blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 20

blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 20
I miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið Nýr islenskur golffatnaður ernak@vbl.is 66°Norður hefur gert þriggja ára samning við atvinnukylfingana Birgi Leif Hafþórsson, Ólaf Má Sigurðsson og Ólöfu Maríu Jónsdóttur, sem felur í sér að þau æfa og keppa í fatnaði frá 66°Norður. Kylfingamir taka þátt í hönnun þessarar nýju línu golffatn- aðar og segir Marinó Guðmundsson, forstjóri 66°Norður, að það gefi vöru- þróuninni aukna dýpt. Fyrstu flíkum- ar koma á markað í byijun júní. „Við byrjum á bolum og vindgöllum, bæði jökkum og buxum nú í ár, en það verð- ur þó ekki fyrr en næsta sumar sem öll línan kemur á markaðinn," segir Marinó. Ekki lengur púkó Það hefur lengi loðað við golfíþrótt- ina að klæðnaðurinn sé púkalegur en 66°Norður stefnir á að bjóða upp á klæðilegan og fallegan fatn- að sem hefur bæði gott notagildi og fallegt útlit og segir Marinó vaxandi markað fyrir þessa nýju línu. „Við sjáum að golfíþróttin er mest vaxandi útivistaríþróttin á Islandi svo þarna er góður og vax- andi markaður. Okkar vörur hafa verið mikið notaðar í golfið hingað til því þær henta vel við þessar að- stæður. Við erum með fatnað sem má nota í 25 stiga hita og einnig í þriggja stiga hita og roki en nýja golflínan okkar byggist á aukinni vöruþróun. Golflína 66°Norður verður seld bæði hér á íslandi og erlendis og bindur fyrirtækið vonir við að sú mikla reynsla í hönnun og vali efna, sem starfsmenn þess búa yf- ir, komi til með að falla vel í kram- ið hjá kylfingum. A Spáni er gott að... - spila golf Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, er á kafi í golfinu. Innkoma hans í þessa sívinsælu íþrótt er þó óvenjuleg en hann selur sumarhús á Spáni, svokölluð golf-hús. Glæsilegir golfveliir Sumarhúsin eru í og .« við Torrevieja og mörg «*• >j§ þeirra eru í nálægð við þijá glæsilega golfvelli - Villamartin, Las Ram- blas og Campoamor - en við hann er afar glæsilegt klúbbhús. Það er fyrirtækið Golf houses Campoa- mor, í eigu stórgolfarans ívars Hauks- sonar, sem stendur fyrir fasteigna- sölunni en ívar kennir einnig golf á vellinum og skipuleggur golfferðir fyr- ir íslendinga. Tíu aðrir golfvellir eru í innan við klukkutíma akstursfjarlægð frá bænum og vallargjöldin eru um Fjöldi Islendinga Um 800 íslendingar hafa fjár- fest í húsum í Torrevieja og nágrenni en Þórhallur segir að golfið sé ekki síst ástæða mikilla vinsælda svæðisins. Bærinn Torrevieja, sem er rétt sunnan við Alicante, tel- ur um 100.000 manns, en sá fjöldi margfaldast yfir sum- artímann. Þar eru yfir 100 veitingastaðir og barir en á kvöldin eru útimark- aðir á aðaltorginu við höfnina með alls kyns vaming. Þórhallur seg- ir að íslendingar dvelj- ist þama margir yfir vetrarmánuðinaenívetr- arloftslagi fer hitinn nán- ast aldrei imdir 15°C og sólin skín 320 daga á ári. Er bókhi Leikbókhald er góð leið til að meta styrkleika og veikleika í eigin golfleik og nýtist einnig mjög vel við skipulagn- ingu æfinga. Leikbókhald mun gefa þér skýrt til kynna hvað þarf að leggja áherslu á þegar farið er út á æfingasvæði, en það er afar algengt að kylfingar æfi þann hluta sem virkar best í stað þess að einbeita sér að því sem þarfnast lagfæringa. Hve nákvæmt leik- bókhald þú kýst að halda er vissulega vmdir þér komið. Það fer allt eftir því hve miklum tíma þú vilt veija í að halda leikbókhald og einnig hve mikið þú vilt rannsaka eigin leik. Hins vegar era fjórir hlutar leiksins sem allir ættu að hafa í sínu leikbókhaldi: • Upphafshögg á braut • Flatir hittar í réttu höggi Fjöldi pútta á hring Idið í lagi? Þetta eru mikilvægustu þættir leikbókhalds. Að auki er mjög gott að reikna út meðalfjölda fugla á hring, einpútt eftir glompuhögg, meðalfjölda pútta á flötum sem þú hittir eftir að hafa hitt flöt í réttu höggi, meðalfjöldi þrípútta, meðal- fjölda vippa og einpútta innan við 10 metra frá flöt og jafnvel meðal- fjölda „sprengja“ á hring (2 yfir pari og meira). Hvers vegna leikbókhald? Þú heldur leikbókhald til að fylgj- ast með gengi þínu á tímabilinu eða milli ára en einnig til að skipu- leggja æfingaáætlun eða einstakar æfingar. Þú getur einnig nýtt þér leikbókhald til ánægju og fróð- leiks. Á slóðinni www.golfkennsla. is má hlaða niður excel-skjölum sem nýtast vel til að halda leikbók- hald. 3.500 kr. • Meðalskor HeimilisgóLfdúkar Tilboðsverð frá kr. 900 á m2 Teppamottur 40% afsláttur Teppi horn í horn Stigateppi Níðsterk og létt í þrifum KJARANEHF • SÍÐUMÚL114 • 108 REYKJAVÍK SlMAR 510 5510 • 510 5500 OPID VIRKA DAGAKL. 8 -18. Allir í golfl Árið 1995 má segja að golfvakning- in hafi byijað á Islandi. Þá vora um 5.000 manns á skrá en nú er Golfsamband íslands næstfjölmennasta sér- sambandið innan ÍSÍ. Aukningin nemur um 10% prósentum á ári og segir Hörður Þor- steinsson, fram- kvæmdastjóri sambandsins, að besta skýringin sé líklega sú að golfið sé skemmtileg íþrótt. „Aukin umfjöllun í fjölmiðlum hefur haft sitt að segja þótt auðvitað sé erfitt að greina það nákvæm- lega.“ Alþýðuíþrótt Það hefur lengi loðað við golfið að það sé dýr íþrótt að stunda en Hörður blæs á þá gagnrýni. Hann segir það hreina mýtu, enda sé golfið alþýðu- íþrótt hér á landi. „Ég hugsa að golfið sé með ódýr- ari íþróttagreinum sem hægt er að stunda. Ef menn skoða málið í heild er golfið mun ódýrara en margt ann- að, sérstaklega ef við beram okkur saman við nágrannalöndin. Það er helst á Bretlandseyjum, þaðan sem golfið er upprannið, að það er alþýðu- sport eins og hér. Á íslandi þurfa menn að vera félagar í klúbbum til þess að spila en á Bretlands- eyjum hafa þeir svokall- aða „pay and play“ velli sem era opnir og maður borg- ar fyrir hvern leik.“ Upprenn- andi stjörnur Ekkihefurgeng- ið eins hratt og vonir stóðu til að ala upp íslenska atvinnukylfinga en Hörður segir að nú sé það að breytast. „Olöf María era nú að fara fyrst Islendinga inn í evrópsku atvinnumótaröðina." Fyrirmyndir hafa haft gífurleg áhrif á viðhorf yngra fólks til golfsins. Áð- ur þótti golfið íþrótt fyrir gamlingja en með tilkomu stórstjarna eins og Tigers Woods hefur þátttaka yngra fólks aukist. Hörður segir að Tiger hafi breytt viðhorfi bama og ung- menna í þá átt að nú sé golfið skoðað sem afreksíþrótt. „Unglingastarf inn- an golfhreyfingarinnar er alltaf að aukast en það er ekki hægt að neita því að hlutföllin era okkur enn óhag- kvæm. Innan við 17% golfara era fimmtán ára og yngri en við eram með átak til að auka þátttöku þessa hóps.“ Góð þátttaka Mjög góð þátttaka er á fyrsta mótinu í Toyota-mótaröðinni sem haldið verður á Strandar- velli á Hellu um helgina. Þegar hafa 132 þátttakendur skráð sig til leiks. Eru það nokkuð fleiri en undanfarin ár en þátttakan hefur verið um hundrað manns. Leiknar verða 36 holur. Hugarfarið mikilvægt Mikilvægi jákvæðs hugarfars, sjálfstrausts og góðrar einbeit- ingar verður aldrei ofmetið í golfíþróttinni. Oft og tíðum er það einmitt styrkleiki kylfinga á þessu sviði sem skilur á milli þess að ná hámarksárangri eða ekki. Hafa ber í huga að vægi hug- arþj álfunar er mismikið og fer eft- ir því hversu góðum tökum fólk hefur náð á íþróttinni. Fyrir byij- endur era það tækniatriði sveifl- unnar sem skipta mestu máh því ef ekki er haldið rétt um kylfuna eða henni sveiflað á sæmilegum ferli, þá dugar jákvætt hugarfar skammt. Eftir því sem forgjöfin lækkar og tækniatriði sveiflunn- ar verða sjálfvirkari, þeim mun meira þarf að huga að huglæga þættinum ef maður vill ná mjög lágri forgjöf eða klifra hátt á met- orðastiga íþróttarinnar. Fleiri góð ráð má finna á slóðinni www. golfkennsla.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.