Bændablaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 16
16
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. september 2002
Grœnmetið í sókn
Grænmeti er greinilega að
verða dagleg fæða fjölmargra
íslendinga. Samkvæmt nýrri
norrænni samanburðar-
rannsókn borða 59%
Islendinga á aidrinum 15-74
ára grænmeti a.m.k. fímm
sinnum í viku. Konur eru þó
mun atkvæðameiri í
grænmetisneyslunni en karlar,
og eins borðar fólk á
höfuðborgarsvæðinu grænmeti
heldur oftar en fólk á
landsbyggðinni. Tekjur og
aldur skipta líka máli, lægsti
tekjuhópurinn borðar sjaldnar
grænmeti en þeir tekjuhærri og
yngsti aldurshópurinn sjaldnar
en þeir eldri. Það sem vegur
langþyngst er þó menntunin,
þeir sem hafa verið iengur í
skóla borða mun oftar
grænmeti en þeir sem hafa
styttri skólagöngu að baki.
Unga fólkið
borðar sjaldnar fisk
Þegar fiskneysla er annars
vegar skiptir aldurinn meginmáli.
Elsti aldurshópurinn borðar fisk
tvisvar sinnum oftar en yngsti
aldurshópurinn í könnuninni.
Þegar á heildina er litið virðist
fiskur þó ekki vera að hverfa af
borðum landans, 85% segjast
borða fisk a.m.k. einu sinni í
viku, og tæpur þriðjungur borðar
fiskþrisvar í viku eða oftar.
I frétt frá Manneldisráði segir
að þessar niðurstöður gefi tilefni
til nokkurrar bjartsýni um
hollustu mataræðis landsmanna,
þótt enn megi bæta um betur. Til
dæmis er nokkuð langt í land með
að þorri fólks
nái hollustu-
markmiðum um
fimm skammta
á dag af
grænmeti og
ávöxtum.
Aðeins einn af
hverjum tíu
virðist ná því
marki. Hitt er
ekki síður
áhyggjuefni að
ungt fólk
borðar sjaldnar
fisk, grænmeti
og ávexti en
þeir eldri, en því oftar steiktar eða
franskar kartöflur. Neysla
skyndibita meðal ungs fólks á
væntanlega sinn þátt í þessari
niðurstöðu, en slík fæða
einkennist sjaldan af miklu
grænmeti, ávöxtum eða fiski.
Meira framboð á heilsusamlegum
skyndibitum og tilbúnum réttum
er hugsanlega leið til að bæta
mataræði ungs fólks. Eins má
ætla að sú verðlækkun sem hefur
orðið á flestum tegundum
grænmetis síðustu mánuði, hvetji
ungt fólk ekki síður en það eldra,
til að borða meira grænmeti.
Rannsóknin var gerð á vegum
norræns vinnuhóps með aðild
Manneldisráðs og var hún kostuð
af Norrænu ráðherranefndinni.
Könnunin fór fram í apríl til maí
á öllum Norðurlöndum og
Eystrasaltslöndum en niðurstöður
frá hinum löndunum verða birtar
síðar. Hér á landi sá Gallup á
íslandi um framkvæmdina og
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
styrkti einnig rannsóknina.
Könnunin fór fram í gegnum
síma og voru þátttakendur 1002.
Ferskir ávextir ekki
dagleg fœða margra
Af einhverjum ástæðum njóta ferskir ávextir ekki sömu hylli
og grænmetið, aðeins þriðji hver maður segist fá sér ávöxt eða
ber a.m.k. fímm sinnum í viku. Rétt eins og með grænmetið, þá
eru það konur, fólk af höfuðborgarsvæðinu og þeir
háskólagengnu sem borða oftast ávexti. Tekjur hafa hins vegar
ekki sömu áhrif á ávaxtaneysluna og á grænmetið, þeir
tekjulægstu borða ekki síður ávexti en þeir tekjumeiri.
Upplýsingar um 200
púsund nautgripi í Huppu
Eins og sagði á forsíðu opnaði
Guðni Ágústsson, ráðherra,
tölvukerfið Huppu á sýningunni
Kýr 2002.1 þessari fyrstu útgáfu
Huppu er opnað fyrir aðgang
búnaðarsambanda, en næsti
áfangi verður að opna aðgang
fyrir alla skýrsluhaldara í naut-
griparækt. Með Huppu er að-
gangur ráðunauta að gagna-
grunni Bændasamtaka Is-
lands opnaður, sem mun
auðvelda þeirra ráðgjafar-
störf. Þegar fram líða
stundir munu bændur geta
notað Huppu við nautaval
og skráð sjálfír upplýsingar
um sína gripi þegar ein-
staklingsmerkingar verða
orðnar útbreiddar.
Ljóst er að kerfið mun
gera allar upplýsingar aðgengilegri
og vonandi verða til þess að bæta
enn árangur í nautgriparæktinni.
Að sögn Jóns B. Lorange,
verkefnisstjóra Huppu, byggir
kerfið á sömu tækni og
WorldFengur. Eins og kunnugt er
hefur hann hlotið góðar viðtökur
bæði hér heima og erlendis. Að
nokkru leyti er Huppa unnin af
sömu starfsmönnum og smíðuðu
WorldFeng. Aðalforritari er Þor-
berg Þ. Þorbergsson og gagna-
grunnsforritari er Ingibjörg Péturs-
dóttir. Faglegir ráðunautar eru Jón
Viðar Jónmundsson og Ágúst
Sigurðsson.
Tölvukerfið hlaut nafnið
Huppa til heiðurs ættmóður ís-
lenska kúastofnsins, Huppu 12 á
Kluftum í Hrunamannahreppi, en
fullyrða má að rekja megi ættir
allra nautgripa af innlendu kyni til
hennar. I bókinni Skýrt og
skorinort eftir Helga á Hrafnkels-
stöðum er heill kafli um Huppu á
Kluftum. Þar segir meðal annars:
„Við skulum bregða okkur upp í
Hrunamannahrepp. Þar gerðist það
3. nóvember 1926, að fæddist lítill
kvígukálfur, brandhuppóttur
og þar af leiðandi þrílitur og
var það í þá daga talið mikið
gæðaeinkenni, að kýr urðu
þrílitar, því mjólk úr þrílitri
kú var til margra hluta
nytsamleg í þá daga. Sem
betur fór var kusa litla sett á,
og fékk gott uppeldi. Það get
ég vottað. Eftir 30 ár, eða
1956, var Páll Zóphoníasson,
sem þá var nautgriparæktar-
ráðunautur, að blaða í skýrslum frá
nautgripafélögum af öllu landinu
og þá kom á daginn að
kynbótagripir undan Huppu á
Kluftum voru komnir í allar sýslur
landsins. Páll sagði mér þetta
sjálfur og bætti við, að líklega væri
þetta heimsmet."
í bók Helga er sögð saga um
það að Murta, langamma Huppu á
Kluftum, sé afkvæmi "huldu-
tudda", eða bergbúa sem breytti
sér í tudda til þess að bæta kúa-
kynið hjá bændum í Hruna-
mannahreppi.
A meðfylgjandi mynd er
Guðni Ágústsson að opna nýja
kerfið.
Bænda- f IULORÁ^ \ j ;amt V WTURÍ wr GRoHli V E TNNIC ‘ jTVASI ' Á SVJK HUÓM SYAHí' i
blaðs . i t TÓRM- m c J IKdAlF- 1R t t Roku mu
Y ^ 111! g’qðah JLDl
AANN5- NAFN
"oTA- MRfiuR 1 ÖTLiLA wf: 0FHS
COTT TRÉ
/■N 1 Sr yofauR DLMAR 13 IEFEHGI
SHDAR skemja
O JÖL0I L , ~ I /jN6ER'» HKÓSA HÖLDUR s LYKT- Aðl ~15 FLAKKS Fllica
1 föLD
FbÐRI DRUHUR
(/) (/) - íXvX-x-x-X: ElRi MuNN- MÆU 4 V í i ? TÓK FRF.S7- Abi 6RAC6 A5KAR
V/N- cjarn- LEIKI mmmx •X-X-X-X-Xv. - 5 1 H'ASKI TR'fn D'AI
SöNC- fugl HRtYf- !SL 1
CQ FTLIR SN/EDDI IKINDIIN 1111 SJ'D MA&R- lil CRuNlR 6AR-6A I TÓC
STEfNA érLI-fi
ÖL)> I " feíSíífííííí: ' ' "■ L’lK SJAL0- &ÆFAR FITLA srm ENDlR L'AT- 6RACÖ
SP'/m 'ALP.AST
0) ! T •lÍýÍÍ'/XX'íx’-: k k 0 3 FJÖR J0 FLÝTIR MRG- REVNDA $ 0
NÆ-ÐI
þRÆLL DREIFA llii TITRI Fldgg Bldskw 12 Gkm 6LEAI FLÖKT
ARfiÁ UPPHAf
.tMILO
3 ! j i 20 ElRfiAR- LEYSI fuc-l STIHG REI-6I GRÍIH- IR LElflSLA b ÓVÆTT- uR
HUbP 4 7Eb7r O D t7\CT_ II htRji REKJAN \t BERC- |V» 'A | A
Ihol- |íM£A OAvJÖ51 SVI-ÖA HÓTlR JA fN- . INV m?\- BRAUfl
': w. ’.. ’ ' ' VAXI LYKT- Afil £KKI 1 'AKAFA VAN- L'lflAtV
MJAK- Afil KJÖKtlR
ö Íͧ:§Íi?$ m %MZu'rii\ MÆTUÍ ) KVRRfi
LRlf FUÓTlE HóÓH KALDI
MöRG jivx-i-x-xixi: iiiii$i%s$ii KDMIST Ct-Ð KÖCG- II | \fJfJ
SáMT uR RÓTA tllll xi^iiiii iiii KEYRI ÖXULL ULLln /i SToríG
SPROTA i MANNS- nafn SKUN0- U-fluM 2T
//X
5Pl L p'm 15 I þJUÓSKi \ ÓSKERT
Bókstafirnir í tölusetta reitnum mynda nafn á skáldsögu eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.. Sendu lausn til Bændablaðsins
fyrir 24. september. Við veitum ein vegleg bókaverðlaun!