blaðið - 25.05.2005, Side 12
miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið
r)
Ingibjörg Lind Karlsdóttir, eða Inga
Lind eins og hún er oftast kölluð,
birtist okkur á skjánum á morgnana
en hún er ein af þáttastjórnendum
íslands í bítið sem sýndur er á Stöð
2 alla virka daga frá 7-9. Fyrir ut-
an að sinna fjölmiðlastörfunum er
hún gift Árna Haukssyni, fyrrver-
andi forstjóra Húsasmiðjunnar, en
saman reka þau stórt heimili á Arn-
amesi. Þau eiga fjögur börn, þau
að Inga eigi heiður skilið fyrir dug og
drifkraft en óhætt er að segja að fáir
kjósi þennan vinnutíma, hvað þá til
nokkura ára.
Aðspurð um hvort það sé ekki erf-
itt að vakna eldsnemma alla morgna
og þurfa að vera hress segir Inga það
vera síður en svo. „Það er sko ekk-
ert erfitt - Heimir og Gulli eru svo
skemmtilegir þannig að ég hlakka
bara til að mæta í vinnuna. Maður
mánaða frí þetta sumarið og njóta
þess að vera með fjölskyldunni, auk
þess sem það verður án efa sofið mik-
ið. Það hefur verið mikil törn í vetur
þó svo að þetta hafi óneitanlega verið
mjög skemmtilegt. Það verður æðis-
legt að fá gott frí og vera með mínum
nánustu, spila golf, fara í veiðiferðir
og vinna upp svefntap.“
Auk þess að stunda badminton af
kappi er Inga mikil veiðiáhugamann-
eskja og hún fer reglulega í veiðiferð-
ir með vinum eða maka. „Ég hef alltaf
verið eitthvað í veiði, var héma áður
fyrr í silungnum með pabba en er nú
farin að vera meira í laxveiði. Það er
bara svo æðislegt að vera í náttúr-
unni í nærandi umhverfi - algjörlega
frábært. Ég hlakka til að fara í veiði-
ferðir í sumar og komast í sem flestar
ár. Svo ætla ég nú líka að hella mér
eitthvað út í golfið en það var skorað
á mig í golfmót núna í maí og þurfti
ég því að skella mér á námskeið svo
ég verði nú ekki alveg út á þekju.“
Inga Lind á heimili
sínu á Arnarnesi.
kjarnak
Nálgast íslandsmet
í hlutverki morgunhana
Það eru 2V4 ár síðan Inga Lind byij-
aði í íslandi í bítið en fyrsta hálfa
árið las hún fréttir þáttarins. í haust
er hún því orðin sá sjónvarpsmaður
sem hvað lengst hefur tórað svona
snemma á morgnana því flestir hafa
sagt skilið við morgunsjónvarpið eftir
eitt eða tvö ár. Margir myndu segja
blað bar hið skemmtilega nafn „Blað-
ið“. Það var ekki einu sinni fríblað,
við seldum það á 10 krónur stykkið,"
segir hún og hlær, en greinilegt er að
Inga Lind hefur snemma fyllst krafti
og metnaði fyrir lífinu. „Mamma og
pabbi eru góðir uppalendur og þegar
ég var lítil var mikið ýtt undir metn-
að hjá mér. Ef ég sagðist ætla að
verða hjúkrunarkona sagði mamma
alltaf: „En af hveiju ekki læknir?" og
ef maður stakk upp á að verða flug-
freyja var spurt hvort maður vildi
ekki bara verða flugstjóri. Það er því
kannski ekki skrítið að ég ætlaði mér
einhvem tímann að verða forseti,“
segir segir þessi kjarnakona og hlær,
en tekur fram að það embætti fái að
liggja á milli hluta, í bili að minnsta
kosti. „Ég held að það gerist nú seint
en mér finnst jákvætt þegar böm al-
ast upp í hvetjandi umhverfi, þótt
maður sé alls ekki að gera lítið úr
ákveðnum störfum - þetta snýst bara
um að böm fái trúi á sér, eflist í því
sem þau vilja gera og fyllist metnaði.
Svo auðvitað fara þau sínar leiðir og
maður styður þau í því. Annars á
maður að mínu mati ekki að hafa allt
fyrirfram ákveðið. Ég hef aldrei verið
með neina ákveðna stefnu - hlutimir
gerast bara. Ég velti því aldrei fyrir
mér hvað ég verð eftir 10 ár, ég bara
vakna glöð á hverjum morgni og bíð
svo spennt eftir því sem lífið hefur að
bjóða.“
Þriggja mánaða sumarfrí
fer í fjölskylduna,
áhugamálin og svefn
Inga Lind og Arni eru mikið fjöl-
skyldufólk og telja tíma í faðmi fjöl-
skyldunnar mikilvægan, þó svo að
erfitt geti verið að skipuleggja ferðir
fyrir sex manna fjölskyldu. „Þessa
dagana erum við að skipuleggja ferð
til Danmerkur fyrir okkur öll. Það
er reyndar eins og að maður sé farar-
stjóri með íþróttalið - alveg vitavon-
laust að fá hótelherbergi með fjögur
börn. Þetta er ekkert grín, það er eins
og að ekki sé gert ráð fyrir að fólk eigi
meira en kannski tvö börn,“ segir hún
og brosir út í annað, enda tilhlökkun-
in orðin mikil fyrir langþráðu fríi.
„Ég hef ákveðið að taka mér þriggja
Tíu ára og hre$s að vanda.
Hauk, Hrafnhildi Helgu, Matthildi
Margréti og Arnhildi Önnu. Ekki má
gleyma heimiliskettinum Dimmu en
þær Inga snæða yfirleitt morgunmat-
inn saman árla morguns þegar aðrir
fjölskyldumeðlimir sofa vært.
Mörgum leikur forvitni á að vita
hvernig þessi unga kona nær að halda
utan um bú og börn, auk þess að vera
með sjónvarpsþátt eldsnemma á
morgnana, en hún rís úr rekkju kl.
5 og er mætt til vinnu hálftíma síðar.
„Ég náttúrlega gæti þetta ekki
nema með góðri aðstoð en auk þess
að eiga hörkuduglegan mann kemur
mamma vinkonu minnar til okkar og
hjálpar Áma á morgnana við að gefa
krökkunum að borða og koma þeim í
leikskóla og skóla. Þar að auki hika
ég ekki við að fá mér heimilishjálp
sem sér um þrif og fleira. Fyrst var
ég ekki með neina aukahjálp en þá
var lífið mjög erfitt - þetta var ótta-
legur barningur þannig að ég ákvað
bara að fá mér utanaðkomandi aðstoð
og ég sé svo sannarlega ekki eftir því.
Maður verður stundum að fá hjálp og
ég er orðin alveg ófeimin við að viður-
kenna það, enda búin að komast að
því að það er eiginlega um þijú störf
að ræða þegar báðir aðilar vinna úti.
Það er starfið hans, starfið hennar og
svo auðvitað fjölskyldan," segir Inga,
og bætir við að mikilvægt sé að átta
sig á að það er enginn löstur að þiggja
aðstoð. Við getum ekki gert allt ein
og haldið geðheilsunni og fleiru í lagi.
„Að mínu mati hefur okkar kynslóð
verið of mikið í því að ætla að gera
allt sjálf, sérstaklega kannski konur.
Mæður minnar kynslóðar voru t.d.
margar hverjar hræddar við að þiggja
hjálp en formæður okkar gerðu það
klárlega, enda kannski önnur viðmið
í gangi hér á árum áður.“
vaknar hress klukkan fimm og keyr-
ir um götur bæjarins eins og Palli er
einn í heiminum því það er sjaldan
einhver á ferli á þessum tíma. Svo
hittir maður drengina sína í vinn-
unni og allt er voðalega skemmtilegt.
Þetta er í raun besti tími dagsins."
Hún tekur fram að auðvitað séu kost-
ir og gallar við þetta eins og annað.
„Að vakna svona rosalega snemma
gerir það að verkum að ég er oft orðin
mjög þreytt klukkan fimm og alveg úr-
vinda á kvöldin. Maður er náttúrlega
með fjögur börn og ég get ekki farið
að sofa áður en þau sofna, auk þess
sem ég er oft með alls kyns verkefni
á kvöldin. Það má því segja að ég sofi
að meðaltíma 5-6 tíma á nóttu. Það
er auðvitað voðalega slæmt - maður
hefur á hættu að eldast fyrr en ella og
þetta er yfir höfuð ekki hollt. Á móti
kemur hins vegar að ég er yfirleitt
búin upp úr hádegi og get því notað
daginn í leikfimi, fyrir matarinnkaup-
in og til þess að sækja börnin svo eitt-
hvað sé nefnt."
Ætlaði sér að verða forseti
Inga hefur mikla reynslu af fjölmiðla-
störfum en hún byijaði tvítug hjá DV
og hefur allar götur síðan jafnan ver-
ið viðriðin eitthvað tengt fjölmiðlun.
„Það má reyndar geta þess til gam-
ans að ég var með skólablað í 10 ára
bekk ásamt vinkonu minni en það
Umbrotsmaður óskast
Vegna aukinna verkefna óskar
Biaðið eftir að ráða umbrotsmann
Umsókn berist til karlg@vbl.is fyrir 1 .júní
Nauðsynleg kunnátta
Gott auga
Reynsla af InDesign
Litgreining
Undirbúningur prentgripa
Reynsla af Mac 0S X
blaðið