blaðið - 25.05.2005, Page 8
miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið
DQDnUD
Fjölskyldumyndaveggurinn
ti fj| | J j
k&é^ B B Bbni fl %wP ᣠ\sfflpns •
- daglega
Glæsilegur, einfaldur og skapandi
ljósmyndarammi er á sýningu út-
skriftarnema Listaháskóla íslands á
Kjarvalsstöðum. Rammann hannaði
Esther ír Steinarsdóttir, hönnuður
og ljósmyndari, en hún útskrifast um
næstu helgi af hönnunarbraut LHÍ.
Fjölskyldupúsluspil
í raun og veru er ramminn utan um
myndirnar púsluspil eða þraut. Á flö
tinn eru settar 23 myndir en á einn
flötinn er ekkert sett. Hver mynd
er fest á undirstöðu sem er svo fest
á rammann með skrúfu sem rennur
eftir rauf á heildarrammanum. Þann-
ig má hreyfa myndirnar til eftir hent-
ugleika og skapa nýja heildarmynd
á hverjum degi. Væru myndirnar 23
brot úr einni heildarmynd væri hægt
að renna þeim til hliðar og mynda
þraut sem mætti púsla saman.
Mikilvægi mannlegra sam-
skipta
Esther vildi í þessu lokaverkefni sínu
koma fjölskyldualbúminu upp á vegg
með einfóldum hætti. Hún segir að
fjölskyldumyndaveggurinn hafi mun
meira gildi en við leiðum hugann að.
Einfalt í notkun
Myndaveggur Estherar er mjög ein-
faldur í notkun en við það miðaði hún
hönnunina. „Ég vildi hafa þetta eins
einfalt og hægt væri svo myndaramm-
inn byggist á þessari venjulegu stærð
ljósmynda, 10x15, svo fólk gæti notað
þær myndir sem það á eða látið fram-
kalla þessa venjulegu stærð.“ Það er
mjög einfalt að festa myndirnar á
vegginn en þeim er skellt á flötinn
og plasti smellt yfir með festingum á
hornunum.
Heilmikil tilbreyting
Einnig er auðvelt að skipta út myndum. Ef til að mynda
gömlu skólafélögunum er boðið í mat má skella gömlu mynd-
unum á rammann og myndast þá félagsleg miðja um hópinn
Esther Ir Steinarsdóttir hönnuður og og samskiptin. „Það má hafa rammana þematengda og svo
Ijósmyndari má auðvitað hafa í þeim sömu myndirnar ef maður kýs. Þeim
má líka raða nokkrum saman í stærra rými og nota einn lít-
inn í minna rými.“
„Ég skrifaði BA-ritgerð um fjölskyldu-
ljósmyndavegginn. Ég tók viðtal
við tíu manneskjur og það sem mér
fannst athyglisverðast var mannlegt
gildi ljósmynda. Þær eru ekki bara til
skrauts á veggjum heldur uppspretta
samræðna og spuminga um fólk. Um
ljósmyndavegginn verða heilmikil
samskipti sem ég vildi vinna með.“
Langar að framleiða
Esther segir að enn sé ekkert ráðið um framhaldið á þessu
skemmtilega verki en hana langar til að þróa það áffam til
ff amleiðslu. Hún segir að það sé raunveruleg vöntun á römm-
um sem þessum því fólk vilji koma við myndirnar og hreyfa
þær og þannig njóti þær sín best. „Það er kannski erfitt hérna
heima en auðvitað væri skemmtilegast, vegna þess að þetta
er íslensk hönnun, að ffamleiðslan væri það líka.“
Grilluð kjúklingabringa
með heitri sósu, hrísgrjónum, maís,
fersku salati ogTopp
Tvær grillaðar kjúklingabringur
með heitri sósu, hrísgrjónum, maís,
fersku salati ogTopp
1/2 grillaður kjúklingur
með heitri sósu, hrísgrjónum, maís,
fersku salati og Sódavatn
1/1 grillaður kjúklingur
með heitri sósu, hrfsgrjónum, mafs,
fersku salati og Topp
Kjúklingasalat
með grilluðum kjúkling, lceberg,
tómötum, agúrkum, papriku, pasta,
rauðlauk og Sódavatn
Kjúklingasalat - BKspecial
með grilluðum kjúkling, lceberg,
sólþurkuðum tómötum, svörtum ólífum,
fetaost, Nachos og Sódavatn
1.090
1.490
1.050
2.040
590
890
Hvað er hönnun?
agnar.burgess@vbl.is
Hönnun er gífurlega vítt hugtak og ekki eru allir sammála um þýðingu þess.
Blaðið fékk þá sem sjá um kennslu í hönnun til þess að útskýra hvað hönnun
er fyrir þeim. Spurt var: Hvað er hönnun? Út á hvað gengur hönnun? Hvað
gerir góða hönnun góða?
Hönnun er góð hugmynd, uppljómun - og engin hugmynd er góð fyrr en
búið er að bera hana saman við allar hinar hugmyndirnar - og fægja hana
síðan, efnislega, tæknilega, verklega og kannski ef það á við sem er alls
ekki alltaf; hræra út í hugmyndina biti og smá tælingu. Þetta er það sem
hönnun gengur út á og gerir hana góða eða slæma.
Guðmundur Oddur Magnússon,
prófessor í grafískri hönnun. Listaháskóla íslands.
Er hún hugsun? Ferðalag? Teikning? Tækni? Smíði? Rennileg? Mótun?
Framleiðsla? Kubbsleg? Hversdagsleg? Nytsöm? Gagnslaus? Er hún að
virka...?
Hönnun gengur út á ystu nöf og er skapandi ferli sem snýst um að taka
þátt í að skapa umhverfi.
Góð hönnun gegnir hlutverki sínu út í ystu æsar, hefur áhrif á daglegt
líf, er til staðar í rýminu, ber vitni um hugarfar, tíðaranda og mannlegt
hlutskipti.
Þóra Sigurðardóttir, skólastjóri Myndlistarskólans.
Hönnunarhugtakið er almennt notað yfir ffamsetningu hugmynda um
virkni, útlit, tæknilega gerð og framleiðslu á hlutum sem hafa notagildi.
Hönnun greinir sig ffá handverki, listhandverki og listum að því leyti
að hún fæst að jafnaði hvorki við smíði né ffamleiðslu á vörum með
beinum hætti, né fæst hún við ffjálsa, listræna tjáningu og sköpun.
Hönnun er hugmyndavinna en ekki handverk.
Baldur J. Baldursson,
brautarstjóri almennrar hönnunar í Iðnskólanum í Reykjavík
Hönnun er að breyta hugmynd í hlut. Árangurinn mælist svo með mis-
jöfnum mælikvörðum sem ráðast af menningu, verkviti og tíðaranda þess
sem í hlut á. Það sem telst góð hönnun á einum stað er óhafandi annars
staðar.
í mínum kokkabókum gengur hönnun út á það sem sýnt var með tákn-
mynd af jafnarma þríhymingi þar sem hver hlið var merkt 3xM: miljö
(umhverfi) - maskin (vél) - mánniska (maður).ww
Ástþór Ragnarsson,
deildarstjóri listnámsbrautar Iðnskólans í Hafnarfirði.