Bændablaðið - 25.11.2003, Qupperneq 11
Þriójudagur 25. nóvember 2003
Bæncfablaðið
11
Spar í Kópavogi selur
flokkað lambakjðt
Verslunin Spar við Bæjarlind í
Kópavogi hefur hafið samvinnu
við Fjallalamb á Kópaskeri
undir kjörorðinu "Setjum
lambakjöt í réttan flokk". Að
sögn Ingva R. Guðmundssonar
framkvæmdastjóra þá er ætlun-
in að selja neytendum flokka-
skipt lambakjöt sem Ingvi full-
yrðir að sé í fyrsta skipti á Is-
landi. "Fram til þessa hefur oft
verið ólga í bændum og neyt-
endum vegna þess að bændur fá
greitt fyrir kjötið frá slátur-
leyfishöfum eftir flokkun kjöts-
ins en þessi flokkun skilar sér
aftur á móti ekki til neytenda
sem hafa greitt sama verð fyrir
allt kjöt, sama hvernig það er
flokkað," sagði Ingvi.
Ingvi sagði að flokkamir fái
heiti en ekki verði notuð númer til
að koma í veg fyrir að neytendur
fái á tilfinninguna að ódýrara
kjötið sé síðra. Flokkunum er
skipt upp eftir fitumagni og hold-
fyllingu og fá heitin; Urvals,
Magurt og Fitusprengt+. Verð-
munur er 10% milli flokka. "Það
er von okkar að þetta verði til að
auka neyslu á lambakjöti og ekki
síst að skapa traust á milli bænda,
sláturleyfishafa, smásölunnar og
neytenda," sagði Ingvi.
A meðfylgjandi mynd em þeir
Özur Lárusson (t.v), ifamkvæmda-
stjóri Landsambands sauðfjárbænda
og Ingvi R Guðmundsson.
Nefndir til að fjalla
um mink og ref
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra hefur skipað nefnd sem á
að fjalla um veiðar á mink,
fækkun og hugsanlega útrým-
ingu hans úr íslenskri náttúru.
Hún á einnig að ijalla um stöðu
minksins í íslenskri náttúru, út-
breiðslu og stofnstærð. Enn-
fremur að gera tillögur um
nauðsynlegar aðgerðir til að
draga úr tjóni af völdum hans og
gera tillögur um hvernig staðið
skuli að veiðunum og hvort og
hvernig takast megi að tak-
marka útbreiðslu minks eða út-
rýma honum úr náttúru
landsins. Nefndin á að skila til-
lögum sínum fyrir 1. febrúar
2004.
I nefndinni sitja Ingimar Sig-
urðsson, skrifstofustjóri formaður,
Guðmundur A. Guðmundsson
dýravistffæðingur, Áki Ármann
Jónsson ffá Umhverfisstofnun,
Óðinn Sigþórsson, formaður
Landssambands veiðifélaga, Ari
Teitsson, formaður Bændasam-
takanna, Ámi Snæbjömsson fyrir
æðaræktendur og Guðmundur Óli
Scheving ffá Félagi meindýra-
eyða.
Þá hefúr verið ákveðið að
skipa nefnd sem á að fjalla um
veiðar á ref og stöðu hans í ís-
lenskri náttúm. Nefndin á að skila
tillögum sínum fyrir 1. apríl 2004.
Þessar nefndir em skipaðar
vegna áskorana frá Bænda-
samtökunum, æðarbændum, Sam-
tökum verslunarinnar, Lands-
sambands veiðifélaga og fleirum
um að tekið verði markvissar á
veiðum og veiðiaðferðum á mink
og ref. Almennt er álitið að ref hafi
fjölgað hér á landi undanfarið.
Skoðanakönnun meðal
skotveiðimanna
Umhverlisstofnun hefur kynnt skoðana-
og viðhorfskönnun meðal
skotveiðimanna sem gerð var af
veiðistjórnunarsviði
Umhverfisstofnunar veturinn 2001 og
2002 í samvinnu við Árnþór Þ.
Sigfússon fuglafræðing. Urtak í
könnuninni var eitt þúsund manns, allt
veiðikortahafar og var svarhlutfallið
92%. Aðal markmið könnunarinnar var
að fá vitneskju um viðhorf og hegðun
veiðimanna. Kannað var ýmislegt
viðkomandi veiðum svo sem
veiðiaðferðir, hvernig veiðimenn standa
að skráningu á veiði, val á vopnum,
hvernig veiðiálagið dreifist á veiðitíma
og fleira.
Um 90% svarenda í könnuninni segjast
alltaf gefa upp réttar veiðitölur hvort
heldur þeir skjóta rjúpu, gæsir eða
hrafna.
■
JAPANSKAR DRA TTARVELAR
Japanskar KUBOTA ME9000 dráttarvélar með 94 ha afar þýðgengum díselmótor,
kúplingsfríum vendigír, 18 hraða gírkassa með skriðgír, öflugu vökvakerfi, opnum
beisliendum, góðu öryggishúsi með öflugri miðstöð og loftkælingu, o.fl. - KUBOTA
dráttarvélar eru heimsþekktar fyrir há gæði, afar lága bilanatíðni og mikið rekstraröryggi.
ÞOR HF
REYKJAVIK - AKUREYHI
www.thor.is / Ármúla 11 / 568-1500 / Lónsbakka / 461-1070
A} y<mr sivle.
brother,
Japanska stórfyrirtækið Brother er I fremstu
rðð fyrírtækja í framleiðslu á skrifstofutækjum.
Merkivélar, laserprentarar, faxtæki, plöstunar-
vélar og fjölnotatæki eru að finna I fjölbreyttri
framleiöslulinu Brother. Fyrirtækið hefur það að
markmiði að bjöða endingargóð skrifstofutæki
á mjög samkeppnisfæru verði.
Brother DCP- 4020C - Skanni, prentari, Ijósritunarvél ofl.
Fjölnotatæki Brother DCP-4020C. Frábær litaprentari, „flat bed“ skanni
og Ijósritunarvél með hágæða lit. Tekur algengar stærðir stafrænna mynda-
kubba og prentar beint. Frábært tæki fyrir heimili og minni skrifstofur.
Nóvembertilboð
29.900 kr.
Verð áður 39.900 kr.
Vörunúmer: BHDCP-4020C
Tilboöiö gildir aöeins í nóvember eöa meöan birgöir endast.
SíhSÆans
ísíma 5402050
fliUUU'fr-
Psnninn Hallarmúla 2, slmi 540 2000, Reykjavik
Penninn-Bókval, Hafnarstræti, 91-93, sími 461 5050, Akureyri
www.penninn.is
Brotherfjölnotatæki
- það minnsta í heimi, aðeins 13 sm hátt!