blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 23

blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 23
blaðið I miðvikudagur, 25. maí 2005 H Úrslit Meistaradeildarinnar 2005 CHAMPIONS LEACUE Liverpool Líklegt Leikkerfi Liverpool í kvöld: 4-2-3-1. AC Milan Líklegt Leikkerfi AC Milan í kvöld: 4-3-1-2. Gattuso Alonso Crespo Nesta Dudek Gerrard Carraqher Hamann Shevchenko Seedorf Finnan Maldini Real Madrid vill ná í Ronaldo Fastlega er búist við að Real Madr- id geri á allra næstu dögum tilboð í Cristiano Ronaldo, leikmann Manc- hester United. Arrigo Sacchi, aðal- framkvæmdastjóri Real, var á dög- unum á bikarúrslitaleik Manchester United og Arsenal, gagngert til að fylgjast með pilti. Vitað er að Ronaldo hefur verið óánægður með núverandi samning sinn hjá United en hann er með 1,7 milljónir íslenskra króna í vikulaun, sem þykir ekki gott í heimi atvinnumennskunnar núna. Ronaldo er 19 ára og er talinn með þeim efni- legri í boltanum. Samningaviðræður umboðsmanns Ronaldos og Uniteds að undanfómu hafa gengið illa og því eru jafnvel taldar ágætar líkur á að hann fari til Real Madrid. ■ Vann ferð fyrir tvo á úrslitaleikinn Björn Ingi Björnsson frá Selfossi datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar hann vann ferð fyrir tvo á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Björn Ingi var dreginn út í Meistaradeildarleik Fót- boltaklúbbs Mastercard en í þeim klúbbi eru vel á annan tug þúsunda. Björn Ingi og eiginkona hans, Alda Bragadóttir, verða á leiknum í kvöld ásamt öðrum vinningshöfum Master- card-klúbbþega í Evrópu. Björn Ingi er ákafur stuðningsmaður AC Milan og vonandi hans vegna verða úrslitin í kvöld til að gleðja hann. Shevchenko vill fá Gerrard Andryi Shevchenko, knattspyrnu- maður Evrópu sem leikur með AC Milan, vill fá Steven Gerrard, leikmann Liverpool, til liðs við Milan fyrir næstu leiktíð. Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, lýsti því yfir fyrr í vikunni að hann hefði hug á að fá Gerrard til Mílanó-borgar og Shevchenko tekur undir þau orð þjálfara síns. „Leikur hans hentar mér vel, hann er alltaf að reyna ótrúlega hluti, hann hleypur, skorar og er frábær leiðtogi," sagði Shevchenko við fréttamenn. „Hann sendir boltann afbragðsvel og ég veit að ef ég tæki rétt hlaup þá mundi ég fá sendingu frá honum,“ sagði úkraínski framherjinn. Það er Ijóst að það verður mikið kapp- hlaup margra liða til að ná í Steven Gerrard í sumar en hann er sagður verða með vikulaun upp á 12 millj- ónir íslenskra krónatil 15 milljóna, hvar svo sem hann leikur á næstu leiktíð. - Spark leikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Útilíf - Kassabílaakstur - 7-8 ara ÚLFLJÓTSVATNI Upplýsingar og skráning á netinu: www.ulfljotsvatn.is Einstök krakkanámskeið Útilíf og œvirttýri! 9-12 ára Almenn námskeið Vinir, fjör og hópefli! INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.