Bændablaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 24
BÆNDA
BLAÐIÐ
P
ÞETTA ER JU FÓLK..
— Arnór Karls-
son bóndi í Arn-
arholti og for-
maður Félags
sauðfjárbænda:
Mótmælir skrif-
borðsvinnunni.
Framtíð landbún-
aðar byggist á
pólitískum vilja.
„...ekki hægt að setja upp neina einfalda reglu. Verður að skoða hvert ein-
stakt bú og gera búrekstrarkönnun fyrir allt landið." Arnór Karlsson á
hlaðinu í Arnarholti.
„Svona skrifborðsvinna gengur ekki, — að setja alia
bændur inn í tölvu og skera þá bara eftir einhverjum
reiknireglum. Þegar það er gert og bara miðað við tvö ár
þá verður þetta tilviljunarkennt. Það þarf að gera bú-
rekstrarkönnun fyrir allt landið, athuga framleiðslu og
aðstæður á hverri einstakri jörð og úthluta framleiðslu-
rétti eftir því...“
Arnór Karlsson í Arnarholti í Biskupstungum er við-
mælandi Bændablaðsins. Hann er sauðfjárbóndi sem
nýlega hefur keypt jörðina Arnarholt en var lengi með
leiðuáðbúð á næsta bæ, Bóli, og seinna í hjáleigubúskap
í Arnarholti eins og hann kallar það sjálfur. Arnór er
formaður Félags sauðfjárbænda í Árnessýslu og viðtal-
ið snýst um sauðfjárbúskap, framleiðslustjórnun, skóg-
rækt, afréttarmál og fleira. Og fyrst er það kvótaúthlut-
unin.
„Ég fer frekar vel útúr henni því
1984 vorum við tveir á jörðinni, —
tvö bú, og fullvirðisrétturinn mið-
ast við það sem var framleitt á jörð-
inni viðmiðunarárin. Þetta er flók-
ið kerfi og það koma upp ótal
vandamálí*
Loðin svör
En er fullvirðisrétturinn þá
óvefengjanlegur réttur sem bændur
hafa og ekki verður tekinn af þeim?
„Það er ekki reiknað með því að
menn tapi fullvirðisrétti eða að
hann verði tekinn af þeim þó þeir
noti hann ekki. Að vísu var það
þannig með búmarkið að þeir sem
ekki nýttu það til fullnustu heldur
drógu saman eftir að það var sett á,
töpuðu réttinum. Þegar fullvirðis-
réttinum var úthlutað var hinum
umbunað sem framleiddu eins mik-
ið eða meira en búmark þeirra
leyfði.
Menn óttast að þetta geti orðið
þannig og þegar við höfum leitað
eftir svörum um þessi mál þá hafa
ráðamenn sagt að það sé ekki lík-
legt að svo verði. Aðstoðarmaður
landbúnaðarráðherra svaraði okk-
ur í þá veru. En við lítum svo á að
fullvirðisrétturinn sé veigamikill
réttur og það er hart þegar verið er
að kaupa hann af jörðunumí'
En hverju mætti breyta í þessari
Frá Kviarhóli í Ölfusi
Höfum hafið framleiðslu á fóðursílóum fyrir refa
og minkabú
Vönduð smíð úr ryðfríu stáli og einangruð með úreþani.
Rafmagnshitari í losunarbúnaði.
m =
KAUPFELAGIÐ |l == ■ ■ HELLU
SÍMAR: 5831 - 5832 - 5833 |« 3.