Bændablaðið - 25.11.2003, Síða 5
Þridjudagur 25. nóvember 2003
5
Mikill áhugi
á Agromek
Svo virðist sem stefni í metaðsókn frá Islandi á landbúnaðar-
sýninguna Agromek í Herning í Danmörku. Karl Sigurhjartarson,
framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Vesturlands, sem sér um ferðina,
segir að það hafi aldrei fyrr jafn margir bókað sig svona snemma en
um 60 manns hefur nú þegar bókað sig í ferðina þótt tveir og hálfur
mánuður sé til brottfarar. Karl segir að flestir hafi þátttakendur
orðið 70. Hann segir að ferðin sé um það bil að fyllast.
Einnig er búið að ákveða
bændaferð á the Royal Highland
Show í Edinborg í Skotlandi. Þessi
sýning snýst um flestar greinar bú-
skapar og er fjár-
búskap gerð þar
góð skil. I sumar
er leið fór hópur
bænda á þessa
sýningu þar sem
Ami Snæbjöms-
son, hlunninda-
ráðunautur BÍ, var
fararstjóri. Karl
segir að menn hafi.
látið afar vel af!
þessari ferð og því
verði hún endur-
tekin í júní 2004.
Þá em á
teikniborðinu tvær
aðrar bændaferðir
sem Karl segir að
séu enn sem komið er hugmyndir
sem eftir er að vinna úr. Onnur
þeirra, ef af verður, yrði ferð til
Noregs og/eða Svíþjóðar til að
skoða komræktar- og raforku-
búskap. Hin hugmynd sem ögn
villtari gerir ráð fyrir að blanda
saman ferð á formúlukeppni í
Þýskalandi og skoðun á því
nýjasta í fjósum og fjárhúsum.
Karl tók það hins vegar skýrt fram
að enn sem komið er væru þetta
bara hugmyndir.
Hann sagði
vera rífandi gang
hjá Ferðaskrifstofú
Vesturlands sem
selur í ýmiss konar
ferðir svo sem
golfferðir, orlofs-
ferðir hvers konar
og viðskiptaferðir.
Ferðaskrifstofan
selur mikið fyrir
flugfélagið lceland
Express og hefúr
gott samband við
það flugfélag.
Langmestu umsvif
Ferðaskrifstofú
Vesturlands em
hins vegar við að flytja erlenda
ferðamenn til landsins. „Það er
langstærsti hlutinn í okkar starfi,"
sagði Karl Sigurhjartarson. Á
meðfylgjandi mynd má sjá
nokkra Agromekfara að skoða
mjaltabás. Áhuginn leynir sér
ekki.
Samvinna um
þekkingarmiOlun
á Hvanneyri
Landbúnaðarháskólinn á Hvann-
eyri og Orkuveita Reykjavíkur
hafa gert með sér samstarfs-
samning sem felur í sér gagn-
kvæma þekkingarmiðlun.
Starfsmenn Orkuveitunnar
munu koma að kennslu og
rannsóknum við háskólann og
geta sjálfir sótt þekkingu
þangað með því að sækja ein-
staka námsáfanga.
Það voru Magnús B. Jónsson
rektor og Ásgeir Margeirsson, að-
stoðarforstjóri OR, sem
undirrituðu samning þessa efnis í
fostudaginn 14. nóvember. Við
það sama tækifæri var tekið í
notkun nýtt og glæsilegt tölvuver
háskólans að Hvanneyrarbraut 3
en sú aðstaða hefúr verið myndar-
lega studd af Orkuveitunni sem
einnig hefur veitt sfyrk til tölvu-
kaupa. Þar er að fínna 19 nýjar
öflugar tölvur sem henta vel þeim
stóru forritum sem nemendur
háskólans þurfa að nota í námi
sínu. Tölvunum fylgja stórir flatir
skjáir með góðri upplausn. Enn-
fremur er fúllkominn kennslu-
búnaður í húsnæðinu. Fleiri fyrir-
tæki hafa komið að kostun
tölvanna, þ.e. Sparisjóður
Mýrasýslu, Norðurál, Kaupfélag
Borgfirðinga, Vátryggingafélag
íslands, Opin kerfi, Sjóvá Al-
mennar og Búnaðarbanki íslands.
Samningur þessi felur einnig í
sér samstarf LBH og OR um
rannsóknir á þeim sviðum sem
tilheyra námsbrautum skólans.
Þar má nefna umhverfismál,
jarðfræði, orkunotkun og orku-
vinnslu, nýtingu jarðvarma,
gæðamál og hönnun veitukerfa
svo nokkuð sé nefnt. Ennfremur
er kveðið á um aðgengi nemenda
og kennara háskólans að upp-
lýsingaveitum OR, þ.m.t.
landupplýsingakerfi.
Við Landbúnaðarháskólann
stunda nú um 160 nemendur nám
og fer þeim ört Qölgandi. Náms-
framboð skólans er fyrst og
fremst á sviði landbúnaðar og
náttúruvísinda og þar eru nú þrjár
námsbrautir á háskólastigi, bú-
vísindi, landnýting og umhverfis-
skipulag, auk búnaðamáms sem
er á framhaldsskólastigi.
Orkuveita Reykjavíkur hefur
kappkostað að styrkja menningar-
og fræðslustarfsemi á starfssvæði
sínu og framlag fyrirtækisins til
skólastarfs á Hvanneyri er þáttur í
þeirri stefnu.
Magnús (t.v.) og Ásgeir takast i hendur eftir að hafa undirritað
samninginn.
Ný og frábær vökvaskipt dráttarvél sem nú þegar hefur fengið
fjölda viðurkenninga fyrir tækni og hönnun þar á meðal:
"Machine of the Year2004” , Vél ársins 2004 kosin af
þýskum blaðamönnum 5 tækniblaða, á Agritechnika í
Hannover s.l. “Silver Medaf á Agritechnika og “Techical
Innovation Awards’’ á EIMA sýningunni á Ítalíu fyrir
fljótstýri “Fast Steer” sem tækninýjung. “Goldin tractor
fordesign” kosin af blaðamönnum 14 evrópskra
tækniblaða fyrir hönnun.
Ný margverðlauna vél frá New Holland
TS-A línan
w, u,c —
Agntschnica 03
2003
Fast Staar™ Systam
I
J
Silvor Madai
forTS-A
Fast Stsar™ Svstam
Meðal nýjunga:
• Fjögurra og sex strokka fjölventla mótorar
með rafstýrðri samrásarinnspýtingu
“Common Rail”
• Aflstýrikerfi gefur 20% aflaukning á aftúrtéik,
umfram skráð hestöfl vélarinnar “Power
Management”.
• Nýtt 4 pósta ökumannshús með 72 db
hljóðeinargrun og opnanlegri sóllúgu.
• Loftkæling á ökumannshúsi “Air condition”
• 8 vinnuljós þar af 2 framan á vélarhlífinni
• Gorma og demparafjöðrun á ökumannshúsi
“Comford Ride”.
• Vökvaskipting hand- og sjálvirk “Electro
Command”
• Rafstýrð vökvaúrtök að aftan
• Fjaðrandi framöxull “Terraglide”
• Aukin beigjuradíus 65° “Supersteer”
• Hraðstýri “Fast Steer”
VEIAVER?
New Holland TS-A fæst í
5 stærðum frá 100 til 136 hestafla
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • www.velaver.is