blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 6
miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið OECD-skýrsla um efnahagslíf Islands: ísland að ofhitna Hagnaöur hjá Símanum: Rúmlega 131/2 milljón á dag í gær birti Efnahags- og framfara- stofnun OECD skýrslu þar sem segir að efnahagslíf íslands sé að ofhitna. Þykja þetta ekki ný tíðindi en greini- legt vandamál. Hannes Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir náttúrlega mjög mikið ójafnvægi í utanríkisviðskipt- um og mikla eyðslu og spennu í þjóðfé- laginu. Þar af leiðandi sé greiningin rétt og ekki mjög flókið að sjá mörg merki um jafnvægisleysi í þjóðarbú- skap íslendinga. „Við tökum heils hugar undir að það sé gríðarlega mikilvægt að fjárlög næsta árs og fjárhagsáætlanir sveitarfélaga verði aðhaldssamari en ella vegna þessa ástands. Varðandi frekari vaxta- hækkanir teljum við að það sé ekki skynsamlegt að stuðla að enn hærri vöxtum en orðið er. Þeir eru mjög háir og aðhaldsstig peningamálanna er mjög mikið. Þótt gengi krónunnar hafi lækkað þá er það enn mjög hátt og ekki samrýmanlegt langtímajafn- vægisgengi. Því teljum við nóg gert í aðhaldi af hálfu Seðlabankans," sagði Hannes í samtali við Blaðið. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabankans, segir skýrsluna ekki nein tíðindi. „Við höfum verið að §alla um þetta fjórum sinnum á ári þannig að það væri eitthvað óeðlilegt ef þetta kæmi ekki fram í tölum OECD líka.“ Aðspurður hvort einhveijar breytingar verði á stefnu Seðlabankans sagði Arnór bankann hafa gefið það til kynna að það kunni að vera þörf á meira aðhaldi og að það standi ennþá. g Landsími íslands hf. hefur birt árs- hlutauppgjör fyrir fyrstu þijá mánuði ársins og þar kemur ffam að hagnað- ur var 1.223 milljónir króna. Heildar- tekjur jukust um 372 milljónir á milli ára, fóru úr 4.758 milljónum í 5.059 milljónir. Síminn seldi á tímabilinu öll hlutabréf sín í Straumi fjárfesting- arbanka hf. og var 702 milljóna króna hagnaður af því fýrir skatta. Hluta- fé Landsíma íslands hf. nam 7.036 milljónum króna í marslok 2005 og samkvæmt hluthafaskrá eru 1.234 skráðir hluthafar í félaginu. Um 99% hlutafjár eru í eigu ríkissjóðs en sem kunnugt er stendur yfir söluferli á hlut ríkisins í félaginu. Síminn mun á næstu vikum hefia sjónvarpsútsendingar í gegnum ADSL-kerfi sitt á höfuðborgarsvæð- inu. Þjónustan hófst á landsbyggð- inni í nóvember í fyrra og nær nú til 34 bæjarfélaga. Með haustinu verður mögulegt að kaupa kvikmyndir og sjónvarpsþætti í sjónvarpinu og mun þá sjónvarpsþjónusta Símans ná til allt að 93% heimila. Stofnfrumur úr naflastreng geta bjargað Dæmi eru um að hérlendis séu stofnffumur úr nafla- streng geymdar eftir fæð- ingu svo hægt sé að rækta þær ef til sjúkdóma kemur og nota þær þá til lækninga. Þó er fólki ekki boðið upp á þennan möguleika að fyrra bragði. Hildur Harðardótt- ir, yfirlæknir kvennasviðs Landspítala Háskólasjúkra- húss, segir ekki tíðkast hérlendis að geyma stofn- ffumur nema ef um væri að ræða fjölskyldusögu um krabbamein af einhverju tagi og þá yrði það skoðað í hveiju tilviki fyrir sig. Hún segir þetta þekkt fyrir- bæri erlendis en þá eru það einkafyrirtæki sem sjá um geymslu á naflastrengsblóði um ókomna tíð gegn mánað- ar- eða ársgjaldi. Ekki hægt að búa til varahluti Kristbjöm Orri Guðmunds- son, lífífæðingur og starfs- maður Blóðbankans, segir að vel mætti nota stofnfrum- ur úr naflastreng ef t.d. til krabbameins kæmi. „Málið er að menn telja að hægt sé að fá blóðmyndandi stofn- ffumur úr naflastrengsblóði til að þroskast í nánast hvaða frumugerð sem er við réttar aðstæður," sagði hann og bætti við að þetta væri reyndar enn óstaðfest. Hann kallar þá stofnfrumu- banka sem finnast erlendis peningaplokk og segir fremur litlar líkur á að bam þurfi að nota nákvæm- lega þessar frumur. Vissulega gætu stofnffumur þó hjálpað ef til veikinda kæmi á borð við krabbamein eða hvít- blæði. Foreldrar þessara barna ættu ekki að eiga í vandræðum með að koma þeim í gæslu í Garðabæ. Hægt að velja um eða dagforeldra Foreldrar í Garðabæ geta nú valið um það hvort þeir vilja að börn sín njóti gæslu hjá dagforeldri, séu í leikskóla eða á einkareknum leikskóla. Kostn- aður foreldra verður svipaður, hvaða kost sem þeir velja fyrir sitt bam. Þetta byggist á ákvörðun bæjarráðs Garðabæjar sem kynnt var í gær. í tilkynningu sem Garðabær sendi ffá sér af þessu tilefni kemur meðal annars ffam að gæsla hjá dagfor- eldri og leikskóla séu ólíkir kostir en aðeins með því að jafna kostnað foreldra getur þjónusta dagforeldra orðið raunvemlegur kostur við leik- skóla. Einnig eru greiðslur til einka- rekinna leikskóla hækkaðar og hefj- ast fyrr, eða við 12 mánaða aldur í stað 18 mánaða áður. Beinn viðbótarkostnaður sveitarfé- lagsins vegna breytinganna er áætl- aður 28 milljónir króna á ári. leikskóla Mikill við- skiptahalli í apríl Utlit er fyrir að vöruskiptahalli hafi verið á bilinu 5-7 ma. kr. í apr- íl síðastliðnum en um er að ræða mesta viðskiptahalla í einum mán- uði á þessu ári. Þetta kemur ffam í morgunkorni íslandsbanka. Nú er spáð að viðskiptahalli geti verið alls 18 ma. kr. á fyrsta árs- þriðjungi samanborið við tæplega 4 ma. kr. halla á sama tímabili í fyrra. Halli á utanríkisviðskiptum mun líklega aukast enn ffekar á árinu samhliða miklum umsvif- um í efnahagslífinu og þegar stór- iðjuffamkvæmdir ná hámarki. Auglýsingar 510 3744

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.