Bændablaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 11
SKOGRÆKTARAÆTLUNIN I LAUGARDAL ÚR SÖGUNNI7 — Beiöni um aukinn mjólkurkvóta bíður afgreiðslu Framleiðsluráðs. Fáist hann er ólíklegt að úr skógræktinni verði. Samninginn má nota annarsstaðar! Enn hefur ekki tekist að hrinda skógræktaráætlun ríkis og bænda í Laugardal í framkvæmd og er málið komið í slíkan hnút að sumir telja hugmyndina endan- lega úr sögunni. Heildarsamningur var tilbúinn til und- irritunar og samþykktur af báðum aðilum, nú á vordög- um, en ekki hefur tekist að ganga að öllum sérkröfum allra bænda. Það sem einkum stendur á er krafa bænda á einum bænum um aukinn mjólkurkvóta sem óvíst er að hægt sé að verða við. Eins og kunnugt er af fréttum ráðgerði landbúnaðarráðuneytið og Skógrækt ríkisins í samvinnu við bændur að rækta upp nytjaskóg í Laugardal. í stað þess að girða skóglendið sérstaklega var gert ráð fyrir að svæðið yrði fjárlaust eins og það hefur verið undanfarin ár vegna riðuniðurskurðar. Annars hefur fjárbúskapur verið á flestum bæjum í Laugardal en auk þess kúabúskapur á 6 af þeim og ylrækt á tveimur en býlin eru 11 talsins. Fljótlega eftir að samningaviðræð- ur voru komnar af stað tilkynnti bóndinn á Laugardalshólum, Frið- geir Stefánsson, að hann treysti sér ekki til að hætta sauðfjárbúskap og var áætluninni þá breytt á þann veg að ákveðið var að girða jörð hans af. í samningi þeim sem síðan hefur verið gerður og tilbúinn er til undir- ritunar, er m.a. gert ráð fyrir að bændur í hreppnum geti haft at- vinnu við skógræktina eins og fjár- magn á fjárlögum leyfir hverju sinni. Fyrst eftir að Friðgeir á Laugar- dalshólum hætti við að vera með stóð á landbúnaðarráðuneytinu að undirrita áætlunina enda taldi það tilkostnað hafa aukist. Þeirri fyrir- stöðu var rutt úr vegi í vetur og var þá ekki annað eftir en að gera sér- samninga við hvern einstakan bónda. Á þeim þætti strandaði málið þar sem bændur á einum af vestari bæjunum í Laugardal telja sig ekki hafa fengið nægilega aukn- ingu í mjólkurkvóta til að geta hætt með sauðfé. í samtali við Bænda- blaðið sagði Gunnar Guðbjartsson hjá Framleiðsluráði að erindi Skóg- ræktarinnar um aukningu á mjólk- urkvóta fyrir þennan bæ hefði enn ekki verið tekið fyrir og ekki hægt að segja til um, hvort hægt verði að verða við beiðninni. Hjá þeirn Jóni Höskuldssyni samningamanni landbúnaðarráðuneytisins í málinu og Árna Guðmundssyni á Böð- móðsstöðum, forystumanni bænda, kom fram að ólíklegt er að úr skógræktinni verði ef ekki tekst að hafa umrædda bændur með. „Þessi jörð skiptir mjög miklu máli og ef hún dettur út þá er þessi hug- sjón búin að vera“ sagði Árni Guð- mundsson. Jón taldi ekki nenia helmingslíkur á að þessi mál leyst- ust eins og staðan er núna. Skógræktaráætlunin fyrir Laug- ardal tekur til 10 bújarða þar sem eru 13 ábúendur og er skipulagt 900 hektara svæði fyrir fyrsta áfang- ann. Reiknað er með að árlega verði plantað 180 þúsund plöntum í 60 hektara lands. Jafnframt því að verða nytjaskógur þar sem ösp yrði plantað til frantleiðslu á borðviði, trjákvoðu og pappír, er lögð áhersla á að landið verði fegurra og meira aðlaðandi. Umrætt svæði er frá Laugarvatni að Brúará. Jón Höskuldsson kvaðst að- spurður telja það vel mögulegt að gefa bændum á öðru svæði kost á að ganga að þeim kjörum sem Laugdælum voru boðin, verði ekk- ert úr samningum við þá. En til þess verða aðstæður að vera sambæri- legar og er óvíða talið eins ákjósan- legt skógræktarsvæði í landinu. / miklu stímabraki hefur staðið í samningum milli Laugdœla og landbún- aðarráðuneytis um rœktun nytjaskógar í sveitinni sem farið yrði í jafn- framt því sem sauðfjárbúskap yrði hœtt. LYST EFTIR NYJUM ATVINNUHUGMYNDUM Hugmyndasamkeppni um nýja at- vinnustarfsemi í sveitum hefur nú verið hleypt af stokkunum á vegum Framleiðnisjóðs og Landbiínaðar- sýningarinnar BÚ ’87, sem haldin verður í Reiðhöllinni í Víðidal 14. til 23. ágúst í sumar. Skilafrestur hug- mvnda er til 1. ágúst og verða veitt þrenn verðlaun fyrir bestu hug- myndirnar, 150 þúsundir, 75 þús- undir og 25 þúsundir króna. í keppnisgögnum sem liggja fyrir í Bændahöllinni segir meðal annars að tilgangur keppninnar sé að skjóta styrkari stoðum 'undir at- vinnulíf og byggð í sveitum. Helst er óskað eftir tillögum að einfaldri en arðbærri atvinnustarfsemi sem hægt sé að stunda í hlutastarfi við þau skilyrði sem nú eru í sveitum. Tillöguhöfundar halda öllum höf- undarétti og farið verður með allar tillögur sem trúnaðarmál. Dómnefnd skipa þau Ágústa Þorkelsdóttir á Refsstað, Leifur Kr. Jóhannesson í Stofnlánadeild og Sigurður Guðmundsson hjá Byggðastofnun. VALFODUR: INNIHALDSRIKT 06 FÓÐURSPARANDI l^lfóður er fljótandi dýrafóður, l^lfóður er fóðursparandi, vegna framleitt úr nýjum fiski. Við fram- þess hve prótein í öðru fóðri nýtist leiðsluna er ekki notast við hita, sem vel, sé Valfóður gefiö með. skaðar næringargildi hráefnisins. V w alfóður er mikilvægt með öðru fóðri, vegna líffræöilegs gildis þess. alfóður er ódýr, innlend franv leiðsla. >eitió nánari upplýsinga. VIO SETJUM GEYMSLUTANK HEIM Á BÆ, ÞÉR AO KOSTNAOARLAUSU. PO BOX 269 222 HAFNARFJOROUR SIMI: 91-651211 SÍMI i VcRKSMIDJU: 92-2273 II DRIFSKOFT Flestar stæröir og gerðlr Veitum taeknilega aöstoð og alíar upplýsingar

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.