Bændablaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 25. nóvember 2003
iændqblqðið
19
Islenskar mjolkurvfirur vekja
verdskuldaOa afliygli ú stærstu
mjölkurvfirusýningu veraldar!
Fyrir skömmu lauk stœrstu sýningu veraldar á mjólk og
mjólkurafurðum - auk þeirrar tækni sem notuð er í
mjólkuriðnaði. Vélbúnaðurinn var raunar í sérstökum
sölum og var sú sýning nefnd Foodtec Skandinavia.
Sýningin var haldin í Herning á Jótlandi og þetta var í
sjötta skipti sem íslenskur mjólkuriðnaður tekur þátt í
henni. Nú komu frá Islandi rösklega 79 ostasýni og 137
ferskvörusýni. Ohætt er að fullyrða að Islendingar megi
vel við una en þeirfengu 60 verðlaun - 29 verðlaun vegna
sýna í ferskvöru og 31 í ostum. I ostunum fengu
Islendingar 7 gullverðlaun, 9 silfur og 15 brons og í
ferskum mjólkurvörum 4 gull, 13 silfur og 12 brons. Þá er
þess að geta að nú var tekin upp sú nýjung að veitt voru
svokölluð norræn mjólkurverðlaun í ferskvörum. Þar
komust 23 vörur í úrslit og Islendingar áttu þar tvœr
vörur sem hlutu heiðursverðlaun. Þetta var Biomjólk með
mangó og apríkósu og Bioþykkmjólk með 6 kornum og
ferskjum, hvort tveggja frá Mjólkurbúi Flóamanna. Ein
heiðursverðlaun féllu Islendingum í skaut í osti en þaö var
fyrir 150 g Dalabrie frá Mjólkursamlaginu i Búðardal.
Þess má geta að mjólkursamlagið í Borgundarhólmi varð
Norðurlandameistari í ferskvörum ogfékk þann titil fyrir
jógúrt með blönduðum ávöxtum. Jóakim prins, yngri
sonur Margrétar Þórhildar Danadrottningar, heiöraði
þátttakendur með nœrveru sinni. Um 11.000 gestir komu
á sýninguna. Sjá opnu.
Fjölhreyti-
leikinn er
ðtrúlega
- segir Henning Cleusen
sem stjórnaöi sýningunni
Henning Clausen, kennari á
Mjólkurtækniskólanum Dalum
í Odense, stjórnaði framkvæmd
sýningarinnar af mikilli
röggsemi. Henning þekkir vel til
íslensks mjólkuriðnaðar enda
hafa velfflestir
mjólkurfræðingar Iandsins setið
í tímum hjá honum.
Henning sagði að hann sæi
þess greinileg merki að íslensku
vörurnar væru búnar til af fólki
sem hefði numið við Dalum en
þær hefðu þó ýmis sércinkenni.
"Þið hafið sent hingað
glæsilegar vörur og
fjölbreytileikinn er ótrúlega
mikill þegar það er haft í huga
að íslenska þjóðin telur tæp 300
þúsund. Faglega séð eru
vörurnar góðar og þátttaka
ykkar er litrík hvað
umbúðirnar áhrærir." Henning
bætti því við að það væri full
ástæða til að hrósa íslenskum
mjólkuriðnaði fyrir
fjölbreytnina. Það væri
staðreynd að innflutningur á
mjólkurvörum væri afar lítill til
íslands en íslenskur
mjólkuriðnaður byði engu að
síður fram vörur rétt eins og á
Islandi væri háð gríðarlega
hörð samkeppni.
Henning Clausen.