Bændablaðið - 17.09.2002, Síða 14
14
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. september 2002
Hreint umhverfi Hreinar íslenskar landhúnaðarafurOir
Helgi Helgason heilbrigðisfulltrúi á Vesturlandi:
SveitarfélQg í BorgarfirOi
gerðu ðtak í frðrennslismðlum
Á Vcsturlandi eru margir þétt-
býliskjarnar, lögbýli og ekki síst
mikill fjöldi sumarbústaöa í
Norðurárdal og um allan
Borgarfjörð. í síðasta tbl. af
Bændablaöinu var rætt við sér-
fræðinga og bændur um ástand-
ið í frárennslismálum og vatns-
bólum á Suðurlandi. Þaðan
hafði þá nýverið borist skýrsla
um slæmt ástand mála hvað
varðar salmonellu í fráveitu.
Bændablaðið leitaði til Helga
Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa á
Vesturlandi, og spurði hann um
ástand frárennslismála á hinum
fjölmörgu þéttbýlis- og sumar-
bústaðasvæðum þar.
Ástandið misjafnt
„Við getum skipt þessu í
þrennt. I fyrsta lagi eru það lög-
býlin; í annan stað sumarbústaða-
svæðin og í þriðja lagi þéttbýlis-
staðir á Vesturlandi. Ef við lítum á
Vesturland í heild hafa öll sveitar-
félögin gert átak í sínum málum og
komið til móts við íbúana hvað
þetta varðar. Þó skortir nokkuð á
að íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar
og Dalabyggðar hafi notið þessa
við fráveituframkvæmdir á lögbýl-
um. Þetta átak hófst upp úr 1990
og samkvæmt reglugerð eiga frá-
rennslismál í þéttbýli að vera kom-
in í lag fyrir árið 2005. Sveitarfé-
lögin greiddu yfirleitt vinnuna við
að setja niður rotþrær og ganga frá
þeim. Fagmenn voru fengnir til að
setja rotþrærnar niður, enda setur
enginn meðalskussi niður rotþró
nú til dags," sagði Helgi.
I þéttbýliskjömunum er
ástandið ekki gott. Útrásir eru
margar og hreinsun fráveituvatns
nánast engin. Vinna er þó hafin við
að sameina þessar útrásir, en óvíst
að það takist fyrir árið 2005.
Kostnaður við fráveitumannvirki
er mikill og því er slíkum mála-
flokkum oft ýtt til hliðar þegar
fjárhagsáætlun sveitarfélaga er
gerð.
Gott ástand í Borgarfirði
Helgi segir að í þéttbýliskjöm-
um inni í landi, eins og Bifröst,
Reykholti, Kleppjámsreykjum og
Varmalandi sé ástandið í mjög
góðu lagi. Hann segir að öll
sveitarfélögin í Borgarfirðinum
hafi gert átak í sínum frárennslis-
málum og að það sé alger undan-
tekning ef frárennslismál á lög-
býlum þar séu ekki í lagi.
Helgi var spurður um ástandið
í hinum víðlendu og miklu sumar-
bústaðalöndum Borgarfjarðar.
Nýrri bústaðir í lagi
„Árið 1995 kom út leiðbein-
ingabæklingur frá Hollustuvernd
ríkisins um hönnun og frágang við
þriggja hólfa rotþrær. Stuðst hefur
verið við þennan bækling fram til
þessa dags. Frágangur rotþróa
Auglýstu í fjölmiðli
sem fer til þúsunda
íbúa í hinum dreifðu
byggðum landsins.
Auglýstu í
Bændablaðinu!
þeirra sumarbústaða sem byggðir
hafa verið síðan er í fullkomnu
lagi. Áður en reglugerðin var gefin
út voru sumarbústaðaeigendur
með einhver hreinsunarmannvirki,
en ég hygg að mörg þeirra hafi
ekki þjónað þeim tilgangi sem til
var ætlast. En ég veit að margir eru
að kippa málunum í lag hjá sér og
við erum fljótir að frétta ef eitt-
hvað er að í þessum efnum í
sumarbústaðahverfunum," sagði
Helgi.
Víða pottur brotinn
Hann segir að í þéttbýli á
Vesturlandi sé ástand vatnsbóla
víðast hvar í góðu lagi. Á
lögbýlum hafi ekki verið gerð al-
menn úttekt, nema hvað mjólk-
ursamlögin hafi gert úttekt á
ástandi vatnsbóla hjá mjólkur-
framleiðendum. „En það er því
miður víða pottur brotinn í
vatnsbólsmálum á lögbýlum á
Vesturlandi. Eg verð var við að
menn eru hræddir og eru margir
hverjir að hefja aðgerðir til að
lagfæra sín vatnsból. I fyrra var
gefin út reglugerð sem kveður á
um að heilbrigðiseftirlitið skuli
hafa eftirlit með vatnsbólum sem
þjóna matvælaframleiðslu. En
fram að þeim tíma voru
einkavatnsból ekki eftirlitsskyld
og því komum við ekki að þeim
málum," sagði Helgi Helgason.
LANDSSAMBAND
KÚABÆNDA
Átaksnefnd í nautgriparækt
Átaksnefndin, sem hefur umsjón
með sérstöku ffamlagi land-
búnaðarráðherra til átaks í naut-
griparækt, er nú langt komin með
stefnumótunarvinnuna. Þegar
þeirri vinnu lýkur verður átakið
kynnt sérstaklega í Bænda-
blaðinu. Átakið mun birtast kúa-
bændum landsins í nýjum
áherslum varðandi ræktun, rann-
sóknir og leiðbeiningar. Næsti
fundur átaksnefndarinnar er 9.
október, en fulltrúar kúabænda í
nefndinni eru Ásthildur Skjald-
ardóttir, Bakka, Gunnar Sverris-
son, Hrosshaga 2 og Snorri Sig-
urðsson framkvæmdastjóri LK.
Nautakjötsmál
Undanfama mánuði hefur verð á
nautgripakjöti verði stöðugt og
sala gengið ágætlega. Á þessum
tíma er venjulega mikið lfamboð
á kúm til slátrunar, en það sem af
er september hefur framboðið
verið minna en síðustu ár. Gera
má ráð fyrir að álagsgreiðslur á
mjólk og aukning greiðslumarks
valdi því að kúabændur halda
lengur í kýmar nú en undanfarin
ár. Ef fram fer sem horfir em því
líkur á einhverri leiðréttingu á
verði, en eins og margoft hefur
komið tfam stendur verð á naut-
gripakjöti ekki undir framleiðslu-
kosmaði. Benda má á að
mánaðarlegar ffamleiðslu- og
sölutölur nautgripakjöts má sjá
á vef LK, www.naut.is.
Merkingar nautgripa
Eins og flestum á að vera kunnugt
hefur verið sett reglugerð um
merkingar nautgripa (nr.
427/2002). Reglugerðin kveður á
um skyldumerkingar búfjár (þó
ekki sauðfjár) og skulu allir kálfar
sem fæðast eftir I. september
2003 merkjast samkvæmt
ákvæðum reglugerðarinnar.
Tölvudeild BI vinnur nú að upp-
setningu á tölvukerfi sem halda
mun utan um skráningar á grip-
um, en vænta má þess að unnt
verði að taka kerfið í notkun um
næstu áramót.
Afleysingasjóður kúabænda
Kúabændur eru minntir á að
umsóknarfrestur um styrk (fyrir
þriðja ársljórðung 2002) úr
Afleysingasjóði kúabænda er 20.
október nk. Sendið inn staðfest-
ingu um greiðslu launa, s.s.
stimplað lífeyrissjóðsblað eða
RSK-blað, eða afiit af verktaka-
reikningi, ásamt upplýsingum um
umsækjanda. Athugið að forsenda
fyrir styrk er ennffemur að fjöldi
afleysingadaga eða fjöldi vinnu-
stunda komi fram. Styrkur nemur
40% af kostnaði (án vsk.) við
afleysingu í 14 daga, þó ekki
meira en kr. 2.591,- á dag (bundið
við vísitölu). Umsóknareyðublöð
má nálgast á vef LK
(www.naut.is). Ef þú hefurekki
aðgang að veraldarvefnum, má
benda á að héraðsráðunautar hafa
allir slíkt aðgengi. Umsóknir
skulu sendar til skrifstofu LK
(Hvanneyri, pósthólf 1085, 311
Borgamesi), merkt
Afleysingasjóður LK.
Aðalfundur LK
Á aðalfundi LK 2002, sem
haldinn var að Laugum í Sælings-
dal 20.-21. ágúst sl., voru sam-
þykktar fjölmargar ályktanir er
varða helstu hagsmunamál kúa-
bænda. Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér ályktanir aðalfundarins
er bent á að hægt er að nálgast
þær á vef LK: www.naut.is.
Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri LK.
Eftirlit með rotþróm og losun seyru úr þeim
Öðru hvoru koma upp veikindatilfelli sem rekja má til rangra staðsetninga á rotþróm, siturlagna frá
þeim eða losunar seyru. Vatnsból hafa mengast og fólk veikst. Þetta hefur t.d. átt sér stað á ýmsum
frístunda- og sumarhúsasvæðum.
Lögð er áhersla á nauðsyn þess að rotþrær séu teknar út af byggingafulltrúa, heilbrigðiseftirliti eða
löggiltum pípulagnameistara. Þetta á bæði við staðsetningu þessara mannvirkja og frágang þeirra.
Einnig þurfa íbúar og sveitarfélög að huga betur að losun seyru úr rotþróm; Ábyrgir aðilar þurfa að sjá
um verkþáttinn og ekki er sama hvar seyran er losuð. Einungis er heimilt að losa seyru á þeim
stöðum sem viðurkenndir eru af heilbrigðisnefnd/heilbrigðiseftirliti. Nauðsynlegt er einnig að þeir aðilar
er veita umrædda þjónustu hafi til þess starfsleyfi.
Ætla má að æskilegt sé að framkvæmd ofannefnds verði á vegum viðkomandi sveitarfélags, árlega
eða annaðhvert ár eftir aðstæðum.
Ýmis vandkvæði tengjast losun eða nýtingu á seyru, t.d. það er snýr að því að gera gerla- og
bakteríuflóru seyrunnar óvirka, minnkun á flutningum vatns úr seyru o.fl. íblöndun áburðarkalks hjálpar
mikið við að gera bakteríur óskaðlegar. Sé seyra notuð til uppgræðslu lands eða skógræktar er
nauðsynlegt að herfa hana niður eða plægja, en ávallt skal taka tillit til vatnsbóla við slíka vinnu. Ekki
skal nota seyru á matjurtagarða, kornakra eða fóðurkálsakra nema seyran sé sérstaklega
meðhöndluð. /Úr gögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.
LANDSTÚLPI1F)
Mykjupokinn
# Pokinn er lokaður - lágmarksuppgufun köfnunarefnis
# Auðvelt að setja upp, fylla og tæma
Stærðir 200 - 4000 m3
Nú eru um þrír mánuðir liðnir síðan fyrsti bóndinn tók þessa
athyglisverðu nýjung í notkun hér á landi. Það sannaðist hjá honum
að uppsetning er afar einföld og fljótleg, og pokinn hefur staðið undir
öllum væntingum enn sem komið er. Sjón er sögu ríkari.
Ath. Einnig hægt að fá færanlega poka fyrir tímabundna notkun.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 919