Bændablaðið - 17.09.2002, Side 13
Þriðjudagur 17. september 2002
BÆNDABLAÐIÐ
13
Hreint umhverfi Hreinar íslenskar landhdnnOnrafnrilir
Staðsetning rotþróa og
siturlagna er háð
staðháttum á hverjum stað.
Eftirfarandi hluti ætti að
hafa í huga við staðarval:
■Ekki nœr lóðarmörkum en
10 m.
•5-10 mfrá húsvegg.
■Möguleg lyktarvandamál.
■Gott aðgengi til tæmingar.
■ Grunnvatnsstaða.
■Minnst 300 mfjarlægðfrá
næsta vatnsbóli.
Aldrei er of varlega farið
efnýtanleg vatnsból eru í
nágrenni byggðar.
Staðsetja skal lagnir og
rotþrær í samráði við
heilbrigðiseftirlit þegar
slíkar aðstæður koma
upp./BÞ
Skólp frá mjólkurhúsum
inniheldur yfirleitt ekki mikið
grugg sem hægt er að botnfella.
Einnig hemja sápur og önnur efni
gerjun, þannig að rotþrær eru ekki
nothæfar til að hreinsa þvottavatn
frá mjólkurhúsum.
Skólp frá mjólkurhúsum ætti
því að sitra í sérstaka siturlögn eða
stórgrýtissvelg.
Fráveitu frá salemum í fjósum
á að veita í amk. 1500 1. 3ja hólfa
rotþró með sérstöku malarbeði.
Frágangur á í öllum atriðum að
vera eins og við rotþrær við
íbúðarhús.
Fituskilja
Mjólkurfita getur stíflað situr-
lagnir og svelgi. Fitan sest á lagnir
og myndar skán sem getur stíflað
þær með tímanum.
Þess vegna er ráðlegt að veita
skólpinu í gegnum fituskilju. í
fituskilju er fitu fleytt ofan af við
hæfilegan straumhraða. Fituskilja
er ekki hugsuð til niðurbrots á
neinum efnum, heldur eingöngu
til að skilja fitu frá.
Eftirfarandi atriði þarf að hafa
í huga við útfærslu á fituskilju:
100 1 tunna.
Góður aðgangur til
tæmingar.
Loftræstistútur.
Regluleg tæming, því
fita verður fljótt illa lyktandi.
Fleytibretti eða T-stútur
við útrás.
Dæmi um frágang á fituskilju
má sjá á mynd 6.
Gott er að leiða kælivatn
framhjá fituskiljunni.
Ef hella þarf mjólk niður er
gott að gera það eftir þvott svo
fituskiljan nái að skila hlutverki
sínu. /BÞ
Gátlisti - Er allt í lagi með rotþróna hjá þér?
Þverskurður
af rotþró
1.
Hefur rotþróin verið tæmd á síðustu árum?
□ Já □ Nei
2.
Hefur fagaðili skoðað þróna og athugað
virkni hennar?
□ Já □ Nei
3.
Hefur heilbrigðisfulltrúi samþykkt
staðsetningu þróarinnar?
□ Já □ Nei
4.
Fara sterk hreinsiefni í rotþróna sem geta
skert örveruvirknina?
□ Já □ Nei
5.
Er vatnssalernið notað sem ruslafata?
□ Já □ Nei *
6.
Er óþarft vatnsrennsli eða síleki í krönum
hússins? □ Já □ Nei
7. Fer regnvatn í rotþróna?
□ Já □ Nei
8.
Kemst vatn úr heitum potti í rotþróna?
□ Já □ Nei
9.
Fara þungir bílar og vinnuvélar nálægt rot-
þrónni og siturlögninni?
□ Já □ Nei
10.
Er rotþróin staðsett nálægt heitum hverum
eða lögnum?
□ Já □ Nei
11.
Er meðhöndlun seyru í samræmi við
reglugerð 799/1999?
□ Já □ Nei
12.
Er uppdráttur af fráveitunni á
holræsateikningu hússins?
□ Já □ Nei
13. Er skólpvatn úr rotþrónni leitt um
siturlögn?
□ Já □ Nei
Stærri rotþró virkar yfirleitt betur en
smærri og þarfnast sjaldnar tæmingar.
Rotþrær þurfa engin töfraefni, hvorki til að
koma þeim af stað eða til hreinsunar. Það
eina sem þarf er góður frágangur með situr-
lögn, skólprennsli og reglulegum tæmingum.
Að lokum er rétt að taka fram að rotþrær
þarfnast viðhalds eins og hvert annað tæki.
Stundum þarf að þreifa sig áfram til að finna
bestu lausnina. En besta lausnin er sú sem
hreinsar skólpið þannig að það valdi ekki
skaða í umhverfinu og kostar sem minnst til
lengri tíma.
‘(kaffisíur, feiti, bleyjur, blauttuskur, þykk eldhús-
bréf, sígarettustubbar, eyrnapinnar, tannþræðlr og álíka
sorp gera ekkert annað en að stuðla að auknum við-
haldskostnaði í þrónnl)
Til að rotþró geti skilað
hlutverki sínu þarf skólpið
að fá að renna hægt í
gegnum hana. Rotþró getur
verið hætt að virka án þess
að stíflast, því straumrásir
geta myndast í seyrunni og
rennur þá skólpið með
svipuðum hraða í gegnum
þróna og í lögnunum. Þess
vegna er nauðsynlegt að
fylgjast vel með og tæma
þróna reglulega. Einnig
þéttist setið í þrónni þannig
að erfitt getur verið með
tæmingu.
Allt skólp frá venjulegu
heimilishaldi má fara í
þróna. Þróin nær yfirleitt að
deyfa áhrif eiturefna þannig
að gerjun sé tryggð.
Ef gerjun í rotþró stöðvast,
er það oft vegna of lágs
sýrustigs. Sýrustig í rotþróm
á að vera milli 6 og 8 til að
gerjun geti átt sér stað.
Hægt er að kaupa
pappírsborða í apótekum til
að mæla sýrustigið í þrónni.
Einfaldast er að mæla í
frárennslinu frá þrónni, ef
það er aðgengilegt, annars í
einhverju hólfanna.
Til að hækka sýrustigið er
hægt að hella kalki í klósctt
eða beint í þróna. Ekki má
setja of mikið kalk, því
sýrustig um og yflr 8 hemur
einnig gerjun.
Ef rotþró er of lítil má
stækka hana með því að
bæta við tanki, helmingi af
stærð ráðlagðrar þróar, fyrir
framan þá þró sem er til ,
staðar.
Tæming
Við hönnun flestra rotþróa
er gert ráð fyrir tæmingu á
1-2 ára fresti. Eftirfarandi
atriði þarf að hafa í huga við
tæmingu rotþróa:
Skilja um 1/10 af botnsetinu
eftir til að gerjun fari betur
af stað.
Ef skánin ofan á vatninu er
ekki alveg loftþétt, ætti ekki *
að hreyfa við henni því hún
gegnir hlutverki við
niðurbrot.
Fylla rotþróna með vatni,
svo gerjun komist fyrr í
gang.
Losa skal seyru á
viðurkenndum seyru-
losunarstöðum. Förgun
seyru skal háttað í samræmi *
við reglugerð 799/1999 um
meðhöndlun seyru þannig að
umhverfið mengist ekki og
valdi ekki smithættu. /BÞ