blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 10
10 heilsa miðvikudagur, 25. maí 2005 i blaðið ernak@vbl.is Við Bæjarlindina í Kópavogi tók ný- lega til starfa hópur kvenna sem býður fjölbreytilega valkosti og leiðir að bættri heilsu og líðan. Starfsemi Heilsubrúarinnar miðast að því að sameina það besta í meðferðarúrræð- um úr heilbrigðisstéttum og heildræn- um meðferðum eða óhefðbundnum meðferðum. Tekið er tillit til líkam- legra, andlegra og félagslegra þátta í meðferð, eftiríýlgni og stuðningi. Boðið er upp á fjölþætta meðferð eins og sálfræðimeðferð, höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, nálastung- ur, svæðanudd, samtalsmeðferð, tal- meina- og uppeldisráðgjöf, heilsuráð- gjöf og handleiðslu fyrir fagfólk. Fordómar úr báðum áttum Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geð- hjúkrunarfræðingur og handleiðari, er frumkvöðullinn að stofnun Heilsu- brúarinnar. Hún segir að hagnýting þess að vinna saman að heilbrigðis- málum felist einkum í hinum þver- faglega grunni. „Við viljum helst vera fleiri og stefnum að því að vinna okkur í þá átt smám saman en okkur hefur verið ágætlega tekið. í byrjun fundum við fyrir ákveðnum fordóm- um, eða kannski vantrú öllu heldur, gagnvart því að starfsmenn úr hefð- bundna heilbrigðiskerfinu og hinu Efri röð frá hægri: Ólöf Einarsdóttir nálastungufræðingur, Sigríður Hrönn Bjarnadótt- ir, geðhjúkrunarfræðingur og handleiðari, Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Hanna Sigr. Jósafatsdóttir, hjúkrunarfræðingur og græðari. Neðri röð frá hægri: Margrét Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari og þerapisti, Þórey Ey- þórsdóttir, sálfræði-, uppeldis- og talmeinafræðingur, og Sólrún H. Ingibergsdóttir sálfræðingur. óhefðbundna gætu unnið saman. Það kom okkur á óvart að fordómamir eru ekkert minni hjá þeim sem koma úr óhefðbundna geiranum." Forvarnir og stuðningur Það hefur oft verið talað um að óhefð- bundnir aðilar grípi fram fyrir hend- urnar á fólki og hvetji það til að ganga þvert á það sem heilbrigðisstéttir ráð- leggja. Sigríður segir að þannig sé því ekki farið hjá Heilsubrúnni. „Við leggjum mikla áherslu á að grípa aldr- ei inn í meðferð sem einstaklingur er kominn í. Við hvetjum fólk alls ekki til að ganga þvert á það sem t.d. lækn- ir ráðleggur. Við lítum svo á að við séum frekar viðbótarstuðningur eða þá að við vinnum í forvarnarskyni. Ef við teljum að viðkomandi gæti farið aðrar leiðir þá hvetjum við til þess að hann tali við sinn lækni.“ Alþjóðlegar heilsumiðstöðvar Sigríður telur afar mikilvægt að auka þverfagleg vinnubrögð á milli þess- ara heilbrigðisstarfshópa og segir að hjá Heilsubrúnni sé lögð rík áhersla á að fólk hafi góðan faglegan grunn og menntun, hvort sem það kemur úr hefðbundnum eða óhefðbundnum heilbrigðisgreinum. „Ég hef unnið við geðhjúkrun í yfir 20 ár. Á því sviði er unnið þverfaglega og ég vil gjarnan sjá það á fleiri sviðum. Ég tel að það sé ekki á valdi einnar stéttar að geta hjálpað. Þekkingin er svo dreifð og fólk veit oft ekki hvert það á að leita. Erlendis starfa heilsumiðstöðvar þar sem þekkingin er öll á einum stað. Þjóðverjar vinna mikið að svona sam- þættingu og Danir eru komnir lengra en við.“ Heilsubrúin er þó vísir að auknu starfi í þessa veru. Opið mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 11-14 www.midborq.is hdl.lögg (astsali hrl.logg fastsali Poilakur Ómar sölustjón Guðbjanii Kristjáii hdl, lögg fast sali solumaður Magnus solumaður Becjjlróra sK-rifstofustjóri Póruun ritari Lóðir við í Ölfussi Hellugljúfur og Holtagljúfur viö Gljúfurárholt í Ölfussi. Byggingalóöir fyrir allt aó 600 fm ein- býlishús. Lóöirnar eru frá 2500 fm-8700 fm. Öll gat- nageröargjöld veröa greidd af hálfu seljanda. Neyslu- vatn, rafmagn og hitaveita veröa aö lóðarmörkum. Verö frá: 6.500.000.- kr. Nánari upplýsingar á Skrifstofu Miöborgar eöa í síma 533-4800 MÆLIKVARÐ! 1:2000

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.