blaðið - 25.05.2005, Page 18
miðvikudagur, 25. maí 2005 i blaðið
18 suma
Viltu vera
memm?
Sumarið er dýrtíð bamanna. Leik-
fangaverslanir bjóða nú ógrynni
hluta til sölu, sem bæði böm og
foreldrar geta leikið sér með úti í
góða veðrinu. Fyr-
ir þá sem vilja
koma bömunum
burt ffá tölvum
og út í góða veðrið bjóðast margar
lausnir sem glatt geta jafnt unga sem
aldna. Njótum sumarsins, fómm út
að leika.
^^^^^mmmmmmmmmm
naverslumn
• s
Líkiega hlýleg^stg
og ó4ýrast3
glergygnaverslun
norðgn
1
II)X\
Vatnsbyssur
Vatnsstríð em mörgum bömum
ómissandi híuti á heitum sumar-
dögum. Galli slíkra stríða hefur
ævinlega verið fólginn í þeim
fjölda ferða sem stríðsmennimir
verða að fara til að endurhlaða
skotvopn sín. Nú er hægt að
kaupa vatnsbyssur sem haldið
geta fleiri lítmm af vatni og því
losna foreldrar við útötuð teppi
eftir lítið ævintýrafólk sem á
nokkurra vatnsgusa að gjalda úti
í garði.
Sandkastalagerð
Sandkastalagerð er tómstund sem
flestir hafa gaman af en stunda
sjaldan. I sólinni er tilvalið að láta
hugmyndaflugið reika og skapa
eftirlíkingar af hinum ýmsu bygg-
ingum. Sandur er ótrúlega með-
færilegt byggingarefni, sérstak-
lega þegar húsasmíðameistarinn
hefur komist upp á lagið með að
finna hið rétta hlutfall milli vatns
og sands. í Nauthólsvíkinni verð-
ur eflaust nóg af listaverkum úr
sandi í sumar - listaverk sem eiga
sér öllu jafna skamman líftíma en
veita þeim mun meiri stundar-
ánægju.
Nokkur sniðug
sumarleikföng
■ ■
\
Rennibrautir og kofar
Fyrir tiltölulega litla íjárhæð má
breyta bakgörðum í ævintýraland
fyrir börn. Nú fæst í fyrsta sinn
í leikfangaverslunum úrval húsa
og rennibrauta úr harðplasti sem
hvorki fýkur auðveldlega né brotn-
ar. Börnin geta gefið ímyndunar-
aflinu lausan tauminn og farið í
alls kyns þykjustuleiki úti í garði
og rennt sér af kappi í rennibraut-
inni. Að sjálfsögðu geta flestir ein-
faldlega smíðað kofa úti í garði
ásamt börnum sínum og skapað í
senn nýjan leikvöll og ómetanleg-
ar minningar mn notalega sam-
veru fjölskyldunnar.
Sandkassaleikföng
Þessi leikfóng eiga heima í öllum
görðum. Kynslóðir geta saman
reynt á sköpunargáfuna í sand-
kössum eða drullumalli. Allir
geta skemmt sér konunglega við
hallarsmíðar og síkisgröft, sér-
staklega þar sem við höfum nú
aðgang að glæsilegri sólarströnd
í hjarta Reykjavíkur.
Hlaupahjólin
Þau eru sívinsæl og henta öllum
ffá fjögurra ára aldri. Jafnt stórir
sem smáir geta leikið sér á hjól-
unum því þau eru með hæðarstill-
anlegu stýri. Þau eru til í þremur
gerðum og hægt er að fá þau með
ljósum. Hlaupahjólin eru nú orðin
vinsælli en hjólabrettin en með
þeim er ráðlegt að kaupa nauðsyn-
legan hlífðarbúnað, s.s. hné- og
olnbogahlífar og hjálm.
Trampólín
Sífellt algengara verður að sjá
litla kolla skjótast upp og niður
handan húsveggja. Þar eru að
leik böm á trampólínum. Þau fást
með 95 sm þvermáli og upp í fjóra
metra. Börnin eru mörg hver orð-
in snillingar í trampólínhoppi og
afgreiðslufólk leikfangaverslana
segir að nýtt æði fari um samfélag-
ið. Trampólínin eru sterk og geta
hæglega haldið fullvaxta fólki ef
það vill bregða undir sig betri fæt-
inum.
Milt og hlýtt
veður í sumar
Páll Bergþórsson veðurffæðingur tel-
ur að gróður komi vel undan vetri og
að hlýtt og milt veður gæli við lands-
menn í sumar.
„Að öllu jöfnu eru heldur meiri
líkur á ffekar mildu og hlýju sumri
vegna þess að sjórinn er svo hlýr hér
við norðurendann,” svarar Páll að-
spurður um sumarveðrið á íslandi.
Hann segir hitastig hafsins hafa mik-
il áhrif á hitastig loftslags á íslandi.
„Loftið verður fyrir svo miklum áhrif-
um af hitanum í hafinu en það er
hins vegar mjög erfitt að segja til um
hvort það verði úrkomusamt í sumar
eða ekki. Við höfum engin gögn fyrir
ffaman okkur til að segja til um það.
Golfstraumurinn er mjög hlýr núna
í grennd við landið og líkfegra hlýrri
en nokkru sinni áður. Það er því að
þakka að undanfarin ár hefur verið
heldur meiri sunnanvindur austan-
megin við landið heldur en oft áður
milli íslands og Noregs. Það fleytir
hlýjum sjó í hafið norður undan ís-
landi en sjórinn þar pr búinn að vera
hlýr í langan tíma.“
Miðað við meðalhita í maímánuði
síðustu 160 ára, eða ffá upphafi mæl-
inga í Stykkishólmi, þá er hitastig
ekki nema 0,2 gráðum undir meðal-
lagi, sem er mjög lítill munur þrátt
fyrir að margur hafi haft orð á köld-
um maímánuði.
Líf og fjör
í Húsdýragarðinum
Það hefur verið mikið líf og fjör í
Húsdýragarðinum undanfarið. Sauð-
burður er á fullu og á laugardaginn
fyrir viku litu fjögur falleg lömb
dagsins ljós í fyrsta skipti. Því miður
drapst eitt þeirra stuttu eftir burð.
Það voru æmar Botna og Eygló sem
báru tveimur hrútum og einni gimb-
ur. Á sunnudaginn síðastliðinn bar
svo Röskva þremur mógolsóttum
gimbrum. Parísarhjól var svo opnað
nýverið svo fólk getur skoðað leynd-
ardóma lífsins þegar nýborin lömb
leika sér um í haga og skoðað svo
Laugardalinn úr 26 metra hæð í Par-
ísarhjólinu.