17. september 2002
BÆNDABLAÐIÐ
9
PharmaNor hf. - nýtt
nafn ð traustum grnnni
Pharmaco ísland ehf. fékk nýtt
nafn frá og með 1. september, og
heitir nú PharmaNor hf. Þessi
breyting kemur í kjölfar kaupa
eignarhaldsfélagsins Veritas Capital
ehf. á 80% hlutabréfa í fyrirtækinu
fyrr í sumar af Pharmaco hf.
PharmaNor er leiðandi fyrir-
tæki sem byggir á traustum grunni
á íslenskum heilbrigðismarkaði,
enda hefur fyrirrennari þess gegnt
lykilhlutverki á því sviði í nær
hálfa öld. Hjá PharmaNor starfa
um 120 manns og hefur stór hluti
þeirra víðtæka sérmenntun og
mikla reynslu af störfum á
heilbrigðissviði. Þessi reynsla er
fyrirtækinu dýrmæt í þeirri við-
leitni að þjóna íslenska heil-
brigðismarkaðnum eins og best
verður á kosið.
Innan PharmaNor hefur verið
starfandi dýralyfja- og land-
búnaðardeild frá árinu 1993 í kjöl-
far endurskipulagningar fyrir-
tækisins. Stjórnendur PharmaNor
hf. töldu að með stofnun sérstakrar
deildar myndi þessum málaflokki
Haugtankar
5 ára reynslutími á Islandi
fjiildi tanka í notkun
malgar
VÉLAVAL-Varmahlíð «
Simi 453 8888 Fax 453 8828
vera enn betur þjónað en áður
hafði verið. Aherslusvið deildar-
innar er í raun allt sem viðkemur
heilbrigðismálum í landbúnaðar-
geiranum, ekki einungis dýralyfin.
PharmaNor hf. hefur að bjóða
vörutegundir margra þekktra og
virtra framleiðenda og kappkostar
aðgengi viðskiptavina að þessum
vörum og þjónustu þeim tengdum.
Helstu dýralyljaframleiðendur sem
nýta sér dreifingarkerfi Pharma-
Nor hf. eru: Alpharma, Boehringer
Ingelheim, Bayer, Leo Animal
Health, Merial, Fort Dodge,
Pharmacia & Upjohn og Orion
Pharma auk íslenska lyfjafram-
leiðandans Delta hf. Af öðrum
þekktum vörumerkjum og/eða
framleiðendum sem PharmaNor
hf. sinnir má nefna Virkon S og
aðrar smitvamarvörur frá Antec
International, vörur til mein-
dýravama frá Bell Laboratories,
áhöld, tæki og rekstrarvörur frá
Jörgen Kruuse, forðastauta frá
Agrimin, Indexel örmerkjakerfið
og Multi-línuna í júguráburði, svo
eitthvað sé nefnt.
Markaðasstjóri deildarinnar er
Bemharð Laxdal dýralæknir og
fisksjúkdómafræðingur, en hann
hefur starfað í PharmaNor hf. frá
árinu 1991. Þá hefur Berghildur
Magnúsdóttir meinatæknir starfað
sem sölufulltrúi við deildina frá
árinu 2001.
Aðalskrifstofur PharmaNor
eru til húsa að Hörgatúni 2 í
Garðabæ. Fréttatilkynning.
3000 mm X 3000 mm = kr. 109.507,-
Vagnar & þjonusta ehf
Tunguhals 10,110 Reykjavík
Sími: 567-3440, Fax: 587-9192
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir málum. Þær eru léttar
og auðveldar í notkun. Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum
stærðum og gerðum, með eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Verðdæmi:
Meðgámi
geturþú
levst vandann
Gámur er ódýr lausn á hverskyns geymsluvandamálum, hvort
sem þú ert flutningabílstjóri, verktaki, fiskverkandi eða bóndi.
Með því að fella gám að umhverfinu getur hann hentað sem
geymsla við sumarbústaði eða golfvelli og á fleiri stöðum.
Hjá Hafnarbakka færðu margar gerðir af gámum. Við seljum eða
leigjum, notaða eða nýja stálgáma, frystigáma, hálfgáma,
einangraða gáma og fl.
»
HAFNARBAKKI
Hafnarbakki hf. Suðurhöfninni Hafnarfirði
Sími 565 2733 Fax 565 2735
Skinnaverð sveiflast
Verð á refaskinnum er ekki núgu gott
Síðustu uppboðum söluársins
2001/02 á minka- og refa-
skinnum er nú lokið með hinum
árlegu septemberuppboðum í
bæði Danmörku og Finnlandi.
Að sögn Einars Einarsson
ráðunautar í loðdýrarækt gekk
sala á minkaskinnum vel á ný-
loknu söluári. Meðalskinnaverð
uppboðshússins í Kaupmanna-
höfn er 216 Dkr (ca. 2.400 kr),
sem er um 200 kr hærra en í
fyrra þegar tekið hefur verið
tillit til þróunar gengis. Það má í
raun segja að markaðurinn fvrir
minkaskinn hafi verið mjög
stöðugur síðustu þrjú ár.
Meðalverðið hefur verið frá 200-
216 Dkr og salan 100% ef horft
er á bæði uppboðshúsin.
Auðvitað hefur verðið sveiflast á
milli litartegunda og uppboða en
það verður að teljast eðlilegt á
vöru sem seld er á frjálsum
markaði og stjórnast meira og
minna af tískusveiflum, sagði
Einar.
„Salan á refaskinnum hefur
hins vegar ekki gengið eins vel og
hafa þau því miður lækkað jafnt og
þétt allt þetta söluár, og nú síðast
um 8-15%. Salan hefur líka verið
treg eða frá 50-80%. Það er erfitt
að segja til um framhaldið en verð
á refaskinnum hefur ætíð verið
mun sveiflukenndara en á minka-
skinnum. Kaupendur sögðu á
liðnu ári að þeir væru ekki tilbúnir
til að halda áfram að kaupa
refaskinn á jafnháu verði og þá
tíðkaðist.
Nú eru verðin á bilinu 4.000 til
5.500 kr, en hvort jafnvægi hafi
náðst er ekki gott að segja til um.
Margt bendir til þess en fátt er
hægt að fullyrða. Ékkert bendir til
að framboð aukist í bráð og líklegt
er að það verði samdráttur í
framleiðslu refaskinna," sagði
Einar.
Einar sagði að nú reyndi á
hvort íslenskir bændur gætu
framleitt skinn fyrir þessi verð eða
ekki. „Ljóst er að minkabændur í
nágrannalöndunum eru ánægðir
með þessi verð. Til þess að
íslenskir bændur séu sam-
keppnishæfir verður framleiðslu-
kostnaðurinn að vera svipaður. Ef
hann er hærri hér á landi getur
aðeins eitt gerst - loðdýraræktin
skreppur saman eða hverfur,"
sagði Einar.
FRAMLHtÐANDI:
Antec
Intematkxial
www.antecfnt.com
HEtLDSÓLUDREIFING:
PharmaNor
Hörgatúnl 2,220 Garöabæ
Sfml 535 7000
www.pharmanor.ls
ALHLIÐA SÓTTHREINSIEFNI
VOLDUGT VOPIM GEGIM SÝKLUM
V HÆTTULÍTIÐ FÓLKI OG DÝRUM
V UMHVERFISVÆNT