blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 2
miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið
Reykjavíkurlistinn:
Samfylkingln reynir að
semja sig frá samstarfi
Samningaviðræður Reykjavíkurl-
istaflokkanna þriggja, Framsókn-
arflokks, Samfylkingar og Vinstri
grænna, ganga afar treglega og
ganga heimildarmenn Blaðsins með-
al Vinstri grænna svo langt að segja
að tillögur Samfylkingarinnar virðist
miða að því einu að samstarfið fari
út um þúfur. „Tilfinning okkar er sú
að enginn nema kannski framsóknar-
menn vilji sameiginlegt framboð að
ári,“ segir einn þeirra, en bætir við
að enginn vilji sitja uppi með að hafa
orðið til þess að sprengja samstarfið.
„En tillögur þeirra miða allar að því
að þær séu óaðgengilegar."
Allir þeir sem að samningaviðræð-
unum koma eru ófáanlegir til þess að
tjá sig undir nafni um viðræðurnar
en allir staðfesta þeir að viðræðurnar
séu við það að komast í strand. Menn
hafi verið einhuga um greiningu ým-
issa vandkvæða í samstarfinu en síð-
an skildu leiðir þegar rætt væri um
úrbætur. Engin umræða hefur enn
átt sér stað um málefni og stefnu-
skrá.
Fulltrúar Samfylkingar munu í
upphafi hafa gert tillögu um að flokk-
urinn fengi fjögur til sex sæti af efstu
átta en samstarfsflokkamir sögðu
það engan grundvöll fyrir frekari
samvinnu. Forystumenn Samfylking-
arinnar, Stefán Jón Hafstein og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, nýkjörinn
formaður flokksins, hafa lagt mikla
áherslu á að haldið verði opið próf-
kjör Reykjavíkurlistans alls og full-
trúar flokksins í viðræðunefndinni
hafa bókað sams konar tillögu. Fram-
sóknarmenn taka því ekki íjarri en
Vinstri grænir segja það ekki koma
til greina. „Ef við vildum keppa um
hlutfóll flokkanna væri einfaldast að
bjóða einfaldlega fram sjálfstætt og
láta kjósendur um að meta það,“ seg-
ir einn áhrifamaður Vinstri grænna í
Reykjavík.
Hugsanlega kann þó að vera höggv-
ið áhnútinnafSteinunniValdísi Osk-
arsdóttur borgarstjóra, sem sögð er
hafa einlægan áhuga á því að halda
samstarfi Reykjavíkurlistans áfram.
Það kann þó að kosta verulega eftir-
gjöf af hálfu Samfylkingarinnar því
Vinstri grænir eru ekki sagðir sætta
sig við neitt minna en tvo örugga
borgarfulltrúa, verulegan árangur í
stefnumótun og tryggingu fyrir því
að henni verði fylgt eftir.
Sendiherrar Bretlands, Þýskalands og Frakk-
lands gagnrýna hvalveiðar
Pólitískur
feluleikur
„Við erum aðilar að Alþjóðahvalveiði-
ráðinu eins og þessar þjóðir og við höf-
um rétt samkvæmt reglum ráðsins til
þess að stunda
vísindaveiðar,"
er svar Áma M.
Mathiesensjávar-
útvegsráðherra
við tilkynningu
sem sendiherrar
Bretlands.Frakk-
lands og Þýska-
lands sendu
frá sér í gær. í
tilkynningunni
ítreka þeir and-
stöðu landanna
við vísindaveið-
um íslendinga og
segja þær af vafa-
sömum vísinda-
legum toga.
Breitt yfir
eigin vandamál
Ámi segir liggja beinast við að líta
á tilkynningu sendiherranna sem
tilraunir til þess að breiða yfir vanda-
mál þeirra heima fyrir. Hann bendir
á nýafstaðnar kosningar í Bretlandi
og telur e.t.v. að stór orð þurfi að
uppfylla eftir þær. Einnig standi
Frakkar frammi fyrir kosningum um
stjómarskrá Evrópusambandsins og
séu hugsanlega að gera sig breiða fyr-
ir einhverjum kjósendahópum, auk
þess sem kosningar séu í Þýskalandi
á næstunni.
Dónaskapur
að ítreka
„Menngetaver-
ið ósammála
um hlutina og
geta látið það
koma fram en
að gera það
ítrekað finnst
mérveradóna-
skapur.“ Hann
segist munu
svara sendi-
herrunum eins
og öllum mót-
mælabréfum.
„Maður hitt-
ir svo þessa
menn og ræðir
þetta við þá.“ Árni segir tilkynning-
una ekki breyta neinu um vísinda-
veiðamar og finnst fráleitt að efast
um aðferðafræðina. Hafrannsóknar-
stofnun telur að til þess að ná rann-
sóknarmarkmiðum á skikkanlegum
tíma með raunhæfum kostnaði þá
séu þær aðferðir sem notaðar eru
bæði öruggastar og fljótvirkastar.
íslendingar á
auknum yfirdrætti
íslendingar virðast eyða um efni
fram um þessar mundir, ef miðað
er við vegvísi Landsbanka íslands í
gær. Þar kemur fram að heimilin í
landinu hafa hækkað yfirdráttarlán
sín um 2,2 milljarða króna frá því í
lok febrúar. Það þýðir að hagræðing
heimilanna, þegar yfirdráttarlán
voru greidd upp í tengslum við end-
urflármögnun fasteignalána, er að öll-
um líkindum að engu orðin. í lok apr-
íl skulduðu heimilin 60,5 milljarða
króna í yfirdráttarlán og eru þau því
orðin jafnhá og fyrir umrædda skipu-
lagsbreytingu á íbúðalánamarkaði.
Skuldir aukast um 20 milljarða
Skuldir heimilanna hjá innlánsstofn-
unum námu alls tæpmn 390 milljörð-
um króna í lok apríl síðastliðnum og
jukust um rúma
20 milljarða milli
mánaða. Hafa ber
þó í huga að hér er
ekki um hreina skulda-
aukningu að ræða, enda
er stór hluti aukningarinn-
til kominn vegna endur-
jármögnunar á eldri lánum frá
búðalánasjóði.
ar
o HelSskirt (3 Léttskýjað ^ Skýjað £ AlskýjaS
^ Rigning, litilsháttar íí' Rigning Súld Snjókoma
*
XJJ Slydda !
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
20
22
22
10
21
20
17
Kaupmannahöfn 16
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vin
Algarve
Dublin
Glasgow
20
27
23
9
10
24
16
23
15
8
21
25
14
12
7”0
rO
¥
o
■0.
80
6oW
o®
Á morgun
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
8
m ®
5V
510-3737
510-3744
blaðið=
Rándýrt
rauðvín
Karlmaður um þrítugt drakk í janú-
ar eitt dýrasta rauðvín sem sögur
fara af hér á landi. Hinna dýru veiga
var neytt í janúar en þá gekk maður-
inn inn á veitingahús og pantaði sér
rauðvínsflösku. Þegar til átti að taka
neitaði maðurinn að greiða fyrir flösk-
una og bar við að hafa gert samning
við þjón á staðnum um að greiða fyrir
hana með ljóðakveri. Við það kannað-
ist hins vegar enginn af starfsmönn-
um veitingastaðarins.
Maðurinn viðurkenndi við yfir-
heyrslu að hafa ekki greitt fynr
flöskuna, enda hafi hann verið verið
blankur. Fyrir dómi hélt maðunnn
hins vegar við fyrri sögu um að hafa
gert umræddan samning við þjón á
staðnum. Héraðsdómur komst að
þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt
að sanna að umræddur samningur
hefði verið gerður og var maðurinn
því sakfelldur fyrir íjársvik. Hann
þarf því að greiða 25.000 króna
sekt, auk málsvarnarlauna upp á
um 90.000 kr. Að auki þarf hann að
greiða andvirði flöskunnar sem kost-
aði 5.300 krónur.