blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 28

blaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 28
28 dagskrá ■ miðvikudagur, 25. maí 2005 1 blaðið Stutt spjall: Sirrý dagskrárstjóri þáttarins „Fólk með Sirrý“ á Skjá Einum, en lokaþátturinn er í kvöld. Þátturinn fer svo (sumarfrí en kemur aftur á skjáinn í haust. --L Hyað ert þú að gera núna? „Ég er að fara til Keníu á eftir til að kaupa efni fyrir þáttinn í haust. Þó að þátturinn sé að fara í frí þá höldum við áfram að vinna og erum að fara fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Unicef, til að ná í efni í þáttinn. Það eru margir íslendingar sem eru heimsforeldr- ar. Þeir leggja sitt af mörkum til að heilsu- gæsla og menntun batni og aðstoða börn í Keníu og fleiri Afríkuríkjum sem hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Við getum þó gert enn betur og það vantar miklu fleiri Islendinga til þess að gerast heimsforeldrar þannig að við ætlum að fara að skoða hvað íslendingar geta gert og hvernig lífið er í Keníu." Hvaða málefni verður í brennideplinum í þættinum í kvöld? „Við ætlum að fylgjast með ungri konu í afstressun í Heilsustofnun Náttúrulækn- ingafélagsins í Hveragerði. Maður vill oft nota sumarið sem ákveðinn vendipunkt til að koma lífi sínu í betri farveg og ég ætla að ræða við þessa konu, Sigur- björgu að nafni. Hún er ekki nema þrítug en engu að síður vel menntuð kona sem vinnur mikið með tól og tæki alla daga. Hún var að keyra sig út af stressi þar til læknirinn hennar skipaði henni að fara í afstressun á Heilsustofnunina í Hvera- gerði. Það eru margir sem vinna undir tímapressu og álagi og ná einhvern veg- inn ekki að höndla þetta stress. Núna er hún í uppbyggingu í Hveragerði og er að læra að snúa lífi sínu einhvern veginn við og við ætlum að fylgjast með því hvað hún er að gera. Við eigum von á Geir Jóni Þórissyni lögreglumanni í þáttinn en hann hefur einnig reynslu af stressi og streitu og hefur farið á Heilsustofnunina. Að auki á stofnunin 50 ára afmæli um þessar mundir og þar er verið að gera margt nýtt og spennandi sem almenn- ingur getur nýtt sér. T.d. þegar farið er í helgarbíltúrinn er hægt að fara í leirböð og ýmislegt fleira. Hvernig hefur þátturinn gengið? „Bara ofboðslega vel og við erum svo þakklát því viðtökumar hafa verið virki- lega hlýjar og góðar. Þátturinn er mikið unninn í samstarfi við áhorfendur, sem eru mjög duglegir við að senda bréf og benda á hvað þarf að ræða, því þau mál eru ekki endilega í fréttum þótt allir þurfi að glíma við þau einhvern tíma á lífsleiðinni." Þátturinn „Fólk með Sirrý” verður á Skjá Einum í kvöld klukkan 20. Eitthvað fyrir.. ...gamansama RÚV - Ed - kl. 20.10 Nú er hafin sýning á nýrri þáttaröð um lögfræðinginn Ed sem rekur keilusal og sinnir lögmannsstörfum í Ohio. í þættinum í kvöld kaupa Ed og Mike vinur hans veðhlaupahest, Carol fær skólastjómina og Molly upp á móti sér þegar hún segir að Warren hafi ekkert í háskólanám að gera en hann er að reyna að komast að sem sjónvarpsmaður á kapalstöð í bænum. Aðalhlutverk leika Tom Ca- vanagh, Julie Bowen, Josh Randall, Jana Marie Hupp og Lesley Boone. ...áhugasama RÚV - Brian Wilson og „Smile“ - kl. 22.45 Sjónvarpið sýnir í kvöld athyglisverða heimildarmynd með viðtölum við Bri- an Wilson úr Beach Boys og samferða- menn hans, þar sem varpað er ljósi á tilurð plötu Wilsons, Smile, sem var 37 ár í vinnslu. Sagt er lauslega frá ferli Beach Boys þar sem Brian Wilson var potturinn og pannan í öllu. Hann átti við geðræn vandamál að stríða og leið ekki vel á sviði. Þess vegna varð hann oft eftir heima og dundaði sér í hljóðver- inu á meðan félagar hans fóru í tónleikaferðir og spiluðu og sungu lögin hans fyrir fólk. Wilson var frumkvöðull í upptökutækni og platan Pet Sounds vakti gríðarlega athygli þegar hún kom út. I kjölfarið hófst svo vinna hans við plöt- una Smile, sem átti sér lengri meðgöngu en gengur og gerist í tónlistarbrans- anum. Brfan'Wíison presents . Sffli ...dulræna Stöð 2 - Miðillinn Allison DuBois - kl. 20.30 Miðillinn, eða Medium, er dramatískur myndaflokkiu um konu með einstaka hæfileika. Allison DuBois er þekktur miðill í Bandaríkjunum. Hún nær sam- bandi við hina framliðnu og getur líka séð atburði fyrir en náðargáfa hennar hefur varpað ljósi á ófá sakamálin. Að- alhlutverkið leikur Patricia Arquette (Little Nicky og Bringing Out the De- ad) en þáttaröðin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. í þætti kvöldsins er lasleiki að hijá Allison sem leggst í rúmið. Hún styttir sér stundir við sjón- varpsgláp og horfir á eldgamlan gamanþátt. Svo vill til að aðalleikarar þátt- arins komu við sögu í þekktu sakamáli og þar með er áhugi miðilsins vakinn fyrir alvöru. ...íþróttafólk Sýn - Liverpool - AC Milan - kl. 18 í kvöld verða sigurvegarar í Meistara- deild Evrópu krýndir í Istanbúl en Liverpool og AC Milan munu leika til úrslita. Saga félaganna er einkar glæsi- leg en bæði liðin hafa oft hrósað sigri í Evrópukeppninni. Þótt ótrúlegt megi virðast hafa þau samt aldrei mæst í Evrópuleik. Staða AC Milan kemur fæstum á óvart en það var búist við miklu af Mílanó-liðinu á þessu keppn- istímabili. ítalamir voru hins vegar stálheppnir að komast í úrslitaleikinn á kostnað PSV Eindhoven. Það sama verður ekki sagt um liðsmenn Liverpool sem hafa eflst við hveija raun í Meistaradeildinni. Þeir slógu Chelsea verð- skuldað út í undanúrslitum þótt sigurmarkið hafi verið umdeilt. CHAMPIONS LEACUE Morgun Síðdegi Kvöld 18:30-21:00 17.05 17.50 18.00 18.01 18.23 Leiðarljós Táknmálsfréttir Disneystundin Stjáni (22:26) Sígildar teiknimyndir (34:42) 18.30 Sögur úr Andabæ (8:14) 18.54 Víkingalottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.10 Ed (69:83) 20.55 í einum grænum (4:8) Ný garðyrkjuþáttaröð þar sem tekið er á því helsta sem lýtur að fegrun garða. Umsjónarmenn þáttanna, Guðríður Helgadóttir og Kristinn H. Þorsteinsson, gefa áhorfendum hagnýt ráð við umhirðu garða og skipulagningu þeirra. 06.58 ísland í bítið 09.00 Bold and the Beautiful 09.20 í fínu formi 09.35 Oprah Winfrey 10.20 ísland í bítið 12.20 Neighbours 12.45 Ífínuformi 13.00 Sjálfstætt folk (Freyja Haraldsdóttir) 13.30AÖ hætti Sigga Hall (4:12) (e) 07.00 Everybody Loves Raymond (e) 07.30 Fólk með Sirrý (e) 08.20 The Bachelor (e) 09.10 Þak yfir höfuðið (e) 09.20 Óstöðvandi tónlist 07.00 Olíssport 07.30 Olíssport 08.00 Olíssport 08.30 Olíssport 06.00 Who is Cletis Tout? (Bönnuð börnum) 08.00 What’s the Worst That Could Happen?10.00 Just Visiting 12.00 Another Pretty Face 14.00 Hver lífsins þraut (3:6) (e) (Sykur- sýki) Umsjónarmaður: Karl Garðarsson og Kristján Már Unnarsson. 14.35 Happy Days (Jamie Oliver) (1:4) (Kokkur án klæða) 15.00 Whose Line is it Anyway 15.20 Summerland (11:13) (e) 16.00 Könnuðurinn Dóra 16.25 Snjóbörnin 16.38Tracey McBe- an 16.48 Mr. Bean 17.13Smá skrítnir foreldrar 17.50 Cheers 18.20 Innlit/útlit (e) 1 14.10 NBA 16.45 Olíssport 17.15 David Letterman 18.00 UEFA Champions League (Úrslitaleikur) Bein útsending frá úr- slitaleiknum í Meistaradeild Evrópu sem fram fer í Istanbúl í Tyrklandi. 14.00 Overboard (Bylt fyrir borð) 16.00 What's the Worst That Could Happen? (Hvað er það versta sem gæti gerst?) 18.00 Just Visiting (Bara í heim- sókn) 18.18 ísland í dag 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 ísiand í dag 19.35 Simpsons (Lisa vs. Malibue Stacy) 20.00 Strákarnir Strákamir skemmta áskrifendum Stöðvar 2 með bæði gömlum og nýjum uppátækjum. Stöð 2. 2005. 20.30 Medium (11:16) (Miðillinn) 19.15 Þak yfir höfuðið 19.30 Everybody loves Raymond (e) 20.00 Fólk með Sirrý - lokaþáttur Sirrý tekur á móti gestum í sjónvarps- sal og slær á létta jafnt sem dramat- íska strengi í umfjöllunum sínum um það sem hæst ber hverju sinni. 20.00 Another Pretty Face (Ungfrú snoppufríð) 07.00 Meiri músík 07.00 Joyce Meyer 07.30 Benny Hinn 20.00 Game TV 18.00 Um trúna og tilveruna 18.30 Joyce Meyer 19.00 CBN-fréttastofan

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.