Tónlistin - 01.06.1945, Qupperneq 33
TÓNLISTIN
31
Sveinsson, skólakórinn, karlakórinn og
kirkjukórinn) :
a) ísland eftir Örn Arnarson, flutt af
Hálfdáni Sveinssyni.
b) Lýðveldissöngur 1944 eftir Emil
Thoroddsen; skólakórinn.
c) Minni Danmerkur eftir Mathías Joch-
umsson, flutt af BjarnfríSi Leósdótt-
ur.
d) ÞjóÖsöngur Dana; karlakórinn
Svanir.
e) 17. maí 1940 eftir Nordahl Grieg,
flutt af Hálfdáni Sveinssym.
f) ÞjóÖsöngur Norðmanna; karlakór-
inn.
g) ísland, eftir Margréti Jónsdóttur, flutt
af Bjarnfríði Leósdóttur.
h) ÞjóÖsöngur íslendinga; kirkjukór-
inn.
Pélag hljóðfærainnflytjenda.
Fyrir nokkru var stofnað Félag hljóÖ-
færainnflytjenda. í stjórn félagsins eru
þessir: Sturlaugur Jónsson formaÖ-
ur, Anna Friðriksson gjaldkeri og
Helgi Hallgrímsson ritari. AÖrir félags-
menn eru Sigríður Helgadóttir, Jón
Ivarsson, Ivar Þórarinsson, Tage Möller,
Guðlaugur Magnússon, Þorsteinn Thor-
lacius. — Tilgangur félagsins er viðskipta-
legs og menningarlegs eðlis, að vera á
varðbergi um réttindi félagsmanna, sam-
kvæmt rikjandi viðskiptaháttum og leitast
við eftir fremsta megni að sjá lands-
mönnum fyrir vönduðum og góðum hljóð-
færum, en það er þýðingarmikið atriði.
Stykkishólmur.
Karlakór Stykkishólms efndi til söng-
skemmtunar í Stykkishólmi. — Á söng-
skránni voru 12 lög eftir innlenda og er-
lenda höfunda. Einsöngvarar voru Ingvar
Ragnarsson, Guðmundur Sumarliðason
og Bjarni Andrésson. Húsið var þétt-
skipað áheyrendum, og fékk söngurinn
ágætar undirtektir, svo að taka varð auka-
lög. —. Karlakór Stykkishólms var stofn-
aður á síðastliðnu hausti fyrir forgöngu
Bjarna Andréssonar. í kórnum eru nú
20 söngmenn.
Kirkjukór Stykkishólms fór að Staðar-
stað og hélt þar söngskemmtun í apríl.
Hélt söngmálastjóri ræðu um kirkjusöng
og þakkaði kórnum komuna. Kirkjan var
þéttskipuð áheyrendum, sem tóku söngn-
um forkunnar vel, og varð kórinn að
syngja mörg aukalög.
Formaður kirkjukórs Stykkishólms er
Kristján Bjartnrarsson, söngstjóri Jón
Eyjólfsson, organleikari Guðríður Magn-
úsdóttir.
Ólafsfjörður.
í siðasta hefti „Tónlistarinnar" var
sagt frá þjóðhátíð Ólafsfjarðar 17. júní
1944 við Hringverskot. Samkvæmt dag-
blöðurn hafði sú villa fundið inngöngu,
að karlakórinn „Kátir piltar“ hefði sung-
ið undir stjórn Sigursteins Magnússon-
ar, en átti að vera undir stjórn Sigur-
sveins Kristinssonar. Karlakórinn söng
þessi lög: S. Einarsson: Þú álfu vorrar
yngsta land, Sv. Sveinbjörnsson: Ó, guð
vors lands, J. Laxdal: Sjá roðann á
hnjúkunum háu, B. Þorsteinsosn : Ég vil
elska mitt land, F. Bjarnason: Vinnum
að þörfu verki, Prins Gustaf: Himinglað-
ir af hjartans grunni, Bellman: Fyrst
ég annars hjarta hræri, N. L. Sagnér:
Vort helge land, S. Kaldalóns: Island
ögrum skorið. Auk þess stýrði Sigur-
sveinn Kristinsson hópsöng með almennri
þátttöku (Rís þú, unga íslands merki, —
Öxar við ána, — Blessuð sértu, sveitin
mín, — Eldgamla ísafold, — Þú blá-
fjallageimur, — Nú vakna þú, ísland, —
Þið þekkið fold, — Faðir andanna).
Stokkseyri.
Hinn 27. janúar var stofnaður „Karla-
kór Stokkseyrar". Stjórn hans skipa:
Ilelgi Sigurðsson formaður, Jónas Ás-
geirsson ritari, Magnús Sigurðsson gjald-
keri; Bjarni Nikulásson og Sigurður 1.
Sigurðsson varamenn. Söngstjóri er
Pálmar Þ. Eyjólfssosn. — Tímaritið óskar
þessu unga félagi allrar giftu í framtíð-
inni og biður forgöngumenn þess halda
dyggilega vörð um hraustlegan söng ís-
lenzkra sjósóknara við hina sunnlenzku