Bændablaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 9

Bændablaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 25. nóvember 2003 Bændablaðið 9 Vinnsla á kynbnta- mati í nautgriparækt- inni haustið 2003 Margir lcsendur þekkja það að kynbótamat vegna afurða í nautgriparæktinni er unnið tvisvar á ári. í lok október þegar öllum skýrsluskilum fyrir september á að vera lokið þá er unninn útreikningur á kynbóta- mati á grunni þeirra gagna sem þá eru tiltæk. Þessari úrvinnslu er því nú nýlokið og verður hér á eftir gerð grein fyrir þeim breytingum sem þar koma fram. Reyndu nautin, sem eru að koma með mikinn fjölda af nýjum kúm í framleiðslu, eru nautin ffá 1991 og 1992. Hjá 1991 nautun- um er það aðeins Búði 91014, sem þróast í neikvæða átt en mat hans hefúr lækkað um þrjú stig ífá í vetur og er nú 93. Nokkur þessara nauta og sum þeirra sem eiga hvað stærsta dætrahópa sýna jákvæða þróun. Negri 91002 hefur hækkað í 118, Skutur 91026 í 124 og Krossi 91032 í 130 og því ljóst að sérstaklega tvö síðast- töldu nautin eru að skila mörgum feikilega öflugum ungum mjólk- urkúm. Fjöldi ungra dætra, sem komnar eru með upplýsingar í út- reikninga, er enn ffekar tak- markaður hjá 1992 nautunum. Hjá þeim er nánast engar breyt- ingar að sjá ffá eldra mati. Lítum þá á yngri reynd naut sem enn eru í notkun. Talsverður Qöldi úrvalsnautanna ffá 1994 er enn í notkun. Hjá þeim er ekki að sjá neinar breytingar sem skipta máli, mestar eru breytingar hjá Klaka 94005 og Dróma 94025, sem báðir hækka um tvö stig ffá mati í vetur, en Pinkill 94013 lækkar um tvö stig, en er samt áffam fimahár og hæstur þessara nauta sem em í notkun úr þessum hópi, með 125 í afurðamatinu. Með tilliti til afúrða eru þeir einnig báðir með feikigott mat, Breiði 94037 með 121 og Drómi 94025 með 118. Nautin sem eru í notkun úr ár- ganginum ffá 1995 taka einnig hverfandi breytingum frá matinu í vetur. Þar em það hæstu nautin, sem hækka enn, Túni 95024 er kominnmeð 125 og Sproti 95036 með 120. Reynslan er sú að yngsti ár- gangurinn í matinu, í þetta sinn nautin ffá 1996, taki yfirleitt mestum breytingum. Góðu heilli stenst fyrsti dómur að þessu sinni hins vegar ákaflega vel fyrir þessi naut. Nautin sem em í notkun standa nú með eftirfarandi einkunn fyrir afúrðamat (í sviga tilsvarandi einkunn ffá síðast- liðnum vetri). Trefill 96006 114(116), Prakkari 96007 115 (116), Núpur 96013 112 (114), Kalli 96015 106 (105), Úi 96016 100 (99), Dúri 96023 108 (110), Hófúr 96027 125 (123), Fróði 96028 119 (119) og Hvítingur 96032 118 (119). Eins og sjá má koma ekki ffam neinar breytingar í matinu sem gefa tilefni til endur- skoðunar um notkun á þessum nautum. Verðandi nautsfeður, sem eru nautin sem em í mestri notkun, standa allir mjög vel sinn fyrsta dóm. /JVJ Þegar þessi vinnsla er gerð þá er ætíð komin fram mjög sterk vísbcnding um afurðagetu hjá dætrum þeirra nauta sem næst koma til dóms. í febrúar eru það nautin sem fædd voru 1997 sem munu fá sinn dóm. Þetta er fremur stór nautahópur eða samtals 24 naut. A grunni þeirra niðurstaðna sem þegar liggja fyrir má nánast fullyrða að með tilliti til afurðagetu muni þar koma fram öflugasti hópur sem til þessa hefur komið fram í ræktuninni og ná að slá þar út hinn sterka hóp frá 1994. Eins og stundum hefur verið gert þegar slíkir toppar koma þá verður aðeins byrjað að nota einhver af allra efnilegustu nautunum úr þessum hópi sem nautsfeður á næstu mánuðum og tryggja þannig að fyrstu synir þeirra geti komið til notkunar fyrr en ella. /JVJ ÞJARKURINN Helstu tækni- upplýsingar: • 24 hö diselhreyfill. • liðstýrð 4x4. • beygjuradíus 53 sm • breidd 79-99 sm • lyftigeta 800 kg • þyngd 1,495 kg í samvinnu við Schaffer Lader verksmiðjuna í þýskalandi bjóðum við liðléttinga hannaða fyrir íslenskar aðstæður. Tilboðsverð kr. 1.078.000 -i-vsk. 1.342.110 m. vsk. Þegar gæðin skipta máli Sfmi 4800 400 • www.buvelar.is BÆNDUR! Kjötsagir og hakkavélar Ný sending í vikunni. Burstasett og sótthreinsiefni fyrir matvinnsluvélar í miklu úrvali NORDPOST PÓSTVERSLUN Arnarberg ehf sími 555 - 4631 & 568 - 1515 Dugguvogi 6-104 Reykjavík *Verð til bænda á lögbýlum. VÉLATORG ehf CASE á lægra verði en nokkru sinni fyrr. CASE JX85, 85 hö 4X4 verð aðeins kr. 2.590.000* án vsk. með vsk. kr. 3.224.550 CASE JX95, 98 hö 4X4 verð aðeins kr. 2.690.000* án vsk. með vsk. kr. 3.349.050 VÉLATORG ehf - nýr umboðsaðili CASE IH og STEYR dráttarvéla á íslandi - Dalsbraut 1 E, Akureyri, sími 461 4007

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.