Bændablaðið - 17.09.2002, Side 23
f
Þriðjudagur 17. september 2002
BÆNDABLAÐIÐ
23
A' DeLaval
HITAVATNSKÚTAR
MeiPi kjittbipgOip í
landinu en reiknaO var
með liegar ráðherra tík
„Stjórn Bændasamtaka íslands
hefur samþykkt, með vísan í 29.
grein laga um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum
nr. 99/1993, að Ieggja til
eftirfarandi útflutningshlutfall
fyrir dilkakjöt, sem fellur til við
haustslátrun 2002 og síðar. 1.
september - 31. október verði
hlutfallið 28%, 16% frá 1. til 17.
nóvember og 8% frá 18.
nóvember og þar til annað
verður ákveðið. Þá er lagt til, að
útflutningshlutfall fyrir kjöt af
fullorðnu fé verði 0%, eins og
verið hefur undangengin ár,”
segir í upphafl bréfs stjórnar
Bændasamtaka Islands til
Guðna Ágústssonar landbúnað-
arráðherra vegna útflutnings-
hlutfalls dilkakjöts í sláturtíð
2002. Bréfíð var sent 22. ágúst.
“Forsendur fyrir tillögunni um
28% útflutningshlutfall í haust-
sláturtíð er að finna í meðfylgjandi
bréfi frá Markaðsráði kindakjöts.
Þar kemur fram, að ársframleiðsla
dilkakjöts er áætluð 7918 tonn, og
er sú spá byggð á ásetningi sl.
haust og sömu afurðum eftir kind
og á síðasta ári. Að teknu tilliti til
heimtöku bænda í sláturtíð, undan-
þágum þeirra sem fylgja sk. 0,7
reglu og áætlaðri slátrun utan
haustsláturtíðar, reiknast út-
flutningshlutfall haustsins af 6818
tonnum.
Sala dilkakjöts sl. 12 mánuði
nam 6107 tonnum og hafði dregist
saman um 3,2% (þ.e. ca 200 tonn)
frá næstu 12 mánuðum þar á
undan. Áætlað er að birgðir dilka-
kjöts um næstu mánaðamót til sölu
innanlands verði 757 tonn. Þó ber
að geta þess, að af þeim 369 tonn-
um, sem talin eru í birgðum til út-
flutnings, eru um 170 tonn, sem
Kjötumboðið og Sláturfélag
Vesturlands höfðu ekki lokið
útflutningi á, og litlar horfur eru á,
að takast megi að fjármagna
útflutning á. Því er í raun réttara að
áætla birgðir, sem taka þarf tillit til
við ákvörðun útflutningshlutfalls,
sem u.þ.b. 900 tonn.
Þeir sem fjalla um sölumál
dilkakjöts eru sammála um, að 400
tonn séu nægilegar birgðir í byrjun
september. Ætla má, að kostnaður
við birgðahald á ársgrunni nemi 60
- 80 kr/ kg eða 6-8 millj. kr á ári
fyrir hver 100 tonn. Þá er hæfileg
birgðastaða forsenda afurðalána-
fyrirgreiðslu og því trygging
bænda og sláturleyfishafa fyrir
því, að unnt sé að greiða bændum
fyrir sauðfjárafurðir með eðlileg-
um hætti.
Fram kom í máli slátur-
leyfishafa á fundi Markaðsráðs
kindakjöts 21. ágúst sl. að reikna
megi með stórfelldri aukningu
fuglakjöts og einnig svínakjöts á
næstu mánuðum, jafnvel svo nemi
yfir 2000 tonnum á ársgrundvelli.
Samkeppnin verði því grimm á
kjötmarkaði næstu mánuði, og því
verði erfitt að viðhalda óbreyttri
sölu dilkakjöts næsta ár.
Engu að síður er það
niðurstaða markaðsráðsins og
stjómar Bændasamtaka Islands að
miða tillöguna við sömu sölu,
6107 tonn, en stefna jafnframt að
200 tonna birgðaminnkun á árinu.
Dragist salan saman jafnt og árið
áður, verður birgðastaðan næsta
haust lík og nú, en gangi salan
betur en hér er gert ráð fyrir, væri
það fagnaðarefni, þar sem í raun
þarf að minnka birgðir mun meir
en að er stefnt. Það myndi leiða til
minni kostnaðar við birgðahald og
lægra útflutningshlutfalls að ári."
Birgðirnar enn meiri
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna sagði í samtali
við Bændablaðið að eins og fram
kemur í bréfinu telji stjóm BÍ að
kjötbirgðir í landinu séu allt of
miklar og það hamli sölustarfinu.
„Það torveldar afurðafyrir-
greiðslu og staðgreiðslu á
afurðunum og þess vegna verður
að ná birgðunum niður. Þá er því
við að bæta að nýverið var fram-
kvæmd birgðatalning í öllum
sláturhúsum landsins og birgða-
geymslum þeirra og þá kom í ljós
að birgðimar em ívið meiri en við
reiknuðum með þannig að staðan
er enn verri en fram kemur í bréfi
okkar til ráðherra," sagði Ari
Teitsson.
- Fjós eru okkar fag -
• Weelink fóðrunarkerfi
• Innréttingar og básadýnur
- ath! bæði í legubásafjós og básafiós.
• Steinrimlar og flórsköfukerfi í gripahús
• Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnun fjósa
- hafið samband, við mætum á staðinn
• Loftræstingar
- í nýjar og eldri byggingar
Lárus
s: 437 0023 / 869 4275
Arnar Bjarni
s: 486 5656/898 9190
Suzuki- fjórhjól hafa fyrir löngu sannað sig í sveitum landsins sem
áreiðanleg og endingargóð vinnutæki. Fáanleg frá 80 til 500 cc,
með drifi á einum eða tveimur öxlum, beinskipt eða sjálfskipt.
EIGUM NOKKUR SÝNINGAHJÓL
SEM SELJAST MEÐ AFSLÆTTI
$ SUZUKI
SUZUKI UMBOÐIÐ EHF
KAPLAHRAUN 1, 220 HAFNAFJÖROUR
SlMI: 565 1725. WWW.SUZUKI.IS
Bændablaðið
Utgáfudagar fram að áramótum: 1. október, 15. október, 29. október,
12. nóvmeber, 26. nóvember og 10. desember. Skilafrestur auglýsinga
er nokkrum dögum fyrir útgáfudag.
Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra sagðist
taka tillit til þess sem
Bændasamtökin og
Markaðsráð kindakjöts segja
í þessum efnum.
„Mér þykir hins vegar
stökkið úr 21% upp í 28%
vera of mikið og erfítt fyrir
fjárhag sauðfjárbænda. Eina
sem ég geri er að ég viður-
kenni vandræðin vegna
Goðamálsins, aukningu i
framleiðslu og minni kinda-
kjötsneyslu. Eg neita hins
vegar að keyra birgðirnar
svona hratt niður eins og lagt
var til. Það tel ég að verði að
gera á lengri tíma og þess
vegna tel ég að mín ákvörðun
sé sanngjarnari gagnvart
bændum landsins. Um leið er
ég að hvetja sláturleyfíshafa
og sauðfjárbændur til að
sýna það í verki að
haustsláturtíð er uppskeru-
hátíð heimilanna. Eg tel að
sláturleyfíshafar og sauðf-
járbændur þurfí að beita
öllum tiltækum ráðum til að
halda stöðu sinni á
markaðnum - allt annað er
uppgjöf og nægur er
samdrátturinn fyrir. Ég
brýni þá til að efla söluna til
þess að búfjársamningurinn
megi halda út tímabilið,"
sagði Guðni Ágústsson.
Ryðfríir að utan og innan
Sér úttak í þvottavél
Hámarkshiti 95°C
Áreiðanlegir, öruggir og
endingargóðir
Sérhannaðir fyrir
mjólkurframleiðendur
Stillanlegur
blöndunarventill
Sér heitavatnsúttak
þvottavél „95°C"
Umskiptanleg
tæringarvöm
Ytra byrði úr
ryðfríu stáli
„Holyurethane' einangrun
án umhverfiseyðandi efna
Innra byrði úr ryðfríu stáli
Hitaelement
| Oryggisventill f
Lágmúli 7
108 Reykjavík
sími 588-2600,
fax 588-2601
VÉIAVER? 3^46^-4007